Víðförli - 01.09.1947, Síða 66
VÍÐFÖRLT
IQg
krufið málfJutning þeirra og seilzt eftir
sannleikanum af ekki minni einlægni
og alvöru en þeir. Þeir sem telja sig
sjá betur kjarna kristindómsins en
kennendur kirkjunnar í rás aldanna —
jafnvel að postulunum meðtöldum —
\ erða að auglýsa sterkari sannanir and-
ans og kraftarins en vart verður í sam-
tíðinni. Og þeir, sem ekkert lieyra eða
sjá í kór liinnar játandi kirkju annað en
annarlegt stagl og úrelta tilburði,
mættu liugleiða það í mikilli alvöru,
hvort þeir eru innan eða utan veggja
þess musteris, þar sem Kristur Jesús er
tignaður (sjá 2. Kor. 13,5).
Um prestafæðina er það að öðru
leyti að segja, að orsakir hennar eru
efalaust fleiri en ein og margslungnar.
Kirkjan siglir andbyr. Það er öllum
auðsætt. ITún Jiefur ekki leiði lýðskunn-
ar né meðhald tízkustraumanna. Og þó
býr liún ekki ein við eklu á starfsla-öft-
um. Það er líka torvelt að fá menn
til þess að gegna kennarastörfum, a. m.
k. í strjálbýli, þrátt fyrir mjög sæmi-
leg Jaunalgör barnakennara. Kvartað er
um ónógt framboð kvenna til hjúkr-
unarstarfa. Milli tíu og tuttugu læl<na-
héruð voru auglýst í vor án árangurs.
Þrátt fyrir mikinn manndómssvip
frumvaxta kynslóðar landsins og mikinn
tillíostnað til uppeldis hennar, er ekki
auðveldara fyrir þjóðfélagið nú en áð-
ur að fá menn til þeirra starfa, sem
krefjast meiri alúðar en metið sé til
fjármuna.
Andbvr kirkjunnar á líðandi stundu,
skeytingarleysið um Jiana og andstað-
an gegn henni, stafar elvlvi af óþörfum
i’eiða úreltra kenninga. Sú tíð er lið-
in. hafi hún nokkurn tíma verið. Menn
véfengja fleira í kristinni kenningu nú
en t. d. upprisu lioldsins, meyjarfæð-
inguna o. þ. u. 1. Átökin snúast blátt
áfram um það. livort kristindómurinn
yfirleitt sé gildur og noldcurs virði.
„Kin einfalda kenning guðspjallanna“
'jr ekki auðsæ sannindi í augum nú-
tímamannsins, svo að hann þurfi ekki
annað en að flett sé frá umbúðum úr-
eltra lvredda, til þess að liann lieillist
af „kjarnanum“. Sú meginskoðun full-
trúa „liberalismans“ er orðin haldlaus í
Ijósi staðreyndanna.
Flökt og flótti vekur ekki traust eða
virðingu. Það er ekki til neins að kveðja
unga menn til liðs við málstað, sem
virðist vera að gefa sjálfan sig upp og
er fluttur með hiki og hálfyrðum.
Kirkjan ])arf sjálf að vita livað hún
vill. Annars á hún einskis liðs að
vænta, hvorki frá Guði né mönnum.
S. E.
í SÓMU ANDRÁ og þetta liefti fer í prentun berast fréttir af aðalfundi Presta-
félags Vestfjarða og má ekld undir höfuð leggjast að vekja athvgli á og þakka
yfirlýsingu fundarins um stuðning við þær tillögur um endurreisn Skálholtsstóls,
sem Víðförli hefur flutt, og áskorun hans til kirkjustjórnarinnar um að taka þær
til athugunar. Héraðsfundur Árnessprófastsdæmis samþykkti og jákvæða ályktun
um þetta mál. Víðförli þakkar mikilvægar undirtektir þessara aðila, vonar, að
fleiri fylgi fordæmi þeirra, almenningsáliti, þingi og stjórn til vakningar og aðhalds.