Helgarpósturinn - 06.06.1980, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 06.06.1980, Blaðsíða 6
6 he/garpósturinn Föstudag ur 6. júní 1980. Draugar 3 Þrjú stig Ekki er alveg á allra færi aö skynja framliðna. Alla tiö hafa veriö til skyggnir menn, og ef- laust lika menn sem leggja alls engan trúnaö á framhaidslif. Þeir hafa sjálfsagt aldrei veriö fleiri, sem ekki leggja neinn trúnaö á draugasögur, eöa frásagnir af yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þaö kemur til af mörgu, en eink- um kannski af björtum og upplýstum vistarverum. Þó eru fjölmargir sem telja sig hafa einhvern hæfileika á þessu sviöi. Sálrænu fólki hefur veriö skipt i þrjá hópa, eöa þrjú stig. 1 „fyrsta flokki” eru þeir sem eru skyggnir, þaö er, þeir sem sjá, heyra, eöa finna fyrir framliön- um. Siöan er þaö Varúöarstigiö. Þær persónur sem hafa þá sál- rænu gáfu eru ekki skyggnar, en finna fyrir nærveru, sem oft næg- ir til aö gera fólk óttaslegið. í þriöja lagi eru svo þeir sem trúa á framliöna og hugleiöa mikiö Svo eru þeir til sem eru ekki i neinum þessara hópa, en hafa samt ,,séö” hluti eöa fólk, sem ekki eru af þessum heimi. Tryggvi Axelsson, kom eitt sinn meö vinnuflokki að Kambanesi viö Stöövaf-fjörö. Tryggvi segist hafa veriö aö drekka kaffi meö fjölskyldunni þar þegar honum varö litið aö eldhúsdyrunum. ,,Ég sá þar litla stelpu, kannski svona lOára”, sagöi Tryggvi. „Hún var ofur venjuleg, en sagði ekkert. Ég sat i rólegheitum viö boröiö og sé siöan aö stúlkan kemur inn og sest i sófa þarna i einu horninu. Ég leit aftur af henni, og fannst ekkert athugavert. Stúlkan var inniklædd, á sokkaleistunum, og þar sem ég þekkti ekki til á heim- ilinu taldi ég hana bara dóttur hjónanna. Þetta var fyrir hádegi. Um kvöldmatinn var siðan sest til borös, og þá var öll fjölákyldan samankomin. Ég tók hinsvegar ekki eftir stelpunni frá morgnin- um og spyr hvar hún sé. Þá kem- ur i ljós aö enginn kannast viö hana, og enginn hafði séö hana annar en ég um morguninn, og hún getur alls ekki hafa verið af heimilinu, né úr nágrenninu „Eitthvaö haföi vist sést á ferli þarna i kring”, sagöi Tryggvi „en þessa stúlku kannaöist enginn viö, hvorki lifs né liöna. Ég veit aö ég sá hana, það var alls engin ímyndun. Þetta er i fyrsta og eina skiptiö sem ég tel mig hafa séö eitthvaö af þessu tagi, og aldrei hef ég taliö mig hafa einhverja dulræna hæfileika. Litill vafi er á þvi aö þeir sem lesa þetta hafa heyrt ótal sögur, hliöstæðar þessari. 011 þjóöin viröist aö einhverju leyti hafa áhuga á draugum. Þetta eru hins- vegar viökvæm mál, eins og Guð- mundur Einarsson lýsti vel hér aö framan, og geta jafnvel haft mikil áhrif á fasteignaviðskipti. Þess eru dæmi aö hús hafa ekki selst, i langan tima vegna þess aö reimt var I þeim. 1 einni litilli ibúð hér i borginni er sagður framliöinn maöur, sem er ljúfmenni hiö mesta, nema hvaö hann hefur lag á þvi aö komast upp á milli hjóna, án þess aö þau taki eftir þvi. 011 sambúö i þeirri Ibúö hefur endaö meö skilnaöi og vinslitum. En frægasta reimleikahús Reykjavikur er án efa Höföi. Hvers vegna er ekki gott að segja. Jón Gunnarsson, húsvöröur, hef- ur búiö i Höföa i tiu ár, og aldrei oröiö var viö neitt óeölilegt. „Þessi stóru timburhús eru náttúrulega tilvalin til að setja af staö svona draugasögur”, sagöi hann. „Þaö er mikil hreyfing á trénu, sérstaklega þegar húsin standa svona á sjávarkambinum, eins