Helgarpósturinn - 13.03.1981, Page 14

Helgarpósturinn - 13.03.1981, Page 14
14 ÝftfiW! Innbakaðar kindalundir Þaft er Gunnlaugur Astgeirs- son. menntaskólakennari og bdkmenntagagnrýnandi. sem leggur til Helgarrétt að þessu s i nn i. Hér er uppskrift af kinda- lundum, gómsætasta bitanum úr blessaðri sauðkindinni okkar. Slaturfélag Suðuriands tók upp á því snjallræði fyrir örfáum árum að bjóða upp á kinda- lundir og hjá þeim fást þær oftast. Það sem þarf i þennan rétt fvrir svona ca 4 til 5 er: Ca 80«—1000 gr kindalundir. 200 gr nvir sveppir eða dósa- sveppir. Hvitla ukur (hvitlaukur fint saxaður. h vitlauksduft eða salt). Karrv. Rasilikum. Salt. Olia og smjör tilhelminga, til að steikja upp úr. Olian og smjörið hitab á pönnu, lundirnar snöggsteiktar með kryddinu. Sveppirnir sneiddir niður og brugðið á pönnuna með kjötinu. Þegar þetta er brúnað er pannan tekin af eldinum og kjötið látið kólna. A meðan er deigið flatt út frekar þunnt. Siðan er hverri lund pakkað inn i deig ásamt svolitlu af sveppunum og pakkinn látinn á grind yfir ofnskúffu og þess gætt að samskeytin snúi niður til þess að pakkinn opnist ekki. Pakkarnir eru siðan penslaðir Gunnlaugur Astgeirsson með samanhrærðu eggi og bakaðir i ofni við 200 gr C i 20—35 min, eða þar til deigið er vel bakað. Með lundunum er gott að borða sveppasósu, hris- grjón og gott hrásalat eða til dæmis salat úr hálfri dós af mai's og hálfri dós af belg- baunum með hvitlauksdressing (3 matsk. olia,3 matsk. sitrónu- safi og hvitlauksduft. Og svo að sjálfsögðu gott létt rauvin t.d. CHIANTI ANTINORI. Það má vissulega einnig nota gri'salundir i þessa uppskrift en þá yrði rétturinn mun dýrari. Einnig má leggja lundirnar i kryddlög (marineringu) i svona 2—3 tima og fara svo með þær eins og segir hér að framan, en þá tapa þær vissulega sinu eiginlega kjötbragði. Þetta er mjög bragðgóður og saðsamur matur þannig að ef forréttur á að vera lika á mat- seðlinum er vissara að hafa hann léttan. Fö§tudag.ur ,13.. mars 198T; Þessi nýi staður er svipaður „Winny’s”, nema hvað nafnið er annað. Upphaflega átti hann nú að vera „Winny’s” númer tvö, en það breyttist, af ókunnum orsök- um. Hjá Tomma á Grensásvegi 7 verður hægt að fá grillmat af ýmsu tagi, en aðaláherslan verbur á „ameriskum” ham- borgurum, sem afgreiddir verða i ýmsu formi. Aherslan verður lögð á gott hráefni og fljóta þjónustu, og er reiknað með að margir munu taka matinn með sér heim. En fyrir þá sem vilja frekar borða uti verða yfir fimm- tiu sæti. Ogekki nóg með aö . 11 ^ Reykvik- íngar séu að fá aukið úrval ham- borgara. Sem kunnugt er hafa Hafnfirðingar getað fengið sér kjúkling i „Kentucky Fried Chicken” þar i bæ siðan i fyrra, Vinna hefur staðiö y fir i nýja hamborgarastaðnum við Grensásveg. Meiri hamborgarar - og kjúklingar seinna Alltal' fjölgar matsölustöðum bæjarins. Nú á.morgun opnar enn einn: Tomma hamborgarar á sá að heita. Það er Tómas A. Tdmasson, sem eitt sinn var kcnndur við Festi i Grindavik sem á staðinn og rekur, en hann setti á miðju ári I fyrra á stofn ..Winny’s hamborgarastaðinn á I.augaveginum. en þess verður varla langt að biða að Reykvíkingar fái sinn kjúkl- ingastað h'ka. I samningum inn- lendu eigendanna við hið alþjóð- lega stórfyrirtæki með sama nafni, er reiknað með tveimur sölustöðum á höfuðborgarsvæð- inu. Þegar er hafinn undirbúning- ur að opnun hins, og hann verður innan borgarmarkanna. — GA líf og fjör allan sóla Endalaus Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn. Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu fólki. Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir, farandsirkusar koma ístuttarheimsóknirog víða troða upp ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel þegar þeirra er síst von! Einstaklega ódýrir og góðir veitinga- staðir ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum fullkomna velheppnað sumar- leyfi á Rimini. Reyndir fararstjórar benda fúslega á alla þá fjölbreyttu mögu- leika sem gefast til stuttra ferða meðfram ströndinni. Róm - 2ja daga eða vikuferðir Feneyjar - ,,Hin sökkvandi borg“ Flórens - listaverkaborgin fræga San Marinó - „frímerkja-dvergríkið" ofl. ofl. • Go-cars kappakstursbrautir • Rennibrautasundlaugar Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 • Tivolí • Sædýrasöfn • Hjólaskautavellir • Mini-golf • Skemmtigarðar • Leikvellir • Tennisvellir • Hestaleigur aeradria Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy ) RIMINIAIRPORT

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.