Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 10

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 10
ar við Elliðaár, laxveiði og veiðiréttinda, þ. á. m. afnota Æskulýðsráðs. Síðla þetta sumar tók félagið við býlinu Elliðavatni. Þá var í september og október sett upp ný girðing norðan Rauðhóla frá Bugðu og suður í vatnsveitugirðinguna um Gvend- arbrunna, um li/j km að lengd, en vorið eftir, 1964, var lokið við að setja vandað pípu- hlið á girðinguna við Rauðhóla. Við þessar að- gerðir hafði bæst við Heiðmörkina landssvæði um 200 ha að stærð, og er hið friðaða svæði innan Heiðmerkurgirðingar nú 2500 ha. VII. BOÐUN NÝRRAR STEFNU í ÍSLENSKRI SKÓGRÆKT UPP ÚR 1930 I fyrsta hefti Ársrits Skógræktarfélags íslands, 1930—1932, birtist grein eftir Hákon Bjarna- son, sem þá hafði nýlokið háskólanámi í skóg- ræktarfræðum, fyrstur íslendinga. Titill grein- arinnar var einfaldlega „Skógræktarmál". í grein þessari segir m.a.: „Til þess að „klæða landið“ höfum við íslensku birki- og reynitrén ásamt gul- víðiskjarrinu, en það er víst, að við getum bætt fleiri trjátegundum í hópinn . . . Á Iíur- ileyjum, sem liggja norður af Japan, vex lerkitré (Larix kurilensis), og sennilegt er, að það sé miklu heppilegra fyrir Island en sí- beriska lerkið. Þar vex líka einhver sú liarðgerðasta grenitegund, sem til er. Það er rétt að geta þess, að loftslag hinna nyrðri Kurileyja er miklum mun kaldara en á íslandi, en þær eru af svipuðum uppruna og álíka gamlar. . . . . . Ef við siglum yfir Kyrrahafið í norð- austur átt frá Kurileyjum, lendum við á suðurströnd Alaska, sem einnig er mynduð af basaltgosum, og þar er loftslagið víða alveg eins og á íslandi. Þar eru vænir sitka- og hvítgreniskógar og ýmsar aðrar trjátegund- ir þrífast þar líka, sem vænlegt gæti orðið að rækta hér. Sé unnt að fá fræ frá þeim slóðum, er svipar til Islands að veðurfari og jarðvegi, þá aukast framtíðarmöguleikar islenskrar skógræktar að miklum mun“. I næsta hefti Ársritsins, 1933—1934, birtist alllöng grein eftir sama höfund, og nefnist hún „Framtíðartré íslenskra skóga“. Þar segir m. a.: „Eigi flutningur erlendra trjáa hingað til lands að lánast, verður trjáfræið, samkvæmt því sem áður er sagt, að koma frá þeim stöðum, er hafa sem svipaðast loftslag og ísland. Þegar fundnir eru skógi vaxnir stað- ir, er hafa svipaða veðráttu og ísland, þá má velja þaðan þær trjátegundir, sem lík- legastar eru til að geta vaxið í íslenskri mold, eftir því hvaða kröfur þær gera til jarð- vegsins heima fyrir“. Þá eru í greininni allítarlegar upplýs- ingar um veðráttu og vaxtarskilyrði trjá- gróðurs í suðvesturstrandhéruðum Alaska, og taldar upp ýmsar trjátegundir, sem vaxa þar við skilyrði, er virðast svipuð þeim skilyrðum, sem hér ríkja. í lok greinarinnar segir á þessa leið: „Við íslendingar verðum að sækja fræ til staða, sem liggja enn norðar en þeir, er norð- menn hafa sótt til. Og sennilega verðum við að fara að dæmi þeirra og senda mann eða menn vestur um haf. Þótt það sé ærið kostn- aðarsamt að fara kringum hálfan hnöttinn eða lengra, munu það þó vera lítil útgjöld í samanburði við það gagn, sem yrði af slíkri ferð“. Með þessum tveimur greinum, sem birtust í fyrstu árgöngum Ársrits Skógræktarfélags ís- lands, má segja að boðuð sé ný stefna i fs- lenskri skógrækt. Eyrsta fræsöfnunarferð til Alaska var svo farin sumarið 1945, að lokinni síðari heimsstyrjöklinni, en þá tókst Hákon Bjarnason skógræktarstjóri ferð á hendur til þessa fjarlæga lands í því skyni að safna trjáfræi og stofna til kynna við aðila, sem síðar yrði haft samband við i framhaldi af þessari fyrstu ferð. Næsta fræ- (og græðlinga-) söfnunarferð var farin síðari hluta sumars 1950 (Einar G. E. Sæmundsen) og síðan hafa með nokkurra ára millibili verið farnar á vegum Skógræktar ríkis- ins fræsöfnunarferðir til Alaska og raunar fleiri staða í vestanverðri Norður-Ameríku: Jafnframt hefur verið leitað fanga á öðrum 8 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.