Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 47
Hvað er Biblían?
(Stytt endursögn á kafla í bók Bo Giertz:
Den stora lögnen och den stora sanningen)
Engum kristnum manni hefur nokkurn tíma til hugar
komið, að allt í Biblíunni sé jafn mikilvægt, hafi sama beina
hlutverki að gegna sem vitnisburður um Guð. Engum sálu-
sorgara kemur til hugar að ráða mönnum að lesa Biblíuna
í belg og biðu. Allir, sem iðlca biblíulestur, vita, að þeir hafa
við drengskap sinn. Einu sinni á ári a. m. k. gera allir borg-
arar landsins slíka hátíðlega yfirlýsingu, leggja drengskap
sinn við framburð, sem þeir hafa skráð. Það er þegar vér
teljum fram til skatts. Almennt er á orði haft, að ekki komi
öll kurl til grafar í skattaframtali þjóðarinnar. Og nú hef-
ur því nýlega verið haldið fram í forustugrein í stóru blaði,
að þetta sé afsakanlegt og eðlilegt, lögin séu svo ströng.
Vera má, að skattalöggjöfin sé harðdræg. Það skal ekki
hér rætt. Lög er heimilt að gagnrýna. En hvað verður um
þegnskap almennings, ef lögbrot eru afsökuð með slíkum
rökum í málgögnum ríkisstjórnar, jafnvel í málgagni dóms-
málaráðherrans? Og enn má spyrja: Hvað verðleggur þjóðin
drengskap sinn? Og hvers virði er þjóð, þegar drengskapur-
inn er fallinn niður fyrir verðgildi peninganna? Og loks:
Hvað um réttarfarið í landinu, þegar drengskaparyfirlýsing
jafngildir eiði að lögum, en ábyrgir stjórnmálamenn halda
því hinsvegar fram, að það sé eðlilegt og afsakanlegt að
Ieggja drengskap sinn við vísvitandi villandi og rangar upp-
lýsingar, sem gerðar eru í þeim miður lofsverða tilgangi ein-
um að hnupla undan af almannafé og koma byrðunum af
sameiginlegum skyldum yfir á aðra?