Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 69

Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 69
er gefið flatarmál þessara land- gerða innan fyrrnefndra hita- marka. Augljóslega getur birki ekki vaxið á öilu landi innan þessara hitamarka. Birki getur t.d. ekki vaxið í blautum flóum eða á berum klöppum. Þótt birki vaxi ekki f flóum getur það vaxið f tiltölulega þurru mýrlendi. Sama á við margar af þessum land- gerðum að birki getur vaxið á hluta landsins. f töflu 2 er giskað á hve hátt hlutfall lands í hverri landgerð gæti borið samfellt birki. Haft var í huga að það teldist samfellt birki ef a.m.k. 30% lands gætu hulist trjákrónum. Út frá töflu 1 og 2 er líklegast að birki gæti þakið 2.587.000 ha (25,1%) landsins. Lágt mat er 1.506.000 ha (14,6%) og hátt mat 3.239.000 ha (31,3%). Ýmsir höfundar hafa metið útbreiðslu birkisins við landnám (tafla 3). Oft er litið svo á að möguleg útbreiðsla birkisins miðað við náttúruleg skilyrði og útbreiðsla þess við landnám sé eitt og hið sama. Það er að vfsu of mikil einföldun. Engu að sfður er gagnlegt að bera saman fyrr- nefnda niðurstöðu um mögulega útbreiðslu birkis út frá núverandi loftslagi og jarðvegi og mat á útbreiðslu við landnám. Niður- staða þessarar greinar er svipuð og höfunda á seinni hluta 20. aldar og líklegasta gildið nánast hið sama og mat Ingva Þorsteins- sonar frá 1972. í vinnunni við íslandshluta náttúrulegs gróðurkorts Evrópu bárum við Eyþór og Guðmundur 7,6 og 9,2°C sumarhitakortin við ýmsar heimildir sem okkur voru tiltækar um fundarstaði birkis og merki um birki frá fyrri tíð, svo sem kolgrafir. í öllum tilvikum voru efstu birkileifar innan 7,6°C markanna. Vfða voru þau nærri 7,6°C mörkunum, svo sem í ná- grenni Langjökuls. Lausleg athugun benti til að 7,6°C mörkin aðgreindu meginskil í lífríki landsins, þ.e. mörkin milli lífríkis tempraða og kuldabeltisins. Töluverður hluti núverandi birkiskóglendis (mynd 4) og menja um skóga frá fyrri tíð voru utan 9,2°C markanna. Þótt þessi mörk séu dregin við jaðar 2,5 m birkis í Noregi þá aðgreindi 9,2°C lfna ekki kjarr og hávaxnari skóg á íslandi. Meginhluti kjarrlendis (lægra en 2 m hátt) var innan þessara hitamarka. Norsk hita- mörk birkiskóga höfðu þvf lítið forspárgildi um útbreiðslu birkis hér á landi eða hæð trjánna í skógunum. í Skandinavíu eru trjámörk birkisins yfirleitt dregin við tveggja metra hæð hæsta trjá- stofns á rót og þau mörk afmarka þar norðurjaðar tempraða belti- sins.27 Til fjalla í Skandinavíu er birkiskóglendið yfirleitt um 2-3 metra hátt á útbreiðslumörkum sfnum (myndir bls. 60-61). Þar fyrir ofan er sjaldan annað en strjálar plöntur upp að ystu mörkum. Birkikjarr er óvíða að finna og þá helst við ströndina móti opnu hafi.28 Þessi staðreynd ásamt upplifun mannsins af skóginum er grunnurinn að baki tveggja metra trjá- og skógar- markanna. í skóglendi lægri trjáa en mannhæð sést yfir trjá- krónurnar og landið virðist opið. Hvelfist trén yfir höfuð finnst þeim hinum sama hann vera í skógi. Tveggja metra mörkin eru einfaldlega mannhæð rúnnuð að næsta heila metra. Framan af 20. öld voru skógarmörk birkisins í Skandinavíu oft miðuð við mannhæð. Sem dæmi má nefna rannsóknir Holmgrens á endur- nýjun birkiskóganna í Norður- Skandinavfu.29 Á íslandi hefur birkivaxið land verið kallað skógur óháð hæð birkisins. Hæð náttúrulegs birkiskógar fer eftir 1) aldri skógarins, 2) vaxtarhraða, 3) Mynd 7. Breytingar á útbreiðslumörkum birkis á íslandi frá ísaldarlokum. Ljósgráa svæðið sýnir It'klegar breytingar á skógarmörkum miðað við að birkið nemi ný lönd með frœsáningu en endurnýist með teinungi. Dökkgráa svæðið sýnir skógarmörkin miðað við að birkið nemi ný lönd og endurnýist með fræsáningu. Forsendum er lýst nánar í texta. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.