Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 38

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 38
EYÞÓR EINARSSON: Villtar blómplöntur og byrkningar í Heiðmörk Eftirfarandi skrá yfir villtar tegundir blóm- plantna og byrkninga í HeiSmörk er að miklu leyti byggð á athugun sem höfundur skrárinn- ar gerði á Heiðmerkursvæðinu fyrir Skógrækt- arfélag Reykjavíkur sumarið 1956, en ýmis at- riði í skránni eru þó byggð á athugunum á síðastliðnu sumri og þessu vori. Það þótti rétt að taka einungis í þessa skrá þær tegundir sem vaxa villtar í Heiðmörk, þ. e. sem borist hafa þangað af sjálfsdáðum eða slæðst þangað með mönnum og eru orðnar villtar þar nú þegar, eða auðsætt að verði það á næstunni. Tegundir sem gróðursettar hafa verið þar, eða sáð til af ásettu ráði vegna uppgræðslu mela, eru aftur á móti ekki taldar með, þó sumar þeirra séu einnig á góðri leið að verða villtar þar, t. d. alaskalúpínan, því um þær er fjallað í sérstökum kafla þessarar bókar. í skránni eru alls 152 tegundir, en líklegt er að ekki séu öll kurl komin til grafar enn og nokkrar fleiri tegundir eigi eftir að finnast á Heiðmerkursvæðinu, eða hafi jafnvel þegar fundist þar án þess að mér sé kunnugt um það. Það má í því sambandi geta þess, að á Reykja- nesskagánum öllum hafa fundist villtar um 24 tegundir byrkninga og blómplantna, án þess túnfíflar og undafíflar séu taldir með, og ekki er ósennilegt að einhverjar fleiri þeirra en þegar hafa fundist vaxi í Heiðmörk. Villtar plöntur í Heiðmörk Jafnaætt (LycopocLiaceae): Skollafingur (Huperzia selago (L. Bernh.): Á stöku stað í hraungjótum. Mosajafnaætt (Selaginellaceae): Mosajafni (Selaginella selaginoides (L.) Link.): Víða á móabörðum. Elftingaætt (Equisetaceae): Klóelfting (Equisetum arvense L.): Allvíða. Eski (Equisetum hiemale L.): Á stöku stað innan um lyng. Mýrelfting (Equisetum palustre L.): I mýrinni meðfram Myllulæk. Vallelfting (Equisetum pratense Ehrh.): Algeng. Naðurtunguætt (Ophioglossaceae): Tungljurt (Botrychium lunaria (L.) Sw.): Á nokkrum stöðum á móabörðum. Fjöllaufungsætt (Athyriaceae): Fjöllaufungur (Athyrium filix-femina (L.) Rotli.): f glufu milli stórra steina undir Hjöll- um. Tófugras (Cystopteris fragilis (L.) Bernh.): Víða í hraungjótum. Fjallaliðfætla (Woodsia alpina (Bolton) S. F. Gray.): í smáglufu utan í hraunstrýtu í Hólmshrauni. Liðfætla (Woodsia ilvensis (L.) R. Br.): Á stöku stað í Hólmshrauni. Skjaldburknaætt (Aspidiaceae): Þrílaufungur (Gymnocarpium dryopteris (L.) Newman): Á nokkrum stöðum innan um lyng og kjarr. Einiætt (Cupressaceae): Einir (Juniperus communis L. subsp. nana Syne): Á stöku stað í kjarri. 36 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.