Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 53

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 53
HELGl HALLGRÍMSSON: Skinnsveppir og skrápsveppir Skinnsveppirnir (Stereum eða Stereaceae) vaxa á trjám eins og sáldsveppirnir, (Poly- þoraceae), sem lýst var í Skógræktarritinu ár- ið 1966. Þeir eru að lögun eins og óreglulegir, skinnkenndir blettir, fastvaxnir að mestu við undirlagið, en brettast þó jafnan dálítið upp á jöðrunum, einkum þeim sem upp snýr á trénu, og mynda þar dálítil skellaga hattbörð. Stund- um eru börðin í mörgum „hæðum" hvert upp af öðru á sama aldininu, líkt og skóflur á myllu- hjóli, og verða þá meira áberandi en aldin- flöturinn. A efra borðinu eru börðin oft þakin hárstrýi, og stundum eru þar greinileg belti í hárgerðinni, en á neðra borðinu eru þau þakin af gróbeðnum (hymenium), eins og fast- vaxni hlutinn. Gróbeðurinn er sléttur eða því sem næst, oft með áberandi litum, gulum, brúnum eða fjólubláum, og breytir stundum litum við snertingu. Þótt aldin skinnsveppanna sé oftast ekki nema fáir millimetrar á þykkt, er það samt mjög seigt, líkt og leður væri. Stafar það einkum af miðlaginu, sem er milli yfir- borðslagsins og gróbeðsins, en það er mjög þéttofið og leðurkennt. Skinnsveppirnir teljast til stilkgróunga eða basíðusveppa (BasicLiomycetes), þeirrar deildar sem kallast beðsveppir (Hymenomycetes) en þar til teljast einnig hattsveppir (Agaricales), sálclsveppir (Polyporaceae), broddsveppir (Hyd- naceae), kóralsveppir (Clavariaceae), auk ým- issa smærri flokka. Skinnsveppir, sáldsveppir, broddsveppir, kóralsveppir o. fl. eru oft kall- aðir einu nafni hattleysingjar (Aphyllophora- les) til aðgreiningar frá hattsveppunum, sem hafa reglulegan hatt með fönum (blöðum) eða rörum á neðra borði. Auðvelt er að þekkja skinnsveppina frá öðr- um hattleysingjum á því að gróbeðurinn er sléttur, en ekki með holum, broddum eða rifjum, eins og hjá hinum flokkunum. Reyndar eru samt nokkrir aðrir smáflokkar sveppa með sléttan gróbeð, t. d. skeenisveppirnir (Corticium), sem líka vaxa á trjám, og mynda þar þunna himnu eða skæni, sem er mun þynnra og ekki eins leðurkennt og hjá skinnsveppum. Oftast vaxa skinnsveppirnir á stubbum eftir höggvin tré, eða á föllnum trjábolum, en þeir koma líka fyrir á lifandi trjám, sem farin eru að feyskjast. Talið er að sumar tegundir skinnsveppa geti valdið fúa í trjám, og ein teg- und (Stereum sanguinolentum) er jafnvel talin með hættulegustu sjúkdómssveppum í trjám. Elstu heimildir um skinnsveppi á Islandi eru hjá Emil Rostrup 1903, en hann telur þrjár tegundir: Slereum hirsutum, Stereum corti- cosum („vorticosum" er prentvilla) (= St. purpureum) og Stereum tuberculosum (= St. murrai), allar eftir eintökum, sem Olafur Davíðsson hefur safnað, nær eingöngu í Háls- skógi í Fnjóskadal. Poul Larsen, 1932, telur sömu tegundirnar eftir heimild Rostrups, en bætir við Stereum rugosum, sem er eina tegundin, sem hann virð- ist hafa fundið sjálfur. Jörstad, 1962, getur tegundanna St. purpur- eum, og St. rugosum, og loks geta Jrau Finn og Helga Roll-Hansen, 1972—73, um sömu tegundir, og bæta við Slereum sanguinolent- um. Samkvæmt þessum heimildum hafa þá fundist alls 5 tegundir skinnsveppa á Islandi. Sennilega eru þær þó eitthvað færri, því Sl. murrai hefur ekki fundist hér á síðari tímum, og verður því að teljast vafasamur. I nýjustu fræðibókum er ættkvíslinni Stereum skipt niður í nokkrar smærri einingar (Stereum, Chondrostereum, Cystostereum o. fl.), en þar er farið eftir ýmsum smásæjum einkennum. Ekki þykir ástæða til að fara nánar út í þessa skiptingu hér. Islensku skinnsveppategundirnar má aðgreina þannig: ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.