Skógræktarritið - 15.10.2005, Qupperneq 110
Ályktun 2
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli dag-
ana 27.-28. ágúst 2005, hveturtil
þess að skoðað verði, með þar til
bærum aðilum, slökkviliðum,
hjálparsveitum o.fl. hvernig
brunavörnum verði best fyrir
komið og með hvaða hætti sé
hægt að bregðast við eða hvernig
staðið verði að forvörnum til
þess að ekki komi til stórbruna á
skógarsvæðum.
Ályktun 3
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli
dagana 27.-28. ágúst 2005, beinir
því til Alþingis að setja með
lögum ákvæði um almenna
vörsluskyldu búfjár, sem geymdu
þó heimildirtil undanþága, t.d.
af landfræðilegum ástæðum.
Ályktun 4
Aðalfundur Skógræktarfélags
fslands, haldinn á Lýsuhóli
dagana 27.-28. ágúst 2005, fagnar
vandaðri úttekt Ríkisendur-
skoðunar, frá því í desember
2004, á framkvæmd skógræktar-
laga. Fundurinn samþykkir að
Fra' kvöldvökunni á Lýsuhóli. Sandy Robertson er ekki aSeins frábær sekkjapípuleikari.
Hann sýndi undraverda takta ílaginu „Land ofHeart's Desire". Mynd: )FG.
Ályktun 7
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli dag-
ana 27.-28. ágúst 2005, samþykkir
að beina því til Skógræktarfélags
íslands og Rannsóknastöðvar
Skógræktar ríkisins á Mógilsá að
hafin verði rannsókn á skógrækt
til útivistar með það að markmiði
að bæta þjónustu við almenning
á skógræktarsvæðum.
Hér Mjómar kröftugur söngur skógræktarmanna um nýja samkomurjóSriö í HofsstaSaskógi.
Mynd: B|.
beina því til Alþingis og Land-
búnaðarráðuneytis að hraða
endurskoðun skógræktarlaga í
samræmi við niðurstöður
skýrslunnar, Mikilvægt er að í
nýjum lögum verði styrkt
starfsumhverfi skógræktar-
félaganna og viðurkennt hlutverk
þeirra í skógrækt í almannaþágu.
Þar verði einnig bætt inn nýjum
lagabálki um skógrækt í
sveitarfélögum.
Ályktun 5
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli
dagana 27.-28. ágúst 2005, beinir
þvf til stjórnar Skógræktarfélags
fslands að félagið aðstoði skóg-
ræktarfélög vegna samskipta við
sveitarfélög eða aðra landeig-
endur um ræktuð svæði skóg-
ræktarfélaganna.
Ályktun 6
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli
dagana 27.-28. ágúst 2005, lýsir
fullum stuðningi við framkomnar
hugmyndir um „Hekluskóga”,
sem er verkefni um ræktun kjarr-
og skóglendis á Heklusvæðinu,
til varnar gegn sandfoki og land-
eyðingu.
108
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005