Helgarpósturinn - 11.05.1979, Side 14
14
Hér er llf og fjör i danskeppni unglinga á vegum Klúbbsins. — DB-
mynd: Höröur.
„Ahersla lögð á
LIFANDI MÚSÍK”
— rætt við Magnús í Klúbbnum
JÞað viröist vera ákveöinn
hópur sem hefur áhuga á lifandi
tónlist, svo viö höfum ekki i
hyggju aö leggja hana niöur. —
Enda gengur þettabara mjög vel.
A.m.k. er Kliíbburinn best sótti
veitingastaöurinnI dag.aöþvier
tölurnar segja”, sagöi Magnús
Leópoldsson er framkvæmda-
stjórinn var spuröur hvernig
lifandi tónlist mæltist fyrir.
^Það skapar vissa stemmningu
aö hafa hljómsveitir, þótt hún
jafnist kannski ekki á viö
„Glaumbæjarandann”, sagöi
Magnús aöspuröur. „Enda erallt
það fólk sem sótti Glaumbæ á
sinum tima nú löngu horfiö og
farið aö byggja upp i' Breiðholti'.'
Sagði Magniis það fólk sem
mestsæki staöinn vera milli tvi-
tugs og þritugs og þá einna helst
áhangendur lifandi tónlistar.
„Annars er það enginn ákveðinn
hópur sem hingað sækir”, sagði
hann. „Fólk flakkar nú meira á
milli staðanna eftir að þeim
fjölgaði.”
Hver telur þú að eigi að vera
tilgangur skemmtistaöa?MÉg tel
að hanneigi að gefa fólki tækifæri
á að hittast, sýna sig og s já aöra,
dansa og hlusta á góða músik”,
sagöi Magnús „og rabba saman
yfir glasi,” bætti hann við.
Kanntu skýringu á þvi hvers
vegna Islendingar, öðrum
þjóðum fremur, þurfi að hima útl
kuldanum upp á von og óvon um
inngöngu?
„Þetta hefur nú farið mjög
dvínandi, eftir að dansstöðunum
fjölgaði. En ég héld aö skýringin
felist i þvi, að hér dreifist
skemmtanafýsn fólks niöur á
færri daga, en gerist erlendis.” -
Þá sagði Magnús áfengis-
dýrtiðina gera þaö aö verkum, að
fólk reyni að koma ofan i sig eins
miklu vini og mögulegt er, áður
en á skemmtistað er haldiö.
„Sjálfum finnst mér þetta mjög
bagalegt” sagði Magnús. „Bæði
það aö ma ður er dauöhræddur um
að eitthvað komi fýrir fólkiö sem
biður, svo og hitt, aö þetta hefur
leitt til þess að drykkjuvenjur
fólks hafa breyst mikið til hins
verra.”
„En ég tel að þaö megi leysa
þetta meö meiri sveigjanleika.
Fyrir utan það, aö mjög væri til
bóta að lækka aldur dansgesta
niður I 18 ár. Þvi er ég mjög
hlynntur.”
Nú eru það dyraverðirnir sem
hafa komið fólki upp á lagið með
það að biða eftir hálf tólf, þar
sem fólki er oft hleypt inn eftir
það.Væri ekki til bóta að taka
fyrir slikt?
Ekki kannaðist Magnús við að
svo væri, alla vega ekki i Klúbbn-
um. „Heldurðu að fólk eygi á
möguleikaum að komast inn eftir
tokun”, spurði Magnús. „Slikt á
alla vega ekki að geta gerst. Það
er nú geysilega mikið eftirlit haft
með þessu. Og þá ekki af okkar
hálfu”, sagði Magnús, „heldur af
hálfu opinberra aðila. _ab
Frá Nausti
Opið föstudag til kl. 01
Opið laugardag til kl 02
Fjölbreyttur matseðill, þar á meðal logandi
réttir svo sem Grísalundir GRAND
MARNIER.
Lifandi humar — veljið sjálf.
Tríó Naust sér um dansmúsikina.
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
Borðapcntanir i sima 17759.
Verið velkomin í Naust.