og Höföi, og þá er auövelt aö láta Imyndunarafliö fylla i eyöurnar. Fyrir tuttugu árum hefur Höfði veriö mjög drauga- legt hús, meö mörgum ranghöl- um, en nú er þaö upplýst i hverju horni.” Spurningin um þaö hvort lif sé eftir dauöann er aö sjálfsögöu ein af eiliföarspurningunum og þeim veröur ekki svarar svo glatt I blaöagrein. Spurningin um reim- leika og skyggni er angi af þeirri spurningu og veröur heldur ekki svaraöhér. Lesendur mættu hins- vegar gjarnan spyrja sjálfan sig hvort þeir telji allan þann sæg af sögum og frásögnum i kringum þá heilaspuna eöa raunveruleika. HVAÐ TAKA FORSETAEFNIN SIG HÁTÍÐLEGA? Það er liklega óhætt að full- yrða, að fjórir mest uppteknu menn landsins um þessar mund- ir, séu forsetaframbjóðendurnir fjórir. Hver minúta þeirra er skipuiögð, fundum á vinnustöðum raðað niður á alla daga með hálf- tima millibili, og á kvöldin eru siðan fundir meö félagasamtök- um eða eigin kosningafundir. Og vettvangur þessara fundahalda er allt landið. A þessum fundum reyna fram- bjóðendurnir að renna stoðum undir þaö, að þeir séu prýddir þeim mannkostum, sem þeir sjálfir og ýmsir aðrir segja, að forseti islands þurfi að vera gæddur. Að þeir séu góðir islend- ingar, menn allra stétta, menn sátta og samlyndis, stjórnvitring- ar, vel giftir eöa standi sjálfir fyr- ir sinu, allt þetta i senn eöa eitt- hvað af þessu og meira til. En hvað sem um þessa mann- kosti má segja hljóta kjósendur jafnframt að velta þvl fyrir sér hversu mannlegir frambjóðend- urnir eru, hvaða mannlegar til- finningar hrærast i brjósti þeirra. Að sjálfsögðu eru forsetafram- bjóðendurnir mannlegir rétt eins og við hin. Hitt er kannski stærri spurning, hvort þeir hafa til að bera næga kimnigáfu, séu nógu hreinskilnir og geti tekið sjálfa sig mátulega litið hátiðlega til að tjá sig um þessar tilfinningar og gefa þjóðinni þar með öriitla inn- sýn inn i sitt sálarlif. Til að komast eftir þessu sett- um við á blaö nokkrar persónu- legar spurningar, sem viö ákváð- um að leggja fyrir frambjóðend- urna. En þaö var hægara sagt en gert. Það gekk reyndar greiðlega að ná i Guðlaug Þorvaldsson, og svaraði hann spurningum okkar fúslega. Nokkru erfiðlegar gekk að ná i Vigdisi Finnbogadóttur þar eð hún var á kosningaferða- lagi austur á landi. En við náðum i hana í þvi að hún kom inn úr dyrunum, hálftima eftir að fiug- vél hennar lenti i Reykjavik, og hún gaf sér tima til að svara spurningunum, þótt hún ætti von á nærri fimmtiu leikurum, sem eru hér á Norrænu leikaraþingi, I boð um kvöldið. Eftir mikinn slmaeitingarleik eftir Pétri Thorsteinssyni um stóran hluta Suðvesturlands varð að lokum ljóst, að hann hefði hvorki tima né vilja til að svara spurningum okkar. Sömuleiðis eftir miklar simhringingar tókst að ná f Albert Guðmundsson, en hann sagðist ekki vilja svara þessum spurningum. Við fáum þvi ekki að sjá svör þessara siðastnefndu, en hér koma svör þeirra Guölaugs og Vigdísar. Hvenær hefur þú veriö hrædd- ust(astur) um ævina? Vigdis: „Þegar ég fæddist og þurfti aö byrja að lifa sjálfstæðu lifi”. Guðlaugur: „Ég er nú almennt talinn óttalaus maöur, en auövit- aö hef ég eins og aðrir oröið hræddur á lifsleiöinni. Ég man til dæmis eftir þvi, hvaö ég var hræddur við kriuna þegar ég var strákur. Hún var minn helsti skelfir. Tvö tilvik get ég nefnt, eftir aö ég komst á fullorðinsár og i báöum varö ég dauðhræddur. Ariö 1954 var ég á feröalagi