Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 75

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 75
hefur, og að þá lægju fyrir nauðsynlegar upp- lýsingar um þau atriði, er tryggt gætu örugg- ari og hetri plöntuafhendingu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að miklar verðhækkanir hafa orðið á trjáplöntum að undanförnu, auk þess sem söluskattur hefur hækkað allverulega. Skógræktarfélögin hafa skiljanlega borið sig illa undan þessu, einkum þau, sem hafa litla möguleika til fjár- öflunar. Að vísu hafa félögin á móti þessu fengið afslátt af plöntum, sem oftast hefur numið þriðjungi plöntuverðs. Þrátt fyrir þessa ívilnun fer hlutfallslega meira og meira af tekj- um félaganna til plöntukaupa og af þeim sök- um ltefur gróðursetning þcirra minnkað veru- lega. A sömu sveif leggst stóraukinn kostnaður við gróðursetningu, ekki síst sakir þess að vinna sjálfboðaliða fer minnkandi. Það verður að horfast í augu við þá staðreynd að af er sú tíð, er sjálfboðaliðar fóru í tugatali til gróðursetningarstarfa, jafnvel dag eftir dag á hverju vori. Er svo komið, að þessi þáttur félagsstarfsins er hverfandi móts við jrað sem áður var. Þó eru frá þessu undantekningar og á það við sum félög úti á landsbyggðinni; félög sem einfakllega hafa ekki ráð á að kosta til gróðursetningar. Gera má ráð fyrir að framhald verði á þess- ari þróun a.m.k. þegar litið er til næstu ára. Hinsvegar er ekki auðsætt hvernig félögin geti staðið straum af sívaxandi gróðursetningarút- gjöldum. Fljótt á litið virðast valkostirnir ekki margir. Beinast liggur við að félögin dragi enn frekar úr gróðursetningu plantna. Væri miður farið, ef grípa jryrfti til þess neyðarúrræðis, bæði sakir mikilsverðs þáttar félaganna í skóg- ræktarstarfinu og þess hve gróðursetning skóg- ræktarinnar í heild hefur dregist saman að undanförnu. Heppilegra væri að auka niður- greiðslur á plöntum með vindlingafé Land- græðslusjóðs, annaðhvort með beinum fjár- framlögum til félaganna, með hliðsjón af plöntukaupum þeirra, eða auka frekar styrk sjóðsins til plöntuuppeldisins. Fyrri kosturinn virðist heppilegri, þar sem hann ætti að örva plöntukaup félaganna, auk þess, sem þetta stuðlaði að réttlátari skiptingu styrks til jreirra. Að auki myndi slík tilhögun veita gróðrar- stöðvunum visst aðhald, bæði hvað varðar framleiðslu og verðlagningu plantna. Nú myndu Styrkur til skógrœktarfélaga 1973. Skógræktarfélag Akraness .......... kr. 8.000 — Árnesinga ..................... — 110.000 — Austurlands ....................— 20.000 — A.-Húnvetninga ................ — 56.000 — A.-Skaftfellinga .............. - 22.000 —■ Bolungarvíkur ................. — 24.000 — Borgfirðinga .................. - 112.000 — Björk ......................... - 14.000 — Dalasýslu ..................... — 27.000 — Eyfirðinga .................... — 125.000 — Hafnarfjarðar ................. — 86.000 — Heiðsynninga .................. — 20.000 — ísafjarðar .................... — 68.000 — ICjósarsýslu................... — 25.000 — Kópavogs ...................... — 115.000 — Mýrdælinga .................... — 28.000 — Neskaupstaðar ................. — 25.000 — N.-Þingeyinga ................. — 15.000 — Rangæinga...................... — 45.000 — Reykjavfkur ................... — 125.000 — Seyðisfjarðar ................. — 8.000 — Siglufjarðar .................. — 17.000 — Skagfirðinga .................. — 115.000 — Stykkishólms .................. — 46.000 — Strandasýslu .................. — 8.000 — Suðurnesja .................... — 8.000 — Súgandafjarðar ................ — 20.000 — S.-Þingeyinga ................. — 110.00 — V.-Barðstrendinga.............. — 25.000 — V.-ísfirðinga ................. - 23.000 — íslands ....................... — 550.000 Alls kr. 2.000.000 e.t.v. margir óttast, að með slíku fyrirkomu- lagi gætu félögin dregið úr fjáröflun heima- fyrir. Eg hygg hinsvegar, að þetta yrði félög- unum hvatning til frekari dáða og gæfi þeim jafnframt aukna möguleika á að sinna öðrum nauðsynlegum störfum, sem sakir fjárskorts hafa orðið útundan. Hér hefur oft áður verið á það bent, að þörfin fyrir aukna hirðingu plantna eykst ár frá ári, eftir því sem bætist við nýgróður- setningar. Því miður hefur þetta ekki tekist og er því víða í óefni komið. Til dæmis um þetta var ekki varið meira en kr. 140 þúsundum til ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975 73

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.