Víðförli - 01.09.1947, Page 50
176
VIÐFORLI
er hún, ef það, sem fram kemur, er megindrættir og sér-
kennisatriði. Sá, sem segir frá, er líka málari, elcki Ijósmynd-
ari. Ljósmyndun söguefnis er ekki möguleg.
Nú efast enginn trúaður maður um, að Biblían flytji
þann sannasta vitnisburð, sem fluttur verður á mannlegu
máli, um innsta, dýpsta og sannasta gildi Krists, lífs hans og
verks. Þessa mynd þarf ekki að yfirmála, endurmála, skýra
eða hreinsa. Það þarf ekki heldur að brjóta heilann um,
hvort það, sem frá er sagt, hafi við borið nákvæmlega í
þeirri röð, sem frá er greint, hvort þessi eða hinn hafi í raun
og veru verið viðstaddur þennan eða annan viðburðinn,
hvort eitthvað eigi að skiljast sem greinargerð raunveru-
legs söguatburðar eða sem dæmisaga eða skýring einhverra
sérstakra sanninda. Myndin getur verið bæði stílfærð og
gerð einfaldari, einstök atriði geta verið flutt til. Kirkjan
hefur á öllum tímum, vitað þetta. En láti maður þetta allt
samverka og horfi á heildarmyndina, þá flytur Biblían
þann vitnisburð, sem er sú sannasta og ábyggilegasta mynd
af Kristi, sem hægt. er að gefa með orðum og hugtökum
manna. Hitt er annað mál, að þessi mynd felur ekki í sér
allan sannleikann. Hér á jörð er þekking vor á Guði í mol-
um. Orð vor og hugtök hröldcva ekki til þess að lýsa hinum
eilífa og þríeina. En sannari mynd en þá, sem Biblían geym-
ir, getum vér aldrei fengið, og' hún nægir oss til hjálpræðis.
Það, sem er fram yfir, fáum vér að vita fyrst þegar „hið
fullkomna kemur“. Hér á jörð er enginn annar kristindóm-
ur til en kristindómur Biblíunnar, engin önnur þekking á
Guði en sú, sem Hann, sem „hallast að brjósti föðursins“,
hefur veitt oss, og enginn annar vegur til hans en hjálp-
ræðisboðskapur Biblíunnar.