i Strassburg og fór þar upp i kirkjuturn, sem er geysihár. Turninn var nokkuö illa farinn eftir striöiö og öryggismálin ekki i of góöu lagi. Ég hætti mér þarna út á einhverjar spirur og varö þá litið niöur og sá bilana sem litla punkta langt fyrir neðan mig. Þá greip mig mikil lofthræösla og það nærri leiö yfir mig. A striösárunum vann ég meðal annars i grjótnámi i öskjuhliðinni og var eitt sinn aö hella úr vagni fullum af grjóti ofan I silóiö. Mér fórst þetta eitthvað óhönduglega og hrasaöi og það munaði ekki nema hársbreidd að ég fylgdi grjótinu eftir ofan i silóið. Hefði það gerst, þá væri ég ekki á lifi i dag. Þvi veröur ekki neitaö, aö það greip mig ofsahræösla á þess- um sekúndubrotum, þegar þetta var aö gerast”. Hvenær hefur þú verið glaöast- ur (glöðust) i lifi þinu? Vigdis: „Þegar ég eignaöist hana litlu dóttur mina og gat deilt þeirri gleði með foreldrum min- um og öllum þeim sem þykja vænt um mig”. Guðiaugur: „Ég held aö ég hafi ábyggilega oröið hvað glaöastur, þegar ég haföi lokið gagnfræöa- prófinu utan skóla frá Flensborg- arskóla. Þetta var áriö 1941 og ég var hræddur viö vorprófiö, enda þurfti fyrstu einkunn til aö geta haldið áfram. Ég haföi haft litinn tima til undirbúnings, en allt gekk aö óskum og ég náði ágætis prófi. Ég man vel hvað ég var afskap- lega glaöur þegar þessu var lok- iö”. Hver var fyrsta ástin? Vigdis: „Það var Magnús Benja- minsson úrsmiöur. Hann var átt- ræöur en ég fjögurra ára, þegar hann sagöi við mig, aö ég væri sóma kona. Ég hélt aö þaö væri eitthvaö ljótt og fór aö gráta, vegna þess aö ég elskaöi hann svo mikið”. Guðlaugur: „Ég man þaö ekki svo gjörla. Auövitaö var maöur alltaf skotinn i einhverri stelpu I gamla daga, en sannleikurinn er sá, aö ég varö ekki raunverulega ástfanginn fyrr en ég hitti konuna mlna. En i framhaldi af þessu þá er þaö skoöun min, aö þaö séu fyrstu ellimörkin á mönnum, ef þeir geta gengið frá Hlemmi og niöur Laugaveg án þess að verða skotnir i einhverri blómarósinni á leiöinni. Og þessi ellimörk á sjálf- um mér hef ég enn ekki oröið var við”. Ertu hjátrúarfull(ur)? Vigdis: „Ég hef jafnan búið við það lán, að með mér standa góðar vættir”. Guðlaugur: „Ekki lengur, en ég var það nokkuö. Ég er alinn upp við sjó og i sjávarplássum veröa menn oft dálitið hjátrúarfullir. Þegar ég var ungur trúði ég á margt, sem ég sé nú, að var ekk- ert annað en hjátrú. Ég var til dæmis mjög hræddur við drauga. Hjátrúin hefur aö mestu elst af mér. Ég á þó mina happatölu. Það er talan 13, og hún hefur reynst mér vel”. Óttastu dauöann? Vigdis: „Nei, af hverju ætti ég aö óttast lögmál lifsins?” Guðlaugur: „Nei, þaö geri ég ekki. Ég tel mig trúaðan mann og trúi þar með á annaö lif. Ég tel, að einhver tilgangur sé meö sköp- un heimsins og það veröi eitthvert framhald þegar þessu tilverustigi sleppir. Hvað þaö nákvæmlega veröur er erfitt aö segja, en eitt- hvert framhald er þaö. Dauöann óttast ég ekki, þvi jafnvel þótt maöur teldi, aö ekkert tæki viö eftir hann, þá þýöir þaö ekkert annað en langan, draumlausan svefn”. Attu þér átrúnaöargoð, lifs eða liðið? Einhvern andiegan Ieið- toga? Vigdis: „Auövitaö, en það er mitt einkamál”. Guðlaugur: „Ég dáist aö mörg- um mikilmennum. Ef ég ætti að taka eitt átrúnaöargoö út úr, þá yröi þaö hiklaust Jesús Kristur. Hann var mikill spámaöur. FÓLKIÐ BAK VIÐ FRAMBJÓÐENDURNA

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.