Hótel Borg
á besta staó i borginni^ O
Dansað alla helgina.
Föstudag til kl. 1, Diskótekið Dísa
^ Laugardagur kl. 2. Diskótekið Dísa
Sunnudagur til kl. 1. Gömlu dansarnir
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt söngkon-
unni Mattí. Ath. einnig dansað á fimmtudags-
kvöldum . AAatur framreiddur í hádeginu og
um kvöldið alla daga vikunnar.
^^^ótel Borg, s; 11440
j!.. 'Swjy7' Jj 1 i luif'i
Fær Ámundi að setja upp bátaleigu við Tjörnina?
Ámundi sækir
um bátaleigu
við Tjörnina
„Hugmyndin er einfaidlega sú,
að gæða höfuðborgina svoiitlu
llfi”, sagði Amundi Ámundason,
þegar Helgarpósturinn forvitnað-
ist um umsókn hans fyrir báta-
leigu við Tjörnina I Reykjavik.
„1 nánast öllum erlendum
borgum sem maður kemur i”,
sagöi Amundi, „eru Ktlir árabát-
ar á tjörnum, þar sem fólk getur
komið með börnin á góöviðris-
dögum og róiö. I Reykjavík hins
vegar, ferfólk Þingvallahringinn,
eða þá bregður sér i Hveragerði”.
Amundi sagðist ekki geta séð,
að slik bátaleiga hefði slæm áhrif
á fuglalifið við tjörnina. Vel kæmi
til greina að nota aöeins hluta
tjarnarinnar undir leiguna, og
einnig kæmi til greina að loka
henni á viðkvæmasta varptiman-
um.
Akvöröun borgaryfirvalda um
umsókn Amunda er væntanleg
bráðlega, en umsóknin hljóðar
upp á litla árabáta og litla segl-
báta. „Ef leyfið fæst”, sagði
Amundi, „hef ég hugmyndir um
marga aöra skemmtilega hluti,
sem hægt væri aö gera i tengslum
við bátaleiguna. Erlendis eru
tjarnir miðdepill margvlslegs
mannlifs i borgunum, og ég sé
ekki neina ástæðu fyrir þvi, að
slikt sé ekki einnig hægt I Reykja-
vik”. —GA
Brenda Lee við hljóðnemann i óöali,
„Ég kann vel við mig hér.
Þetta er frábrugðiö þvl sem ég
hef áður séð. Ég held að þetta
geti oröið stórflnt ”, sagði
Brenda Lee, nýi plötusnúðurinn
I Óðali þegar Helgarpósturinn
hafði samband við hana.
Brenda, sem er ættuð frá Los
Angeles, kemur hingað frá
Fredrikstad i Noregi, þar sem
hún var I tvo mániiði og þeytti
plötur fyrir Norðmenn. Hér ætl-
ar hún að vera I þrjá mánuði „ef
allt gengur aö óskum”.
„Ég ætla ekki eingöngu að
spila disco-tónlist, þvl það
veröur að gera öllum til hæfis.
Ég mun einnig spila, sól, fönk,
reggae og rokkdjass. Allt sem
ég spila er danstónlist.
Ég byrjaði aö snúa plötum
fyrir 4-5 árum meðan ég var I
námi I Los Angeles. Siöan fékk
ég styrk til náms i Noregi, þar
sem mér var svo boöið starf
sem plötusnúöur. Ég geri ráð
fyrir að halda þessu áfram i tvö
ár enn, en hef þá i hyggju að
halda áfram námi.
Þegar ég fer héðan ætla ég til
Los Angeles, þar sem ég á
heimili. Eftir það er förinni
heitið til Kaupmannahafnar og
þaðan til Saudi-Arabiu”.
Aðspurö um áhugamál önnur
en tónlist, sagði Brenda aö hún
ætti fimm hesta heima I Banda-
rikjunum, og hefði áður fyrr
sýnt reiölist um öll Bandarikin,
en tónlist væri hennar aðal-
áhugamál.
„Ég vona bara að ég falli i
kramið hjá fólkinu og eignist
vini”, voru lokaorð Brendu Lee.
—GB
HP-mynd: Friöþjófur