Víðförli - 01.09.1947, Síða 19

Víðförli - 01.09.1947, Síða 19
ÞJÓÐKIRKJA ÍSLANDS 145 kvæmir í ríkdómi elsku sinnar. Hann kyssir, ef svo mætti segja, spor hinnar guðlegu gæzku á slóð mannanna og vitnar um þá vissu, að ekkert muni geta gjört þann, sem honum játast, við- skila við kærleika hans í Kristi Jesú. Þetta játar kirkjan í mikilli auðmýkt og lotningu. Hún er að viðurkenna þakkarskuld, ekki að gera grein fyrir skoðun eða fræðilegri niðurstöðu. Einstaklingarnir í samfélagi hennar eru misjafnlega á vegi staddir að trúarþroska og andlegum skilningi. Hún er ekki að íþyngja samvizku þeirra með því að krefjast samþykktar við fullyrðingar, hún er að leitast við að gefa þeim hlutdeild í dýpstu vitund sinni gegnum aldirnar um náð Jesú Krists. Einsta'klingurinn getur mjög fundið til þess, að hann skorti þekkingu og reynslu þeirrar náðar. En honum vilí hann játast samt, honum vill hann heyra, hann trúir „á Guð. þótt titri hjartað veika“ og biður þess, um leið og hann játar, að góð- ur Guð og faðir Jesú Krists virðist að gera sannleika sinn hjálp- ■samlega lifandi og virkan í sálu hans. I trúarjátningunni hyilir kristinn maður konung sinn, skapara sinn, eiganda, endurlausnara og lífgjafara. I slíkri játningu er maðurinn sannarlega frjáis. Hann er ekki að binda vit sitt á klafa einhverra skoðana. Hann er að tengja hjarta sitt eilífri •uppsprettu lífsins og sannleikans. Eru það ekki slík tengsl, sem Jesús á við, þegar hann segir: Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa? Frjálsa undan „öðrum guðum“, hvað sem þeir heita. Annaðhvort heyri ég Guði — og er frjáls, eða einhverju öðru — og er þræli. Maðurinn hefur annaðhvort Guð eða einhvern hjáguð, sagði Lúther. Það er vissulega satt. Sá, sem „frelsar“ sig undan því oki að játast Guði Krists og kirkju hans, er ekki þar með „frjáls“. Hann játast aðeins öðrum „guði“, hvort sem hann heitir hyggjuvit, skynsemi, nútíma- þekking, almenningsálit eða annað. Hann gengur til trúar á hleypidóma sjálfs sín eða annarra og verður því ósjálfstæðari •sem hann heldur sig lausbeizlaðri. Hann lendir vísast í því, sem forðum var lýst svo: Að hrekja'st og berast fyrir hverjum kenn- ingarvindi, tældur af vélabrögðum viHunnar.

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.