Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 93
raunar um beina tengingu milli
Nýfundnalands og íslands að
ræða, þar sem íslensk skip hafa
haldið til veiða undan ströndum
Nýfundnalands. Einnig teljast
báðar eyjarnar nokkuð vinda-
samar. Þegar kemur að skógum
skilja hins vegar nokkuð leiðir, en
um þriðjungur Nýfundnalands er
skógi vaxinn, samanborið við um
1% hérlendis. Árlegur vöxtur trjáa
í skógum Nýfundnalands er hins
vegar ekki alltaf mikill saman-
borið við ýmsa aðra staði. Til að
mynda vex skógur þar vfða mun
hægar en hérlendis, en er þó
undirstaða fyrir töluverðan iðnað
og framleiðslu, ásamt því að
skógarafurðir eru mikið notaðar
til „heimabrúks" almennings. Er
það atriði sem íslenskt skógarfólk
mætti hafa í huga þegar fram-
tíðarnýting skóga hérlendis er
rædd. Áhugavert var líka að
kynnast þvf í ferðinni hversu
góðir gestgjafar Nýfundlendingar
eru, en sem dæmi er það ekki á
hverjum degi sem svona stórum
hópi ferðalanga er ítrekað boðið í
mat og kaffi.
þakkir
Greinarhöfundar vilja þakka
ferðafélögunum fyrir ánægjulega
samveru í ferðinni, sérstaklega
ber að þakka þeim sem sam-
þykktu að halda dagbók í ferð-
inni. Einnig viljum við þakka
Sandy Robertson fyrir sérlega
góða leiðsögn, skipulagningu
ferðarinnar og sekkjapípuleik.
Alan Masters, skógræktarstjóra
Nýfundnalands og Labrador, eru
færðar þakkir fyrir aðstoð og
aðkomu fjölmargra starfsmanna
skógstjórnar fylkisins. Sérstak-
lega viljum við þakka Bill Clarke
fyrir að vera okkur innan handar
allan tímann. Einnig á Wayne
Kelly þakkir skildar fyrir aðstoð í
ferðinni. Yfirvöldum sveitar-
félaganna Mount Pearl og
00
Bill Clarke, skógfræSingur hjá skógstjórn Nýfundnalands, sem annaSist undirbúning og
framkvæmd ferSarinnar ísamvinnu viS Sandy Robertson og fylgdi okkur allan tímann.
HEIMILDIR
Government of Newfoundland and Labrador, 2005: Newfoundland
and Labrador Statistics Agency. URL: http://www.nfstats.gov.nf.ca/.
Skoðað október 2005.
lónas Kristjánsson, 2005 : LandnámsmaðurVesturheims-
Vínlandsför Þorfinns karlsefnis. Háskólaútgáfan, Reykjavík.
Memorial University of Newfoundland og C.R.B. Foundation, 2003:
Newfoundland and Labrador Heritage. URL:
http://www.heritage.nf.ca/home.html. Skoðað október 2005.
Parks Canada, 2005: Gros Morne National Park of Canada. URL:
http://www.pc.gc.ca/pn-np/nl/grosmorne/index_e.asp. Skoðað
október 2005.
Páll Bergþórsson, 1997: Vínlandsgátan. Mál og Menning, Reykjavfk.
Prowse, D.W., 2002: A History of Newfoundland. Boulder
Publications, Portugal Cove-St. Phillips, Newfoundland.
Rocky Harbour Community Network Centre, 1998: Gros Morne - A
Cultural History. URL: http://collections.ic.gc.ca/grosmorne/. Skoðað
október 2005.
Wikimedia Foundation Inc., 2005: Wikipedia, The Free Encyclopedia.
URL: http://en.wikipedia.org/wiki/Main_Page. Skoðað október 2005.
Ýmsar munnlegar heimildir, mest gestgjafar okkar í ferðinni og þá
einna helst Alexander Robertson og Bill Clarke. Einnig var stuðst
við dagbækur skipaðra skrásetjara í ferðinni. Arnlínar Óladóttur,
Björgvins Eggertssonar, Brynjars Skúlasonar, Böðvars
Guðmundssonar og Ragnhildar Freysteinsdóttur.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
91