Freyja - 01.07.1905, Page 20
3ió
FREYJA
Aflraunir kvenna.
VII. 12.
Mrs. Gilman, ameríkanskur rithöfundur, í ræí5u á kvenna
samkomu aö Womens Institute (kvennaskóla) í Victoria, hélt því
fram að konur væru ekki nœrri eins fallegar og karlmenn. Hún
narraöist aö sumum tilburðum kvenna. ,,Þegar kona hleypur, “
segir hún, ,,hristist hún og vaggar, klifraö getur hún ei, og það
er tekið í handlegginn á henni og henni hjálpað upp og niður
litla mishœð, ég kalla það móðgandi hjálpsemi, nema konan hafi
tréfót. Það er engin ástæða fyrir konu að hika svo við girðingu
eins og hún gjörir, það er létt að lifta sér yfir, þó í pilsi sé, og það
er lang léttasta og kvennlegasta aðferðin að komast yfir. ‘ ‘
—Úr Voice.
Fjaðraðar flugvélar.
W. E. Irish skrifar um þetta í Scientific American og lýsir
nokkuð nákvœmlega flugvélum sem séu stœltar eftir fluglum, að
iögun og með fjöðrum hagnýttum á tilbúna vœngi. Þessi vél
pefnist Aeroplane og hafa verið smíðaðar á ýmsum stærðum, frá
þeim er bera eina únsu til þeirra er bera þúsund pund.
Þessar vélar hafa meiri þunga en vanalegir loftbátar, og nokk-
uð þyngri en ioftið, þar eð þyngdin er nauðsynleg til að gefa vél-
inni hraða. Með þessum vélum fullyrðir höfundurinn að meigi
ná því að sigla hvert sem vill um loftið, bæði undan vindi og á
hlið, og jafnvel á móti.
Það hafa verið smíðuð ,,model“ svo út búin að mátti einnig
sigla þeim á vatni og líka á hjólum fyrir þurrt land. Eru loftfara-
smiðirnir að reyna sig á að fullkomna hugmyndina upp úr þessari
og útbúa reglulega flugvél sem geti flogið eins og flugl. Erfiðast
þykir þeim viðfangs að ná því að koma henni á flugið nógu hátt
frá jörðu.