Freyja - 01.06.1908, Page 17

Freyja - 01.06.1908, Page 17
X. II—12, tREYJA 273 | $ BARNAKRÓIN. $■ ^ Fiski-beitan. Eftir Mary H. Vorse. (Framhald frá síðasta blaði.) „Það hefði verið betra góða mín, að þö hefðir verið minni því mér þj'kir alveg eins vænt um þig og1 hinar konurnar mfnar,‘‘ heyrðiégCunningham segja. ,,En nö verð ég að biðja pabba að byggja annann kofa handa þér,“ Cunningham var fyrirmyndar eiginmaður. Þegar hann fór í einhvern ímyndaðan íeiðangur kyssti hann allar konurnar sín- ar jafn innilega. Þessi 5 ára drengur var svo hugmyndaríkur og umhyggjusamur að margir eldri menn hefðu grætt töluvertá því að r.aka hann sér til fyrirmyndar. Ástæðan fyrir heimilishamingju Cunninghams var sú, að hann helgaði heimilinu og konunum sínum allan tíma sinn. Meðan hann gjörði það, gekk allt vel. En œfintýra ástríða og hetju-dýrk- un sundraði að lokum þessari paradís hans, eins og það hefir svo oft sundrað paradís eldri og reyndari manna. Einn góðan veðurdag sá ég hvar Cunningham sat niðri í fjöru á bát sem lá á hvoifi og hálfur á floti. /Tann var með fiskilínu og boginn títuprjón í önguls stað. Þetta var einn af merkisdögum æsku hans, því nú komst hann fyrst í kynni við blóðsugur. lleyndar var það af tilviljun að ég komst í kynni við kvikindi þessi og skeði það þannig: María systir kom æðandi inn með önd- ina í hálsinum 0g stamaði þessum orðum út úr sör: „Ekki nema það, að hafa þ a ð 1 i f a n d i í blikkbauk niðri I ísskápnum! Hefir nokkur maður nokkurntíma heyrt annað eins? Jim verður að henda því út,“ skrækti hún og hrópaði svo á Jim til að henda bauknum. En Jim var ekki á því. „Þetta er beitan mín 0g mér dettur ekki S hug að henda henni," sagði hann. „Það er hvað? ‘ hrópaði María alveg æf. „Beitan mín,“ sagði jim blátt áfram. „En hvers vegna hefir þú það í ísskápnum.sonur minn?“ sagði ég þá hún hafði gjört okkur aðra atrennu fyrir óþrifnað, og að líða lifandi kvikindi í skápnum.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.