Helgarpósturinn - 06.06.1980, Síða 4
4
NAFN: Davíð Oddsson STAÐA: Formaður borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
FÆDDUR: 17. janúar 1948 HEIMA: Reynimel 68 HEÍMILISHAGIR: Eiginkona, Ástríður Thorar-
ensen og eiga þau eitt barn BIFREIÐ: Dodge árg. f77 ÁHUGAMÁL: Stjórnmál, skák og ritstörf
Misskilningur að stjórnmála-
menn þurfi að vera leiðinlegir
Ertu næsta borgar-
stjóraefni flokksins?
„Þetta þýöir i dag ekki annaö,
en aö ég er leiötogi stjórnarand-
stöðunnar og stjórna baráttu
flokksins i borgarstjórnarmálefn-
um, sem eftir lifir kjörtimabils.”
En samkvæmt fyrri reynslu má
ætla að þú veröir borgarstjórnar-
kandidat Sjálfstæöisflokksins I
næstu kosningum?
„Þetta getur veriö visbending
um þaö, ef ekkert sérstakt kemur
upp á fram aö næstu kosningum.”
Sóttiröu þaö fast aö ná i for-
mannsembættið?
„Ég var inni á þvi aö taka þetta
aö mér, þegar eftir þvi var
falast.”
Voru ekki fleiri um hituna? Nú
hefur ólafur B. Thors almennt
veriö áiitinn krónprinsinn, sem
taka átti yfir þetta embætti
ef eöa þegar Birgir færi frá.
„Þaö sýndi sig fljótt, aö ég og
Ólafur vorum inni þessari for-
ystumynd. Eftir umhugsun ákvaö
hann, aö gefa ekki kost á sér til
starfsins.”
Hvers vegna dró hann sig i hlé?
„Þú veröur aö spyrja hann.”
En er Birgir tsleifur ekki aö yf-
irgefa sökkvandi skip og þú jafn-
framt aö taka viö vonlausri stööu.
Er ekki langur vegur i þaö, aö þiö
sjáifstæðismenn náiö völdum I
borgarstjórninni á nýjan leik?
„Þaö er fásinna að viö séum i
einhverjum uppgjafarhugleiöing-
um. Þaö var auövitaö áfall fyrir
okkur aö tapa kosningunum 1978,
en i framtiöinni er það hugmynd
okkar aö sækja en ekki sökkva.
Það má heldur ekki gleyma þvi,
þegar talað er um ástæður
ákvöröunar Birgis Isleifs, aö
hann hefur setið i borgarstjórn i
18 ár og við sjálfstæöismenn höf-
um alltaf litið á eölilega endur-
nýjun sem nauösyn.”
Nú hafa flestir forystumenn
Sjálfstæöisflokksins innan
borgarstjórnar færst yfir á
Alþingi eftir nokkurn tima.
Borgarstjórn þar meö veriö eins
konar stökkpallur inná þing.
Veröur þaö sama uppi á teningn-
um hvaö þig varöar. Er þessi
nýja upphefö þin fyrsta skrefið I
átt aö Alþingishúsinu?
„Nei, ekki lit ég svo á. Staö-
reyndin er hins vegar sú, aö ungir
menn hafa jafnan staöiö i forystu
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins og þeir ekki viljaö vera
eilifir augnakarlar á sama staö
og þvi fært sig um set. Stundum
inn á Alþingi^ekki sist, ef þeir
hafa staöiö sig vel.”
Þú hefur nú í öllu falli mjakast
fetiö upp á viö innan valdapira-
midans I flokknum?
„Þessi formennska min þýöir
alls ekki, aö þaö sé sjálfgefiö aö
Nýlega var kjörinn nýr formaöur borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, en Birgir tsleifur
Gunnarsson tók þá ákvöröun aö láta af þvl embætti. Þaö kom nokkuö á óvart, aö þaö skyldi veröa
Daviö Oddsson borgarfuiltrúi, sem varö eftirmaöur Birgis tsleifs, þvl flestir höföu taliö aö þaö
yröi Ólafur B. Thors. Aö öllu óbreyttu má ætla aö þessi formennska þýöi jafnframt aö Daviö
Oddsson sé borgarstjórnarkandidat Sjálfstæöisflokksins i næstu borgarstjórnarkosningum.
