Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Qupperneq 31

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Qupperneq 31
JÓN JÓNSSON: Heiðmörk, jarðfræðilegt yíirlit Frá sjónarmiði jarðfræðings er það einkum tvennt, sem einkennir Heiðmörk en það eru hin mörgu misgengi og sprungur í berggrunn- inum annars vegar og hraunin hins vegar. Segja má að það séu misgengin, sem öllu öðru fremur móta landslagið í Mörkinni sér- staklega þó vestantil en að austan og sunnan verða hraunin nær einráðandi. Fyrsta jarðfræðikortið, sem gefur nokkra mynd af Heiðmörk, gerði þýskur jarðfræðingur Konrad Keilhack (1925) árið 1924 og kom það út ári síðar. Svo er að sjá sem fáir hafi vitað um þetta kort og þá jarðfræðilegu lýsingu svæð- isins umhverfis Reykjavik og Hafnarfjörð, sem því fylgdi og óhætt er að fullyrða að allur almenningur hefur ekki vitað að það er til. Ekki er mér svo kunnugt um nokkrar tilraun- ir til jarðfræðilegrar kortlagningar á þessu svæði fyrr en að Atvinnudeild Háskólans og Reykja- víkurborg í sameiningu gangast fyrir slíkri kortlagningu. Var það verk unnið sumurin 1954 og 1955 af Tómasi Tryggva- syni (1958) og þeim er þetta ritar og undir stjórn þess fyrrnefnda. Ekki kom þó kortið út fyrr en 1958. Hvað Heiðmörk varðar vant- ar suðvesturhluta þess svæðis á kortið. Það kom í minn lilut að kortleggja suðurhluta svæðis- ins, sem okkur var falið að kortleggja, en því svæði voru af öðrum takmörk sett. Það kom því í minn hlut að kortleggja Heiðmörk og fór ég þá nokkuð út fyrir til- skilið svæði og eru þau drög að jarðfræðikorti enn í mínum fórum. Síðar gerði ég svo sérkort af bergsprungum og misgengjum á svæðinu austan við Reykjavík og Hafnarfjörð og hafa smækkaðar myndir af því verið birtar á nokkrum stöðum (Jónsson 1965, 1973) og kem- ur Heiðmörk þar við sögu. Loks eru hraunin syðst og austast í Heiðmörk sýnd á sérkorti, sem út kom 1972 (Jónsson 1972). Verður nú ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975 vikið að einstökum atriðum í jarðfræði Heið- merkur. Berggrunnur Sem berggrunn verður hér litið á það berg, sem til var fyrir siðustu ísöld og ber þess óræk vitni að jökull hefur yfir landið farið. Verð- ur að því vikið síðar. Samkvæmt þessu er berggrunnur Heiðmerkur grágrýti en á nútíma fræðimáli er tekið að nefna það ólivíntholeit eða jafnvel þóleít að enskri fyrirmynd, sem raunar er hæpin af þeirri einföldu ástæðu að nafnið er upprunn- ið í Þýskalandi og kennt við ákveðna myndun í Saar-Nahe svæðinu í Þýskalandi (Rosen- busch 1907). Grágrýtið er hraun, sem runnið hafa frá eldstöðvum, sem virkar voru á hlý- skeiði eða hlýskeiðum milli ísalda hins kvartera jökultima. Heiðmerkurgrágrýtið, það sem sést á yfirborði, er væntanlega runnið á hlýskeiðinu, sem var næst á undan síðustu ísöld, en talið er að henni hafi lokið á þessu svæði fyrir um það bil 10.000 árum, (sjá síð- ar). Svo virðist sem mest af grágrýtishraunun- um kringum Reykjavík, sé komið frá Borgar- hólum — á Mosfellsheiði (Jónsson 1972c), en ekki sýnist líklegt að Heiðmerkurgrágrýtið sé þaðan komið þó ekki verði auðveldlega séður munur á gerð þess og Borgarhólagrá- grýtisins. Mér sýnist þvert á móti mjög líklegt að á síðasta hlýskeiði hafi verið virk eldstöð, að öllum líkindum dyngja, einhvers staðar á svæðinu vestan við Bláfjöll milli þeirra og Grindaskarða. Þaðan hafa hraun runnið norður og suður, niður um Heiðmörk og út tim nes. Þaðan sýnist mér líklegast að grágrýtið í Heiðmörk sé ættað og eins það, 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.