Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 81
son, Sigurður Helgason og Jón Páll
Agústsson.
— Ivjósarsýslu: Olafur Agúst Olafsson.
— Mýrdælinga: Erlingur Sigurðsson.
— Neskaupstaðar: Eyþór Þórðarson.
— Rangæinga: Indriði Indriðason.
— Reykjavíkur: Guðmundur Marteinsson,
Lárus Blöndal Guðmundsson, Kjartan
Sveinsson, Vilhjálmur Sigtryggsson,
Bjarni Helgason, Björn Ofeigsson, Guð-
rún Einarsdóttir, Guðbrandur Magnús-
son, Ragnar Jónsson og Sveinbjörn Jóns-
son.
— Skagfirðinga: sr. Gunnar Gíslason og
Haraldur Árnason.
— Stykkishólms: Guðmundur Bjarnason.
— S.-Þingeyinga: Tryggvi Sigtryggsson,
Hjörtur Tryggvason og Ingólfur Sig-
urgeirsson.
— V.-Barðstrendinga: Vilborg Jónsdóttir.
— Islands: Jónas Jónsson, Oddur Andrés-
son, Kristinn Skæringsson, Bjarni
Helgason, Auður Eiríksdóttir, Hákon
Bjarnason, Hulda Valtýsdóttir, Þórar-
inn Þórarinsson og Snorri Sigurðsson.
Fundargestir:
Halldór E. Sigurðsson, Sveinbjörn Dagfinns-
son, Stefán Guðlaugsson, Kristinn Ó. Guð-
mundsson, Gunnlaugur Briem, Ingvi Þor-
steinsson, Haukur Hafstað, Óli Valur Hans-
son, Ingólfur Davíðsson, Jón Gestur Vigfús-
son, Jón Magnússon, Baldur Þorsteinsson og
Haukur Ragnarsson.
Að lokinni ræðu Jónasar Jónssonar ávarp-
aði landbúnaðarráðherra fundinn með stuttu
en snjöllu erindi en að því loknu bauð Stefán
Gunnlaugsson forseti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar fundarmenn velkomna til Hafnarfjarð-
ar og minntist í því sambandi á hin ágætu
störf Skógræktarfélags Hafnarfjarðar til fegrun-
ar bæjarins og umhverfis hans.
Hákon Bjarnason flutti því næst yfirlit um
ýmsa þætti skógræktarstarfsins og í því sam-
bandi gerði hann grein fyrir því hversu
áfram miðaði að gerð skóggræðsluáætlunar.
Þá gat hann þess að árferði hefði að undan-,
förnu verið óhagstætt skógræktinni, þó sér-l
staklega plöntuuppeldinu. Stefnt yrði að því að
koma uppeldinu nteir og meir inn í plasthús
og að nota þyrfti meir kæligeymslur fyrir
plöntur en verið hefur. Að lokum ræddi hann
um fjárhag skógræktarinnar almennt og taldi
fjárveitingar til liennar allt of litlar.
Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri félagsins
flutti skýrslu um störf héraðsskógræktarfélag-
anna á árinu 1972. Hann gat þess m. a., að
tvö félaganna, Skógræktarfélag Kópavogs og
Skógræktarfélag Kjósarsýslu liefðu sameigin-
lega ráðist í kaup á jörðinni Fossá í Hvalfirði
og væri ætlun félaganna að vinna í samein-
ingu að skógrækt á henni. Störf héraðsfélaganna
hefðu verið svipuð og að undanförnu, frekar
lítið liefði bæst við lönd Jreirra en félögin
hefðu haldið í horfinu hvað gróðursetningu og
hirðingu plantna snerti, þrátt fyrir sívaxandi
fjárhagsörðugleika. Gróðursettu félögin þannig
rösklega 370 þúsundir trjáplantna á árinu 1972.
Þá gerði Snorri grein fyrir afgreiðslu tillagna
síðasta aðalfundar og skýrði frá störfum fé-
lagsstjórnar.
Gjaldkeri félagsins Kristinn Skæringsson las
og skýrði reikninga félagsins. Niðurstöðutölur
á rekstrarreikningi voru kr. 2.402.405,11 og
á eignareikningi kr. 2.862.305,72.
Að loknum hádegisverði töluðu fulltrúar
héraðsfélaganna, sögðu frá verkefnum og störf-
um, svo og hverjar væru fyrirætlanir og óskir
hvers félags. Fór hluti síðdegisins í þetta, en
fram komu tillögur um mörg mál. Var þeim
lýst og síðan vísað til nefndar.
Um kvöldið bauð Hafnarfjarðarbær til
kvöldverðar. Þar fóru fram ræðuhöld og
söngur ásamt afhendingu verðlauna til tveggja
Hafnfirðinga fyrir ötult og gott starf í þágu
skógræktar; þeirra séra Garðars Þorsteins-
sonar og Ólafs Vilhjálmssonar, fyrrverandi og
núverandi formanns Skógræktarfélags Hafn-
arfjarðar. í þessu hófi flutti Olafur Þ. Krist-
jánsson mjög skemmtilegt og fróðlegt erindi
um Hafnarfjörð. Að borðhaldi loknu var stig-
inn dans fram til kl. eitt eftir miðnætti.
Laugardaginn 25. ágúst hófst fundur kl. 10
árdegis og voru þá ræddar tillögur þær, sem
fyrir fundinum lágu.
Að loknum hádegisverði var farið í skoð-
■ unarferð um nágrennið, fyrst í girðingu Skóg-
-íræktarfélags Hafnarfjarðar í Gráhelluhrauni,
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975
79