Sjálfstæöisflokkurinn hefur nokkuö veriö i sviösijósinu seinnipart vetrar. Fyrst og fremst
vegna deiina flokksforystunnar viö Gunnar Thoroddsen. Þá hafa og frjálshyggjumenn, sem
styöja kenningar frjálshyggjupostuians Hayeks gert sig gíldandi. Margir velta fyrir sér hver
framtið fiokksins veröi.
Þaö er Da vlö Oddsson sem er Iyfirheyrslu Helgarpóstsins.
ég komist áfram innan flokksins.
Og min augu mæna ekki á þing-
sæti, sem eitthvað framtiöar-
markmiö. Ég hef engar ákvarð-
anir tekið i þá veru og geri siöur
ráö fyrir þvi aö leita eftir þingsæti
þegar fram liöa stundir.”
Hvers vegna ekki?
„Ég hef ýmis önnur áhugamál,
en stjórnmál og gæti t.d. vel
hugsaö mér aö stunda ritstörf
siöar meir.”
En væriröu tilbúinn til aö
setjast i stól borgarstjóra á næst-
unni, ef t.d. núverandi meirihluti
spryngi. Séröu sjálfan þig sem
borgarstjóra?
„Ég er nú ekki farinn aö sjá
neitt slikt fyrir mér. Ég á ekki
von á þvi aö vinstri meirihlutinn
springi. Held aö hann hangi
saman meö harmkvælum út kjör-
timabiliö.”
Þú varst nefndur i einu dag-
blaöanna, sem „joker” og aö þú
værir ekkert annaö en brandara-
smiöur, sem væri þekktur fyrir
útúrsnúninga og háifkæringstal á
borgarstjórnarfundum. Þýöir
þetta, aö þú sért ekki aivörupóii-
tikus heldur eins konar „Matt-
hildingur”?
„Ég held að reynslan sýni, aö
kjósendur i Reykjavik hafi tekiö
mig mjög alvarlega sem stjórn-
málamann. Þaö er misskilningur
hjá Þjóðviljanum, en þaö er dag-
blaöiö sem þú vitnar i, að stjórn-
málamenn þurfi endilega aö vera
leiöinlegir, þótt þaö sé aöals-
merkiö I flokki þeirra Þjóövilja-
manna”.
Nú hafiö þiö sjálfstæöismenn
almennt veriö álitnir linir i
stjórnarandstööunni i borgar-
stjórninni. Hvernig vikur þvl viö?
„Viö sjálfstæöismenn töldum
eölilegt aö hinn nýi meirihluti
fengi tækifæri til aö feta sig
áfram fyrstu skrefin án mikils
hávaöa af okkar völdum. Þá er
þaö þannig, að stjórnarandstaöa i
borgarpólitlkinni kemur ekki eins
glöggt fram og stjórnarandstaðan
á þingi. Þaö er m.a. vegna þess aö
ekki er greint eins nákvæmlega
frá ágreiningsefnum i borgar-
stjórninni i rikisfjölmiðlunum.
Viö höfum lagt okkur fram um að
vera málefnalegir og ábyrgir i
stjórnarandstööunni frekar en
halda uppi neikvæðri niöurrifs-
starfsemi.”
En er ekki fullljóst aö þessi
margumtaiaöa glundroöakenning
ykkar hefur ekki staöist. Þiö gáf-
uö I skyn fyrst eftir kosningaúr-
slitin ’78 að vinstra meirihlutan-
um myndi aldrei takast aö halda
saman út kjörtlmabilið vegna
ósamlyndis. Nú spáir þú þvi hins
vegar aö meirihlutinn starfi út
kjörtimabiliö.
