Helgarpósturinn - 06.06.1980, Side 4

Helgarpósturinn - 06.06.1980, Side 4
4 NAFN: Davíð Oddsson STAÐA: Formaður borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins FÆDDUR: 17. janúar 1948 HEIMA: Reynimel 68 HEÍMILISHAGIR: Eiginkona, Ástríður Thorar- ensen og eiga þau eitt barn BIFREIÐ: Dodge árg. f77 ÁHUGAMÁL: Stjórnmál, skák og ritstörf Misskilningur að stjórnmála- menn þurfi að vera leiðinlegir Ertu næsta borgar- stjóraefni flokksins? „Þetta þýöir i dag ekki annaö, en aö ég er leiötogi stjórnarand- stöðunnar og stjórna baráttu flokksins i borgarstjórnarmálefn- um, sem eftir lifir kjörtimabils.” En samkvæmt fyrri reynslu má ætla að þú veröir borgarstjórnar- kandidat Sjálfstæöisflokksins I næstu kosningum? „Þetta getur veriö visbending um þaö, ef ekkert sérstakt kemur upp á fram aö næstu kosningum.” Sóttiröu þaö fast aö ná i for- mannsembættið? „Ég var inni á þvi aö taka þetta aö mér, þegar eftir þvi var falast.” Voru ekki fleiri um hituna? Nú hefur ólafur B. Thors almennt veriö áiitinn krónprinsinn, sem taka átti yfir þetta embætti ef eöa þegar Birgir færi frá. „Þaö sýndi sig fljótt, aö ég og Ólafur vorum inni þessari for- ystumynd. Eftir umhugsun ákvaö hann, aö gefa ekki kost á sér til starfsins.” Hvers vegna dró hann sig i hlé? „Þú veröur aö spyrja hann.” En er Birgir tsleifur ekki aö yf- irgefa sökkvandi skip og þú jafn- framt aö taka viö vonlausri stööu. Er ekki langur vegur i þaö, aö þiö sjáifstæðismenn náiö völdum I borgarstjórninni á nýjan leik? „Þaö er fásinna að viö séum i einhverjum uppgjafarhugleiöing- um. Þaö var auövitaö áfall fyrir okkur aö tapa kosningunum 1978, en i framtiöinni er það hugmynd okkar aö sækja en ekki sökkva. Það má heldur ekki gleyma þvi, þegar talað er um ástæður ákvöröunar Birgis Isleifs, aö hann hefur setið i borgarstjórn i 18 ár og við sjálfstæöismenn höf- um alltaf litið á eölilega endur- nýjun sem nauösyn.” Nú hafa flestir forystumenn Sjálfstæöisflokksins innan borgarstjórnar færst yfir á Alþingi eftir nokkurn tima. Borgarstjórn þar meö veriö eins konar stökkpallur inná þing. Veröur þaö sama uppi á teningn- um hvaö þig varöar. Er þessi nýja upphefö þin fyrsta skrefið I átt aö Alþingishúsinu? „Nei, ekki lit ég svo á. Staö- reyndin er hins vegar sú, aö ungir menn hafa jafnan staöiö i forystu borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins og þeir ekki viljaö vera eilifir augnakarlar á sama staö og þvi fært sig um set. Stundum inn á Alþingi^ekki sist, ef þeir hafa staöiö sig vel.” Þú hefur nú í öllu falli mjakast fetiö upp á viö innan valdapira- midans I flokknum? „Þessi formennska min þýöir alls ekki, aö þaö sé sjálfgefiö aö Nýlega var kjörinn nýr formaöur borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, en Birgir tsleifur Gunnarsson tók þá ákvöröun aö láta af þvl embætti. Þaö kom nokkuö á óvart, aö þaö skyldi veröa Daviö Oddsson borgarfuiltrúi, sem varö eftirmaöur Birgis tsleifs, þvl flestir höföu taliö aö þaö yröi Ólafur B. Thors. Aö öllu óbreyttu má ætla aö þessi formennska þýöi jafnframt aö Daviö Oddsson sé borgarstjórnarkandidat Sjálfstæöisflokksins i næstu borgarstjórnarkosningum. Sjálfstæöisflokkurinn hefur nokkuö veriö i sviösijósinu seinnipart vetrar. Fyrst og fremst vegna deiina flokksforystunnar viö Gunnar Thoroddsen. Þá hafa og frjálshyggjumenn, sem styöja kenningar frjálshyggjupostuians Hayeks gert sig gíldandi. Margir velta fyrir sér hver framtið fiokksins veröi. Þaö er Da vlö Oddsson sem er Iyfirheyrslu Helgarpóstsins. ég komist áfram innan flokksins. Og min augu mæna ekki á þing- sæti, sem eitthvað framtiöar- markmiö. Ég hef engar ákvarð- anir tekið i þá veru og geri siöur ráö fyrir þvi aö leita eftir þingsæti þegar fram liöa stundir.” Hvers vegna ekki? „Ég