Helgarpósturinn - 11.05.1979, Page 5
—helgarpósturinrL. Föstudagur 11. maí 1979
5
„Höfum aldrei ráðið
almennilega við þetta
Rætt við Baldur Möller og Ólaf Walter Stefánsson í dómsmálaráðuneytinu
Greinin I siðasta Helgarpósti
um spilakliibbinn við Hverfisgötu
vakti talsverða athygli — og
nokkrar spurningar. t greininni
kom m.a. fram að i klúbbnum er
áfengi til sölu, og þar spila menn
uppá peninga. Klúbburinn er
lokaður einkaklúbbur um 150
manna sem greiða fast árgjald,
sem siðan fer í að borga húsaleigu
og önnur fjárútiát vegna
starfseminnar. Afengið er hins-
vegar borgað með svokölluðu
tappagjaldi.
1 greininni var að sjálfsögðu
ekki lagður neinn dómur á hvort
um löglega starfsemi væri að
ræða , en allmargir hafa siðan
komið að máli við Helgarpóstinn
og spurst fyrir um lagalegu hlið-
ina. Þvi var haft samband við
Baldur Möller, ráðuneytisstjóra i
Dómsmálaráðuneytinu, og hann
inntur álits á hvar þessir klúbbar
stæðu lagalega.
„Þetta er gamalt vandamál”,
sagði Baldur, „og nokkuösem við
höfum aldrei ráðið almennilega
við. Þetta hefur ekki veriö mikið
til umræðu meðal almennings,
enda um að ræða lokaða klúbba-
starfsemi. Reyndar falla Odd-
fellowogFrimúrararundir þenn-
an hatt. En það er óljóst hvað við
getum gert. Kannski verður þessi
grein ykkar til þess að þetta verð-
ur skoðað uppá nýtt”.
Baldur visaði siðan á ölaf Walt-
er Stefánsson, skrifstofúsljóra i
dómsmálaráðuneytinu, sem hef-
ur með skemmtanamál að gera i
þvi ráðuneyti.
„Við höfum ekki næga
vitneskju til að geta nokkuð sagt
um hvort starfsemi þessa klúbbs
er lögleg, sagði ölafur. ,,En þetta
er vitaskuld ekki i fyrsta skipti
sem mál þessu lik koma upp. Til
dæmis var i þessu sama húsnæði
áður annar klúbbur, og annar
klúbbur var til sem hét Asa-
klúbburinn. Það var fyrir daga
næturklúbbanna. Ég held að lög-
reglan kanni af og til starfsemi
þessara klúbba, og eins og fram
komi igreininni i Helgarpóstinum
fékk saksóknaraembættið skýrslu
frá lögreglunni um þennan klúbb
við Hverfisgötuna fyrir þremur
árum, en sá ekki ástæðu til frek-
ari aðgerða.”
„tJt af fyrir sig er vinveitinga-
sala að sjálfsögðu ekki heimil án
sérstaks leyfis. Það er alveg
klárt. Með hvaða hætti áfengi er
veitt I þessum klúbbi þekki ég
ekki nákvæmlega. Þetta teist
varla almennur veitingastaður,
og hvort hægt er að kalla þetta
einkaheimili er vafamál. Þetta er
greinilega einhverstaðar nálægt
mörkunum”.
„Ég get sagt það sama um
þetta og félagsskap, eins og
Oddfellow og Frimúrara, að ég
hef heyrt sagnir um að þar sé
veitt vln. Mér er hinsvegar ekki
kunnugt um nein kærumál i sam-
bandi við þá, né meðferðar lög-
reglu. Það hefur hreinlega enginn
borið það við að kanna þessi
mál”.
„Það er ekki bannað að spila
uppá peninga”, sagði Ölafur þeg-
ar spurt var um fjárhættuspils-
hliðina. Það er hinsvegar refsi-
vertað stunda þá atvinnu að spila I
uppá peninga eða koma öðrum til
þess — og einnig aö afla sér tekna
með þvi að láta fjárhættnspil fara
fram i húsnæði sem viðkomandi
ræður yfir. Hér á landi hafa fallið
dómar fyrir fjárhættuspil, og þá
voru nokkrir aðilar dæmdir i allt
að nokkurra mánaða fangelsi og
fjársektir. 1 þeim tilfellum var
um að ræða menn sem annaö-
hvort höfðu' atvinnu af spila-
mennsku eða leigðu út húsnæði
fyrir slika starfsemi. Égget ekki
sagt hvort um slikt er að ræða i
sambandi við spilaklúbbinn við
Hverfisgötu, en I þessum gömlu
dómum kom fram að ekki er
nauðsynlegt að menn hafi það að
aðalatvinnu að spila — það er nóg
að gera það i aukavinnu, til að
verða sakfelldir”, sagði Ólafur.
— GA
Elton John mun halda átta
hljómleika I Moskvu og
Leningrad. Sovésk yfirvöld hafa
eftir langa umhugsun leyft hljóm-
leikaferðina sem verða á 21-30
mai nú f ár. Lokasamkomulag um
tónleikaferðina tókst eftir að full-
trúar sovetstjórnarinnar og
bresku utanrikisþjónustunnar
höfbu heyrt og séð hljómleika
Eltons sem hann hélt nýverið í
Oxford. Siðastliðið ár var þaö
Cliff Richard sem flutti þeim I
Sovét boðskap vestrænnar popp-
menningar. Þeir eru víst margir
sem vilja fá að halda tónleika i
Svoét en færri komast að en vilja
og meðal þeirra sem sovétyfir-
völd hafa hafnað má nefna al-
þýðusöngvara eins og Joan Baez
frá USA.
FIAT Ritmo var kosinn bill
ársins i Danmörku nú fyrir
skemmstu. Þetta er alveg ný út-
gáfa frá Fiat-verksmiðjunum
með verulegum útlitsbreyting-
um, sem greinilega mælast vel
fyrir.Það vardómnefnd 25 blaöa-
manna, sem allir skrifa um bila 1
dönsk blöð og timarit, sem stóðu
að þessu vali.
Fiat Ritmo sigraði með nokkr-
um yfirburðum, þvi að við taln-
ingu stiga kom i ljós að þessi bill
hafðifengið helmingi fleiri stig en
bilinn sem komnæstur i röðinni —
Citroen Visa.
Alls var valið um 21 bílategund
og kjörið fór þannig fram að dóm-
endur höfðu tiu stig til umráða
og hið hæsta sem geta mátti ein-
um bil voru 5 stig. Úrslitin urðu
sem hér segir:
1. FiatRitmo 67 stig
2. Citroen Visa 33 —
3. Renaultl8 30 —
4. Mazda 626 24 —
5.Saab900 19 —
6. Horizon 19 —
7. Peugeot 305 14 —
9. Volvo 343 13 —
10. DaihatsuCharade 8 —
ourm oi-uh I o
CB-50-J
Áætlað verð 10/4 1979
kr. 490.000.-
SS-50-ZK3
Áætlað verð 10. apríl 1979
kr. 390.000.-
Væntanlegt um miðjan maí.
Mjög góð varahlutaþjónusta
w
á Islandi
Suðurlandsbraut 20
Revkiavík S: 38772.