Freyja - 01.12.1905, Síða 19

Freyja - 01.12.1905, Síða 19
VIII. 5- FREYJA 114 en heiöingjar læddust heygöir og sorgmæddir til heimkynna sinna. Akveðnir í að láta ekki misbjóða guði sínum mótstöðuíaust söfnuð- ust heiðnir menn þó saman og œddu á móti fjandmönnum sínum hrópandi: ,,Látum oss fyrirfarast ineð guði vorum!“ En nú voru kristnir orðnir í meiri hluta og erkibyskupinn með krossmark í hendi œddi upp að musterinu og eftir honum öll fylking munkanna og annara kristinna manna og tóku nú með ákefS mikilli að brjóta niður stoðir og styttur hinns forn-helga staðar. Þegar þeir komu að guðinum sjálfum, greip ógn og skelfing allra hjörtu svo jafnvel munkarnir litu óttaslegnir undan, og eng'n var svo vogaður, að hann vildi greiða fyrsta höggið, af ótta fyrir því, að Serapis, hinn voldugi guð,léti ekki slíka svívirðu óhegnda. Þar kom þó, að her- maöur nokkur gekk fram og greiddi guðinum högg mikið á vangann með kylfu sinni, en hann brá sér hvergi né heldur missti sólin birtu sína og ekkert náttúrulögmál raskaðist. Við þetta óx kristnum mönnum ásmegin, lögðu þeir nú að guðinum fyrir alvöru, brutu hann í ótal parta og drógu svopartana út á götuna til að storka sem mest dýrkendum hans. Þegar heiðingjar sáu hve ósjálfstœð- ur guð þeirra var, snörust þeir til kristni í þúsunda tali. Musterið var rifið niður og kyrkja reyst á rústum þess. Næst réðust þeir á bókahlöðuna, tæmdu hillurnar, eyðilögðu bókfellin og annað það er geymdi menningu liðinna alda og Grikkir cg Rómverjar höfðu þar samansafnað. A missi þessum bíður heimurinn aldrei bœtur. Eftir Theophilis erkibyskup kom St. Cyril frændi hans. I stað þess sem sá fyr nefndi ofsókti og eyddi hinumdauðu minjum heið- innar siömenningar,réðist hinn síðari á inar lifandi minjar hennar svo sem skáld, frœðimenn og heimspekinga. I þá tíð bar mærin, Hypatia œgishjálm yfir alla frœðimenn og heimspekinga samtíðar sinnar í Grísk-Rómverskri menntun, í Alexandríu. Faðir hennar var Theon, heimspekingur og stærðfræðingur, og hefði lærdómur hans og snilld aflað honum frægðarorðs, sem lifað hefði gegnum aldirnar fram til vorra tíma, hefði snilld og lærdómur dóttur hans ekki tekið hans,eins mikið fram.ogljómi sólarinnar birtu tunglsins. Hypatia var fram úr skarandi gáfukona, með óbilandi viljaþreki er sýndi sig í því, að hún á bernskualdri og þvert ofan í allar sið- venjur, ruddi sér braut að menntalindum samtíðar sinnar. (Frh.)

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.