„Ég man nú ekki til þess aö viö
hefðum lýst þvi yfir aö meirihlut-
inn spryngi á kjörtimabilinu, en
glundroöakenning okkar hefur
staöist. Þaö er glundroöi i fjár-
málum borgarinnar, eöa hvaö
lýsir þvi betur, en þegar vinstri
flokkarnir þurfa aö stórauka
skattheimtu af borgarbúum til aö
halda úti jafnmikilli þjónustu og
var á valdatima sjálfstæðis-
manna. Vinstri menn segja, aö
fjármálin yröu á heljarþröm ef
þeir yröu aö láta sér nægja sömu
gjaldstofna og Sjálfstæöisflokk-
urinn á árunum 1972—’78. Eftir aö
vinstri meirihlutinn tók við
stjórnartaumunum er 400—500
þúsund krónum dýrara fyrir
venjulega fjölskyldu aö búa i
Reykjavikurborg á ári, en á
Seltjarnarnesi — og þrátt fyrir
þaö hefur þjónusta ekki aukist.
Mörg önnur glundroðamál má til
nefna, svo sem Landsvirkjunar-
máliö, skipulagsmál, Höföa-
bakkabrúna, sorphiröu'deil-
una og fleira og fleira”.
Þaö hefur veriö mál manna, aö
væntaniega veröi fjölgað I
borgarstjórn fyrir næstu kosn-
ingar. Er þar meö ekki endaniega
slökktur ykkar vonarneisti um aö
komast til valda?
„Alltaf heyrir maður sömu bá-
biljuna um afleiöingar þessarar
fjölgunar borgarfulltrúa og étur
hver vitleysuna eftir öörum. Þaö
hefur afar litla hernaöarlega
þýðingu þótt borgarfulitrúum
veröi fjölgaö i 21, eins og útlit er
fyrir. Sannleikurinn er t.d. sá, aö
ef borgarfulltrúar hefðu verið 27 i
siöustu kosningum, þá heföu þaö
veriö sjálfstæöismenn sem hefðu
haldiö meirihlutanum. Hins
vegar höfum viö sett okkur á móti
fjölgun á þeirri forsendu, að
apparatiö yröi viö þaö dýrara og
þyngra i vöfum.”
Nú ert þú Davíö, forstjóri
Sjúkrasamlags Reykjavlkur. Ert
sem sagt einn fulltrúi aimanna-
tryggingakerfisins sem Sjáif-
stæðisflokkurinn barðist á móti
hér I eina tiö.
„Þaö er alrangt aö Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi nokkurn timann
barist á móti þvi aö halda úti
félagslegri þjónustu til handa
þeim er minna mega sln. Þvert á
móti hefur hann veriö þar i for-
ystu — ekki sist I Reykjavik.”
Er þetta nú ekki seinni tima
söguskoðun hjá þér?
„Nei, þetta er rétt söguskoöun.
Flokkurinn hefur lalltaf viljaö
tryggja, aö enginn yröi til lang-
frama á vonarvöl I þessu landi og
vill hjálpa þeim sem minna mega
sin til aö koma undir sig fótunum
á nýjan leik.”
Hvernig flokkur er Sjálfstæöis-
flokkurinn. Er þetta ihaldsflokk-
ur, frjálslyndur fiokkur meö
kratlsku ivafi, eöa þjóöernis-
flokkur?
„Sjálfstæöisflokkurinn er
frjálslyndur flokkur, sem á ekki
spegilmynd neins staðar I heim-
inum. Hann trúir á manninn og
vill ekki fjötra athafnaþrá hans,
heldur efla frumkvæöi einstak-
lingsins.”
Ef flokkurinn er einnig máls-
svari litilmagnans, eins og þú
segir, hvernig stendur þá á þvi,
aö langflestir forystumenn hans
eru menn sem meira mega sin
fjárhagsiega, sbr. iögfræöinga-
fjöldinn hjá fiokknum á þingi?
