Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 62

Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 62
VIÐ MALELDA AÐ FELA SKÖMMINA Sú saga er sögð, að þegar Friðrik konungur 8. kom hingað til lands forðum, hafi bær einn í þjóðbraut aust- an Fjalls verið að falli kominn sök- um elli og vanhirðu og svo útlits, að sæmd landsins þótti við liggja, að hann kæmi ekki fvrir augu konungs og föru- neytis hans. En á hiim bóginn lá þjóð- vegurinn við túnfótinn og hlaut því hið tigna lið að fara þar um. Sennilega hafa ábyrgir menn ekki orðið þessa vanda varir, fyrr en á síð- ustu stundu og varð engum venjuleg- um bjargráðum við komið. Þá hug- kvæmdist einhverjum það heillaráð að fela skömmina, meðan kóngur færi hjá og var að beztu manna ráði útvegað segl og breitt yfir hrófið. Þannig var sóma lands og þjóðar bjargað í það sinn á þeim vettvangi. Engin ábyrgð skal á því tekin, að sagan sé sönn, þótt hún sé í munnmæl- um eystra. I sumar komu hingað til lands tign- ir gestir frá Noregi og var viðbúnað- ur mikill, svo sem sjálfsagt var. Sú saga komst á kreik, að á síðustu stundu undirbúningsins undir komu þeirra hafi vaknað einhver uggur um, að þessir sögufróðu gestir myndu vilja koma í Skálholt og sjá þann stað, sem hæst ,ber að tign og helgi í sögu landsins. Ekki fylgdi það sögunni, að neinn treystist til að útvega þær voðir, sem entust til þess að fela skömm lands- ins á þeim vettvangi. Hinsvegar heyrð- ist, að í ráði væri að gera kirkjuna messufæra og fjarlægja alræmt mann- virki, sem laust niður í kirkjugarð- inn fyrir nokkrum árum úr ókunnum heimi. Það reyndist satt í þessu, að kirkj- an í Skálholti hefur verið máluð utan í sumar. Áður var hún rauðskjöldótt, nú er hún grá eins og grjótið í kring. Ennfremur hafa verið settir í hana ný- ir gluggar. Aður héldu þeir ekki rúð- um sakir fúa og höfðu kassafjalir fyrir gluggaopum lengi verið eitt af svipein- kennum þessa hörmungarhúss. Ekkert frekar hefur verið aðhafzt á staðnum, að séð verði, hvorki til góðs né heldur ills, svo að útkoman er eftir atvikum bærileg. Á barðinu, sem ætlað er til undirstöðu undir sunnlenzka búvizku, hafa hins vegar einhver moldarverk verið unnin, en ekki er vitað, hvort það hefur þótt sýningarhæft tignum útlendingum eða líklegt til að auka hróður landsins eða hylja skuggahlið- ar íslenzkrar menningar. Vísast mega framkvæmdir í Skálholtslandi taka aðra stefnu jafnframt, áður en ugglaust verður um virðingu Islendinga af við- skiptum þeirra við Skálholtsstað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.