Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 77
HAUKUR RAGNARSSON:
Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins
Ársskýrsla 1973
I. INNGANGUR
Sú breyting varð á föstu starfsliði stöðvar--
innar, að Evert Ingólfsson hætti störfum 20.
ágúst, og vil ég nota þetta tækifæri til þess að
þakka honum ágæta samvinnu á liðnum árum.
Annar garðyrkjumaður mun væntanlega taka
til starfa hér 1. apríl.
Lausráðið verkafólk starfaði hér að venju yfir
sumartímann. Vinnuvikur þess voru alls 77, og
skiptust þannig eftir mánuðum: maí 8, júní
í Haukadal og á Hallormsstað. Jafnfjölmenn-
ur hópur íslendinga dvaldi í Opplandfylki í
Noregi. Stóð skiptiferðin yfir í hálfan mánuð;
var farið I. ágúst og komið heim þann 15.
Þóttu ferðir þessar takast vel.
Slíkum hópferðum fylgir að sjálfsögðu mikill
kostnaður og ærin fyrirhöfn. Reynt hefur verið
að mæta kostnaði á ýmsan hátt, t. d. með far-
gjöldum og vinnuframlögum þátttakenda.
En reynslan liefur samt orðið sú, að erfitt
hefur reynst að ná endum saman. Verst hefur
þetta komið við pyngju þeirra skógræktar-
félaga, sem tekið hafa á móti norðmönnum
til dvalar. Þá virðist erfitt að brúa þetta bil svo
nokkru nemi með auknum störfum þeirra
hér. Afköstin voru t. d. aðeins um 60 þúsund
gróðursettar plöntur að lokinni þessari ferð
og afar misjöfn frá stað til staðar.
Því virðist nauðsynlegt að endurskoða skipu-
lag slíkra ferða með tilliti til kostnaðar.
Væri e. t. v. hægt að draga nokkuð úr kostnaði
með því að fækka dvalarstöðum og hækka
fargjöld og er þó hvorugur kosturinn góður.
Þá hefur komið til tals að fækka ferðum
frá því sem verið hefur, en það virðist ekki
koma til greina a.m.k. í nánustu framtíð, ]rví
greinilegur áhugi virðist vera hjá norðmönn-
um að fjölga þeim frekar en fækka.
29, júlí 17, ágúst 17, september 4 og desember
2. Að venju var illmögulegt að fá verkafólk fyrr
en í júníbyrjun þegar skólunum lauk.
II. TILRAUNIR Á MÓGILSÁ
Veðurathuganir. Auk venjulegra veðurathug-
ana og búveðurfræðiathugana, voru gerðar hita-
mælingar á þremur stöðum í mismunandi hæð
í Esjunni nær allt árið. Þessum mælingum var
lýst í síðustu ársskýrslu. Niðurstöður veðurat-
hugana liggja ekki fyrir ennþá.
Vöxtur mátti heita í meðallagi. Norðan-
áttir voru með minna móti, svo sem verið hafði
tvö undanfarin ár. Utjörð spratt lengur fram-
eftir sumri en venjulegt er og ekki eins nauð-
bitin og verið hefur á undanförnum árum.
Sáning og dreifsetning. I plastgróðurhús var
sáð eftirfarandi tegundum og kvæmum í 70
fermetra:
11 grenitegundum af 60 kvæmum
3 þallartegundum af 11 kvæmum
3 furutegundum af 14 kvæmum.
I gróðurhúsið var sáð smásýnum af 15 furu-
tegundum, 3 grenitcgundum og 1 lerkitegund
auk smásýna af ýmsum lauftrjám og runnum og
jurtum.
Dreifsetning var lítil, nær eingöngu sitka-
greni, sem fyrirhugað er að nota í skjólbelti.
Stiklingarcektartilraunir. Settir voru í gróð-
urhúsið 900 sitkagrenistiklingar, og mynduðu
60% þeirra rætur. 1600 birkistiklingar af úrvals-
trjám voru settir og rættust helmingur þeirra.
Tilraunir voru gerðar með ýmsar aðrar tegundir
barrtrjáa, svo sem fjallaþin og lerki en árangur
lítill. Þá voru settir hér seljustiklingar og rót-
arstildingar af Idæösp frá Norður-Noregi, sem
Sigurður Blöndal hafði safnað liaustið 1972.
Af báðum tegundunum rættust nógu tnargir
stiklingar til þess, að hægt verði að fjölga
þeim fljótlega í þó nokkrum mæli.
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975
75