hef ýmis önnur áhugamál, en stjórnmál og gæti t.d. vel hugsaö mér aö stunda ritstörf siöar meir.” En væriröu tilbúinn til aö setjast i stól borgarstjóra á næst- unni, ef t.d. núverandi meirihluti spryngi. Séröu sjálfan þig sem borgarstjóra? „Ég er nú ekki farinn aö sjá neitt slikt fyrir mér. Ég á ekki von á þvi aö vinstri meirihlutinn springi. Held aö hann hangi saman meö harmkvælum út kjör- timabiliö.” Þú varst nefndur i einu dag- blaöanna, sem „joker” og aö þú værir ekkert annaö en brandara- smiöur, sem væri þekktur fyrir útúrsnúninga og háifkæringstal á borgarstjórnarfundum. Þýöir þetta, aö þú sért ekki aivörupóii- tikus heldur eins konar „Matt- hildingur”? „Ég held að reynslan sýni, aö kjósendur i Reykjavik hafi tekiö mig mjög alvarlega sem stjórn- málamann. Þaö er misskilningur hjá Þjóðviljanum, en þaö er dag- blaöiö sem þú vitnar i, að stjórn- málamenn þurfi endilega aö vera leiöinlegir, þótt þaö sé aöals- merkiö I flokki þeirra Þjóövilja- manna”. Nú hafiö þiö sjálfstæöismenn almennt veriö álitnir linir i stjórnarandstööunni i borgar- stjórninni. Hvernig vikur þvl viö? „Viö sjálfstæöismenn töldum eölilegt aö hinn nýi meirihluti fengi tækifæri til aö feta sig áfram fyrstu skrefin án mikils hávaöa af okkar völdum. Þá er þaö þannig, að stjórnarandstaöa i borgarpólitlkinni kemur ekki eins glöggt fram og stjórnarandstaðan á þingi. Þaö er m.a. vegna þess aö ekki er greint eins nákvæmlega frá ágreiningsefnum i borgar- stjórninni i rikisfjölmiðlunum. Viö höfum lagt okkur fram um að vera málefnalegir og ábyrgir i stjórnarandstööunni frekar en halda uppi neikvæðri niöurrifs- starfsemi.” En er ekki fullljóst aö þessi margumtaiaöa glundroöakenning ykkar hefur ekki staöist. Þiö gáf- uö I skyn fyrst eftir kosningaúr- slitin ’78 að vinstra meirihlutan- um myndi aldrei takast aö halda saman út kjörtlmabilið vegna ósamlyndis. Nú spáir þú þvi hins vegar aö meirihlutinn starfi út kjörtimabiliö. „Ég man nú ekki til þess aö viö hefðum lýst þvi yfir aö meirihlut- inn spryngi á kjörtimabilinu, en glundroöakenning okkar hefur staöist. Þaö er glundroöi i fjár- málum borgarinnar, eöa hvaö lýsir þvi betur, en þegar vinstri flokkarnir þurfa aö stórauka skattheimtu af borgarbúum til aö halda úti jafnmikilli þjónustu og var á valdatima sjálfstæðis- manna. Vinstri menn segja, aö fjármálin yröu á heljarþröm ef þeir yröu aö láta sér nægja sömu gjaldstofna og Sjálfstæöisflokk- urinn á árunum 1972—’78. Eftir aö vinstri meirihlutinn tók við stjórnartaumunum er 400—500 þúsund krónum dýrara fyrir venjulega fjölskyldu aö búa i Reykjavikurborg á ári, en á Seltjarnarnesi — og þrátt fyrir þaö hefur þjónusta ekki aukist. Mörg önnur glundroðamál má til nefna, svo sem Landsvirkjunar- máliö, skipulagsmál, Höföa- bakkabrúna, sorphiröu'deil- una og fleira og fleira”. Þaö hefur veriö mál manna, aö væntaniega veröi fjölgað I borgarstjórn fyrir næstu kosn- ingar. Er þar meö ekki endaniega slökktur ykkar vonarneisti um aö komast til valda? „Alltaf heyrir maður sömu bá- biljuna um afleiöingar þessarar fjölgunar borgarfulltrúa og étur hver vitleysuna eftir öörum. Þaö hefur afar litla hernaöarlega þýðingu þótt borgarfulitrúum veröi fjölgaö i 21, eins og útlit er fyrir. Sannleikurinn er t.d. sá, aö ef borgarfulltrúar hefðu verið 27 i siöustu kosningum, þá heföu þaö veriö sjálfstæöismenn sem hefðu haldiö meirihlutanum. Hins vegar höfum viö sett okkur á móti fjölgun á þeirri forsendu, að apparatiö yröi viö þaö dýrara og þyngra i vöfum.” Nú ert þú Davíö, forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavlkur. Ert sem sagt einn fulltrúi aimanna- tryggingakerfisins sem Sjáif- stæðisflokkurinn barðist á móti hér I eina tiö. „Þaö er alrangt aö Sjálfstæðis- flokkurinn hafi nokkurn timann