Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Síða 52

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Síða 52
skeið var þar allmargt sauðfé. Árið 1761 barst þangað fjárkláðinn mikli. Endalokin urðu þau, að árið 1778 var allt sauðfé í Gullbringu- og Kjósarsýslu skorið niður og upprætt til þess að útrýma fjárkláðanum. Næstu árin þar á eftir mun skóglendið á Hólmi og Elliðavatni hafa rjett allmjög við, sakir friðar þess, er það naut um tíma. Höfuðból. Árið 1812 selur konungur Páli Jónssyni klausturhaldara Elliðavatn ásamt 2 kúgildum. Kaupverðið var 639 ríkisdalir og 81 skildingur. Litlu síðar mun Páll lrafa keypt Vatnsenda, en hann var seldur, ásamt 4 kúgildum, á 1384 ríkisdali. Þessar jarðir hafa síðan verið í eigu einstakra manna, þangað til Reykjavíkurbær keypti Elliðavatn, en Hólmur er ennþá þjóð- jörð. Á jörðum þessum hefur oft verið búið með mikilli rausn á öldinni sem leið. Áhöfn hefur þvx oft verið mikil og örtröðin í Elliða- vatnsheiðinni og Hólmshrauni farið í vöxt, eftir því sem á öldina leið. Næstur á eftir Páli klausturhaldara bjó Jón hreppstjóri Jónsson á Elliðavatni, fram til 1859, en að honum önduðum settist Benedikt Sveinsson, yfirdómari, að á Elliðavatni, og bjó hann þar fram til 1876. Síðan hafa ýmsir búið þar, en fáir um langt skeið. Útigangur og örtröð. Eftir að Rafveita Reykjavíkur keypti jörð- ina, hefur núverandi ábúandi leigt hluta af henni fjáreigendum úr Reykjavík, og hefur áhöfnin undanfarin ár verið þessi: 1938, 308 kindur; 1939, 310 kindur; 1940, 360 kindur. Fje þessu hefur að miklu leyti verið ætlað að lifa á útigangi í Elliðavatnsheiðinni og hraun- um þar suður af. Enda er nú svo komið, að Elliðavatnsheiðin stórskemmist af uppblæstri á hverju ári. í hvassviðri standa moldarstrók- arnir úr öllum börðum og rofum. Kjarrið hefur færzt nokkuð í vöxt er sauðahald lagð- ist niður á jörðunum í nágrenninu, jafnframt því sem menn tóku að gefa fje meira inni en áður. En á allra síðustu árum hefur kjarrinu farið stórkostlega aftur, einkum í nánd við Elliðavatn. Verði framhald á sauðfjárbúskap á Elliðavatni með sama sniði og verið hefur, er ekki annað fyrirsjáanlegt en að landið stór- skemmist og eyðist mjög þegar á næstu árum. Almenningur og sumarskemmtistaður. Skógarleifarnar í landi Hólms, Elliðavatns og Vatnsenda eru einu kjarrleifarnar, sem nokkuð kveður að í nágrenni Reykjavíkur. Landslag á þessum slóðum er víða undur fag- urt. Bæjarbúa skortir tilfinnanlega almenning, friðsælan stað, þar sem þeir geta varið frí- stundum sínum. Reykjavíkurbær á Elliðavatn og honum hefur boðizt endurgjaldslítið mikil spikla úr Hólmshrauni, Jxar sem mestu skógai'- leifarnar eru. Skógarkjarrið á þessum slóðum mundi taka miklum framförum og verða að skógi, ef friðunar nyti við. Það hlýtur því að vera áhugamál allra bæjarbúa, að hafizt verði handa um friðun þessa lands, og landið jafn- framt gert að sumarskemmtistað handa bæjar- búum. Allt er þá þrennt er. Árið 1909 var vatn leitt úr Gvendarbrunn- um í Hólmslandi til Reykjavíkur. Síðan hafa Reykvíkingar teygað af þeirri heilsulind. Árið 1921 voru Elliðaár beizlaðar og rafmagn leitt til Reykjavíkur. Um langt skeið var vatnið úr landi áðurnefndra þriggja jarða aðalljósgjafi Reykvíkinga. Væri nú vel til fallið að greiða nokkra vexti af þessum fríðindum með jxví að friða landið árið 1941, svo að komandi kynslóðir Reykvík- inga megi teyga að sjer ilminn og svalandi blæ- inn úr „lundi nýrra skóga". (Hinar sögulegu heimildir hjer að framan eru úr óprentaðri ritgerð eftir Einar E. Sæ- mundsen skógarvörð, um Elliðavatn og sögu þess.) 50 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.