Víðförli - 01.09.1947, Blaðsíða 64

Víðförli - 01.09.1947, Blaðsíða 64
190 VÍÐFÖRLI fremur en veiklaðist, — ef kostur væri. Þetta sjónarmið réði afstöðu undir- ritaðs — og margra annarra — til þeirrar álvktunar, sem fyrir lá og sam- þykkt var. Orðalag hennar var á ýms- an veg ófullnægjandi og mundi efaíaust valda ágreiningi. ef brotið \æri til mergjar. En beir. sem heils hugar og hiklaust vilja standa á grundvelli opin- berunarinnar í Kristi og ekkert vita til sáluhjálpar annað en Krist og hann krossfestan, máttu vel samþvkkja hana. úr því þeir eru og vilja vera í þjóðkirkju Islands, slík sem hún er. Það er stundum að sjá og heyra sem aðrar opinberanir af ýmsu tagi en sú, sem ályktunin talar um, eigi dálítil ítök í íslenzkri prestastétt. Hvernig þeir, sem slíkt virðast telja til höfuðdyggða, ætla sér að rækja þá skuldbindingu, sem í samþykkt þessarar ályktunar felst, það gefur tíðin að vita — og mun þegar komin nokkur raun á það. Annað mál er svo það, að einingu kirkjunnar verður ekki til vegar kom- ið með því að samþykkja ályktanir, ekki raunverulegri einingu, þeirri, sem Jesús á við í bæn sinni: Allir eiga þeir að vera eitt. Hver er sú eining? Hann segir: Allir eiga þeir að vera eitt, — eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, eiga þeir einnig að vera í okkur, til þess að að heimurinn skuli trúa, að þú hafir sent mig. Hér er um lífseiningu að ræða, sama lífið, sama huga og vilja. Orsakir þess, að þessi eining er ekki veruleiki í vorri kirkju í dag, er sú, að oss skortir holl- ustu, auðmýkt, hlýðni, helgun. Leiðin til lækningar þessa meins er ein og að- eins ein: Að vér látum uppbyggjast. í vorri helgustu trú, þeirri, sem kirkj- unni hefur í eitt skipt.i fyrir öll verið í hendur seld (sbr. Júd. v. ?, og 20). Sam- þykktir geta verið góðar. En hver telur sig bundinn af samþvkktum í kirkju, sem telur menn tæplega bundna af vígsluheitinu og virðist álíta ótakmark- að ..kenninrafre!si“ sína höfuðprýði? Fáum dögum eftir að prestastefnu Tslands lauk, kom saman alþjóðlegt kirkjuþing lútherskra manna. Islenzka þjóðkirkjan sendi fulltrúa á það þing og gerðist aðili að heimssambandi lút- hersku kirkjunnar. Það samband hefur skýran og ótvíræðan kenningargrund- völl, margsinnis samþykktan af full- trúum hinnar alþjóðlegu, lúthersku kirkju. Islenzku fulltrúarnir í Lundi gerðu ekki, að því er heyrst hefur, á- greining um þetta mál. Hverjir eru svo þeir, sem spilla fvrir kirkjulegri einingu á Islandi? Eru það þeir, sem óskiptum huga fallast á þennan grundvöll, sem lútherska kirkjan í heild stendur á, og vinna allt sitt starf í kirkju Islands í samræmi við hann, eða hinir, sem ekki samþykkja þessi almennustu og sjálf- sögðustu grundvallaratriði og' nota jafnvel embætti sín að nokkru leyti til þess að vega að þeim og gera þau tor- tryggileg í augum íslenzkrar alþýðu? PRESTAFÆÐ OG JÁTNINGAR Er það óttinn við játningaþvingun, samvizkufjötra, bókstafsþrælkun, sem veldur tregðu ungra manna íslenzkra til þess að takast á hendur prestsstarf? Svo var að heyra á erindi, er sr. Sveinn Víkingur flutti á útvarps-kvöldvöku ..Bræðralags“ á næstliðnum vetri. Greinin „Þjóðkirkja Islands, játningar og vígsluheit“, sem birtist í þessu hefti Víðförla, er rituð í tilefni af ýmsum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.