barist á móti þvi aö halda úti félagslegri þjónustu til handa þeim er minna mega sln. Þvert á móti hefur hann veriö þar i for- ystu — ekki sist I Reykjavik.” Er þetta nú ekki seinni tima söguskoðun hjá þér? „Nei, þetta er rétt söguskoöun. Flokkurinn hefur lalltaf viljaö tryggja, aö enginn yröi til lang- frama á vonarvöl I þessu landi og vill hjálpa þeim sem minna mega sin til aö koma undir sig fótunum á nýjan leik.” Hvernig flokkur er Sjálfstæöis- flokkurinn. Er þetta ihaldsflokk- ur, frjálslyndur fiokkur meö kratlsku ivafi, eöa þjóöernis- flokkur? „Sjálfstæöisflokkurinn er frjálslyndur flokkur, sem á ekki spegilmynd neins staðar I heim- inum. Hann trúir á manninn og vill ekki fjötra athafnaþrá hans, heldur efla frumkvæöi einstak- lingsins.” Ef flokkurinn er einnig máls- svari litilmagnans, eins og þú segir, hvernig stendur þá á þvi, aö langflestir forystumenn hans eru menn sem meira mega sin fjárhagsiega, sbr. iögfræöinga- fjöldinn hjá fiokknum á þingi? „Þaö er fólk úr öllum stéttum þjóöfélagsins sem er i trúnaöar- störfum fyrir flokkinn og getur enginn annar flokkur meö réttu státaö af þvi aö vera flokkur allra stétta. Þó aö það hittist svo á, aö nokkrir Jögfræöingar séu á þingi fyrir flokkinn, þá er þaö mikill minnihluti þingmanna flokksins. Þess má einnig geta að i þing- mannaliöi Alþýöubandalagsins eru flestir kennarar.” Ertu Gunnars- eöa Geirs- maöur? „Ég er sjálfstæðismaður.” Ertu i stjórn eöa stjórnarand- stööu þegar litið er á þjóömáiin? „Sjálfstæðisflokkurinn er i stjórnarandstööu og ég þá jafn- framt líka.” Er Gunnar Thoroddsen ekki sjálfstæöismaöur? „Þú veröur aö spyrja hann að þvi.” En er hann þaö I þlnum augum? „Ég met Gunnar Thoroddsen aö verðleikum og tel hann mörg- um góöum kostum búinn. Myndir þú kjósa Gunnar til trúnaöarstarfa innan flokksins i dag? „Þaö fer eftir þvi hvaöa trúnaöarstörf þú átt viö.” Varaformaöur? „Hann gefur ekki kost á sér. Formennsku? „Nei.” Ef hann byöi sig fram til annarra stjórnarstarfa á flokks- þingi? „Þaö mætti vel vera að ég styddi hann.” Hvar seturöu þig i hugsjónahóp innan flokksins. Telstu kannski tii aödáendahóps Hayeks gamla? „Ég er frjálshyggjumaöur, en tek ekki pólitiskar skoöanir sam- kvæmt kópium spekinga úti i heimi. Sjálfstæöisflokkurinn er alislenskur flokkur, en ekki kópia af flokkum uti I heimi, eins og gerist hjá öörum stjórnmála- flokkum hér á landi.” Unghreyfingin tekur nú samt þátt I alþjóðlegu samstarfi, þar sem finnast afturhaldssömustu ihaldsflokkar veraldar. „Samstarf og samskipti ung- hreyfingarinnar við erlenda flokka eru .mjög laus i reipun- um.” En vill ekki Daviö Oddsson „joker” láta einn léttan brandara fjúka i lokin, eöa má borgar- stjórnaroddvitinn ekki lengur hafa gamanmál á vör, vegna hinnar nýju og ábyrgöarmiklu stööu sinnar? „Þaö vill nú þannig til aö ég hef að öllu jöfnu ekki gamanmál á vör og á ekki mjög létt meö aö segja brandara eftir pöntun.” En veröur þú ekki aö breyta um stil eftir þetta formannskjör. Ertu ekki i dag maöurinn sem verður aö bera klæöi á vopnin ef deiiur risa? „Þaö felst jú aö nokkru leyti I starfinu. Mun Sjálfstæöisfiokkurinn nokkurn timann ná sér eftir Gunnarsklofninginn i febrúar sl.? „Já, ég hef trú á þvi. Það hljóta að koma upp krisur endrum og eins i jafn stórum flokki og Sjálf- stæðisflokknum. Þessi krisa er ekki alvarlegri en svo, aö ég held aö það takist aö leysa máliö.” Þýöir þessi nýja staöa þin, aö þú hafir gengið upp úr stutt- buxnadrengjahópnum og sért kominn i fulloröinna manna tölu innan flokksapparatsins? „Þetta formannskjör sýnir, að flokkurinn treystir ungum mönn- um vel til trúnaöarstarfa og ég vona aö ég veröi vandanum vax- inn.” eftir Guðmund Árna Stefánsson

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.