Víðförli - 01.09.1947, Page 68
r
*\
Bókagerðin LILJA
Gefur aðeins út úrvalsbækur.
Af útgáfubókum ársins viljum vér sérstaklega benda á
þessar:
SÖLVI eftir síra Friðrik Friðriksson. Þetta er fyrra bindi
stórrar skáldsögu. Ilöfundinn þarf ekki að kynna. Sölvi
er mörgum kunnur af upplestri höf. í félögum og eru
þær stundir minnisstæðar.
PRÁ TOKYO TIL MOSKVTJ eftir Ólaf Ólafsson, kristni-
boða. Þetta eru minningar og ferðaþættir. Það er kunnugt
af útvarpserindum höfundar, að honum lætur vel að
segja frá. Bókin er prýdd mörgum fallegum myndum.
HETJUR Á DAUÐASTUND eftir Dagfinn Hauge, þýð-
ing eftir Ástráð Sigursteindórsson. Þetta er lýsing á síð-
ustu stundum dauðadæmdra, norskra fanga stríðsáranna
eftir sálusorgara þeirra. Margir þættir þessararditlu bókar
eru ógleymanlegir.
PASSÍUSÁLMARNIR í fallegri vasaútgáfu, hvað útlit
snertir nýjung í íslenzkri bókagerð.
GUÐ OG MENN eftir C. S. Lewis, prófessor, þýðing
eftir Andrés Björnsson cand. mag. Bækur þessa höfund-
ar eru meðal þeirra, sem mesta athygli hafa vakið í ná-
grannalöndunum síðustu árin. Þessi er ein hans frægasta.
Spyrjið um barnabœhur Lilju. Það má treysta því, að
þær eru góðar.
Bókagerðin LILJA Reykjavík.