Freyja - 01.09.1909, Qupperneq 29

Freyja - 01.09.1909, Qupperneq 29
XII. 2.-3- FREYJA 53 mér upp þegar ég lá, og hú n sagði að sér þætti vænt um þig mím vegna, og hún kallar þig æfinlega hann. Er þaS ekki gaman?“ Og svo hló hann hátt og hjartanlega og laföi báð- ar krummurnar á axlirnar á henni eins og hún vœri gamallog góður félagsbróðir. „Jú, ég býst við því að henni bregðií brún, “ sagði hún seinlega. „En hvenœr kcmur hún?“ , ,Næstu viku. Ég œtla með þig til hennar, þvf mér er ant um að þið, unnusta mín og bezti vinur minn verðið góð- ir vinir, En mér finnst óhugsandi að koma með hana hingað, það vœri ekki samboðið henni einhvernveginn ekki við henn- ar hæfi.—“ Hann þagnaði hálf ráðalaus og leit í kringum sig á byss- una og veiðimannabúninginn sinn ábak við hurðina,grfmur og ýmiskonar leikarbúninga hangandi á veggjunum, fiðluna standa upp á endann við legubekkinn og uppi yfir honum hillu fyrir hatta og þar fyrir neðan slíður fyrirnokkrar tóbakspípur. Og síðast hvíldu augu þeirra beggja, því hún fylgdi augnaráði hans eftir, á matarleifunum og tóma bjór-glasinu á borðinu. Ilún stóð hastarlega upp, kveiktií sígarettu og sagöi. ,,Nei, auðvitað geturðuekki komið með hana hingað, það er ekki við hennar hœfi. “ Hann leit framan í hana eins og til að biðja afsökunar. ,,Ég meina ekki að hún þykist of góð til þess. Hún er bara —bara einhvernvegin öðruvísi, svo-svo kvenlega kvenleg og ósjálfstœð og-og svo dœmalaust falleg. En ég má ekki sitja hér lengur og syngja um hana lofgjörðarsálma. Ég vissi að þú myndir samgleðjast mér, og ég máttj til að segja einhverj- um frá hamingju minni, en vissi af engum nema þér, sem ekki misskildi mig. Þú misskilur migekki?“ Hann var stað, inn upp og horfði spyrjandi á hana. ,.Nei, ég misskil þig ekki, “ sagði hún með einkennilegri áherzlu og stóð þráðbein eins og hermaður á verði. ,,Jœja þá, góða nótt, gamli, góði félagi. Ég sœki þig á mánudagskvöldið, ’ ‘ sagði hann. ,,Góða nótt, Bob,“ sagði húnseinlega, og stóð graf kyr þar til seinasta hurðin skall áhæla honum, Þá hneig hún of-

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.