„Þaö er fólk úr öllum stéttum
þjóöfélagsins sem er i trúnaöar-
störfum fyrir flokkinn og getur
enginn annar flokkur meö réttu
státaö af þvi aö vera flokkur allra
stétta. Þó aö það hittist svo á, aö
nokkrir Jögfræöingar séu á þingi
fyrir flokkinn, þá er þaö mikill
minnihluti þingmanna flokksins.
Þess má einnig geta að i þing-
mannaliöi Alþýöubandalagsins
eru flestir kennarar.”
Ertu Gunnars- eöa Geirs-
maöur?
„Ég er sjálfstæðismaður.”
Ertu i stjórn eöa stjórnarand-
stööu þegar litið er á þjóömáiin?
„Sjálfstæðisflokkurinn er i
stjórnarandstööu og ég þá jafn-
framt líka.”
Er Gunnar Thoroddsen ekki
sjálfstæöismaöur?
„Þú veröur aö spyrja hann að
þvi.”
En er hann þaö I þlnum augum?
„Ég met Gunnar Thoroddsen
aö verðleikum og tel hann mörg-
um góöum kostum búinn.
Myndir þú kjósa Gunnar til
trúnaöarstarfa innan flokksins i
dag?
„Þaö fer eftir þvi hvaöa
trúnaöarstörf þú átt viö.”
Varaformaöur?
„Hann gefur ekki kost á sér.
Formennsku?
„Nei.”
Ef hann byöi sig fram til
annarra stjórnarstarfa á flokks-
þingi?
„Þaö mætti vel vera að ég
styddi hann.”
Hvar seturöu þig i hugsjónahóp
innan flokksins. Telstu kannski tii
aödáendahóps Hayeks gamla?
„Ég er frjálshyggjumaöur, en
tek ekki pólitiskar skoöanir sam-
kvæmt kópium spekinga úti i
heimi. Sjálfstæöisflokkurinn er
alislenskur flokkur, en ekki kópia
af flokkum uti I heimi, eins og
gerist hjá öörum stjórnmála-
flokkum hér á landi.”
Unghreyfingin tekur nú samt
þátt I alþjóðlegu samstarfi, þar
sem finnast afturhaldssömustu
ihaldsflokkar veraldar.
„Samstarf og samskipti ung-
hreyfingarinnar við erlenda
flokka eru .mjög laus i reipun-
um.”
En vill ekki Daviö Oddsson
„joker” láta einn léttan brandara
fjúka i lokin, eöa má borgar-
stjórnaroddvitinn ekki lengur
hafa gamanmál á vör, vegna
hinnar nýju og ábyrgöarmiklu
stööu sinnar?
„Þaö vill nú þannig til aö ég hef
að öllu jöfnu ekki gamanmál á
vör og á ekki mjög létt meö aö
segja brandara eftir pöntun.”
En veröur þú ekki aö breyta um
stil eftir þetta formannskjör.
Ertu ekki i dag maöurinn sem
verður aö bera klæöi á vopnin ef
deiiur risa?
„Þaö felst jú aö nokkru leyti I
starfinu.
Mun Sjálfstæöisfiokkurinn
nokkurn timann ná sér eftir
Gunnarsklofninginn i febrúar sl.?
„Já, ég hef trú á þvi. Það hljóta
að koma upp krisur endrum og
eins i jafn stórum flokki og Sjálf-
stæðisflokknum. Þessi krisa er
ekki alvarlegri en svo, aö ég held
aö það takist aö leysa máliö.”
Þýöir þessi nýja staöa þin, aö
þú hafir gengið upp úr stutt-
buxnadrengjahópnum og sért
kominn i fulloröinna manna tölu
innan flokksapparatsins?
„Þetta formannskjör sýnir, að
flokkurinn treystir ungum mönn-
um vel til trúnaöarstarfa og ég
vona aö ég veröi vandanum vax-
inn.”
eftir Guðmund Árna Stefánsson