Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 57
um á lifandi trjám, og á stubbum. Ekki er
hann talinn meðal þeirra sveppa sem valda
tjóni.
Sveppsins er fyrst getið héðan af E. Rostrup,
1903, eftir eintökum úr Hálsskógi, sem Ólafur
Davíðsson hefur safnað þar. Síðan hefur hann
fundist á ýmsum stöðum á landinu, og í öll-
um landshlutum. Má því ætla að hann sé al-
gengur í skóg- og kjarrlendi um allt fandið.
Phlebia radiata Fr. (geislasveppur).
Hann myndar vaxkenndar, bleikar-rauðgular
skellur með iágum geislalægum, bylgjóttum
hryggjum eða rifjum. Vex oftast á stubbum eft-
ir höggvin tré, nær alltaf á höggfletinum, kem-
ur einnig fyrir á hálffúnum greinum, sem liggja
niðri, og jafnvel á skófum og mosa, í grennd við
þær. Sveppurinn er oft mjög áberandi vegna lit-
arins. Hann er ekki heldur talinn með fúasvepp-
um. Getið af Rostrup 1903 og Larsen 1932,
frá nokkrum stöðum. Hef fundið hann í Vagla-
skógi, þar sem hann virðist algengur.
Að lokum skal hér getið einnar tegundar af
skeenissveppaeettinni (Corticiaceae), en það et'
Gloeopeniophora incarnata (Pers.) v. H. et L.
Hún myndar þunnar, gulbrúnar, skinnkennd-
ar, smáhnökróttar skellur á stubbum og stofn-
um. Þekkist best frá Corticium og Stereum á
því að hafa sérkennilegar, oddmjóar og brodd-
óttar þumlur (kystidiae) í gróbeðnum, sem
sjást greinilega í góðri smásjá. Sveppsins er
getið af Rostrup 1903 og hefur síðan fundist
á ýmsum stöðum í ýmsum landshlutum. Sjálf-
ur hef ég fundið liann í Gróðrarstöðinni á
Akureyri.
Summary
Icelandic species of Stereaceae and Radulaceae
Of the genus Stereum Fr. the following
species have been found in Iceland: St. rugos-
um, St. hirsutum, St. purpureum and St. san-
guinolentum. Stereum rugosum is a common
species in the birch copses all over the country.
St. hirsutum and St. purpureum have been re-
corded frorn the North and the East, and St.
sanguinolentum only from a park in Eyja-
fjörður, growing on Pinus sp.
The occurrence of Slereum murrai has been
reported by Rostrup 1903, but the collection
seems to be another species.
Radulum orbiculare is of common occur-
rence and Phlebia radiala has been found in
some places.
Heimilclir
Ferdinandsen, C. og C. A. Jörgensen: Skov-
træernes Sygdomme. Kh. 1938—39.
Larsen, P.: Fungi of Iceland. Botany of Ice-
land. Vol. 2, part 3. Kh. 1932.
Lindau, G.: Die höheren Pilze. Kryptogamen-
flora fúr Anfánger. Bd. 1. Berlin 1928.
Roll-Hansen, Finn og Helga: Stutt yfirlit um
nokkra trjásjúkdóma og fúasveppi á Is-
landi. Arsrit Skógræktarfélags ísl. 1972—
73.
Rostrup, E.: Islands Svampe. Botanisk Tids-
skrift, 25. Bd. 1903.
LEIÐRÉTTING skrá lyrir skrúðgarðssjóð Aragerðis í Vogum.
Lesendur eru vinsamlega beðnir velvirðingar
I síðasta ársriti féll niður í efnisylirliti vísun á þessu.
til efnis á bls. 70, en það fjallar urn Skipulags- Ritstj.
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975
55