Helgarpósturinn - 16.10.1981, Side 4
NAFN: Friðrik Sophusson STAÐA: Alþingismaður FÆDDUR: 18. október 1943 HEIMILI:
Skógargerði 6, Rvik. HEIMILISHAGIR: Eiginkona, Helga Jóakimsdóttir, fjögur börn
BIFREIÐ: Dodge árg. ’74 AHUGAMAL: Pólitik, iþróttir og fleira
„Ég er ekki á brottrekstrarlínunni”
Kjaramálin, vandinn i sjávarútvegi, fjárlögin og fieiri stórmál á stjórnmálasvibinu falla f skuggann
af tíóindunum i Sjálfstæðisflokknum um þessar mundir. Landsfundur flokksins verður haldinn eftir
hálfan mánuð og þegar liggur fyrir, aö hörö barátta verður á fundinum, þ.á.m. i kosningu um helstu
trúnaöarstöður.
Hvaö gerir Gunnarsliðið, hvað gerir Albertsarmurinn, hvernig munu Geirsmenn standa að málum?
Svo ekki sé taiaö um fleiri andstæðar fylkingar flokksins.
Friðrik Sophusson alþingismaður hefur þegar boöiö sig fram tii varaformannssætis i flokknum. A
móti honum fer Sigurgeir Sigurösson á Seltjarnarnesi og jafnvel Matthias Bjarnason þingmaður og ef
til vill Pálmi Jónsson ráðherra. Þegar þetta erritað eru framboðsmál ekki fullljós og margt getur gcrst
á næstu dögum. En það er Friðrik Sophusson varaformannskandidat Sjálfstæðisflokksins, sem er í yfir-
heyrslu Heigarpóstsins.
Ertu að hætta þinu pólitiska lifi
með þessu framboði til varafor-
m an ns ?
,,Já, kannski má orða þaö
þannig. Ég er auðvitað að taka
áhættu með þvi að gefa kost á
mér sem varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins. Mér getur mis-
tekist, en eins getur þetta fram-
boð orðið til þess að styrkja stöðu
mina i flokknum.”
Nií hefur þú sjálfur sagt, að
meðal þinna dyggustu stuðnings-
manna sé unga fólkið. Þá er lik-
legast átt við fólk úr Sambaudi
ungra Sjálfstæðismanna. En það
er einmitt SUS, scm vill ganga
hvað harðast fram i þvi að skera
á landsfuiidiiium — skera niður
Guniiarsmenn. Ert þú á þessari
linu þinna stuðningsmanna?
,,Ég er ekki á brottrekstrarlin-
unni. Ég hef gert það upp við m ig,
að það sé Sjálfstæðisstefnunni
fyrir bestu að reyna til þrautar
hvort ekki sé hægt að ná Sjálf-
stæðismönnum saman i samhent-
an Sjálfstæðisflokk. Ég vek at-
hygliáþvi', aöég býstviðað njóta
stuðnings yngri manna i flokkn-
um, en burtséð frá þessari af-
stöðu sem þú lýstir áðan.”
Er Friðrik Sophusson að búa til
nýja imynd af sér með þessu?
Ertu kominn i kosningahaminn
og hann skal heita ..Friðrik, mað-
ur sátta og samlyndis”?
,,Ég hef ætíð verið þeirrar
skoðunar,aö þaðeigiað reyna að
lægja öldurnar i flokknum og
byggja bru á milli þeirra afla,
sem að undanförnu hafa tekist á
innan flokksins.”
„Lægja öldur”, „ná sáttum”,
„byggja brú”, segir þú. Eru þetta
ekkibara iiuiautóm orð. Er rauu-
veruleikimi ekki alltaiuiar og það
fullljost að Sjálfstæöisflokkuriun
er þverklofiiui, þegar einn hluti
flokksins er i rikisstjórn og annar
utau?
,,Sá hluti Sjálfstæðisflokksins,
sem núer irikisstjórn, verður þar
ekki tíl eilifðar. Sömuleiðis á ég
von á þvi að sá hluti Sjálfstæðis-
flokksins, sem er utan stjórnar,
eigi f framtiðinnieftirað komasti
stjórnaraðstöðu. öll pólití'k geng-
ur út á það að ná völdum til að
framkvæma stefnu við stjórn
landsins. Minn draumur er auð-
vitaö sá, að sjá flokkinn samein-
aðan við stjörnartaumana.”
Þetta eru framtiðarvangavelt-
ur hjá þér, en landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins hefst eftir hálfan
mánuð, og varla verður nein
breyting á stjórn laudsins fyrir
þauu tima. Hvernig ætlarðu að
koma á sáttum á þessum sama
landsfundi eftir hálfan mánuð,
þegar Geir og hans menn eru utan
stjórnar en Gunnarsliðið í stjórn?
,,Ég hef alltaf gengið út frá þvi
að það taki talsverðan tima að
sameina flokkinn algjörlega. Það
erekki skoðun min, að það gerist
á einum iandsfundi, hvort sem ég
verð kjörinn eða einhver annar.
Það hlýtur að taka nokkurn
tima.”
Heldurðu að tvístirnið — Geir
Friðrik — ef af yrði, myndi sýna
rétta og eðlilega pólitfska breidd i
flokknum ?
,,Ég get ekkert sagt um það,
hvort slík samsetning sýni „rétt
hlutföll” eða „eðlilega breidd” i
flokknum. Verði ég kjörinn tel ég,
aö landsfundarfulltrúar séu með
þvi að veita mér umboð til að
vinna sleitulaust að þvi að leiða
saman þá hópa i flokknum, sem
hafa haft mismunandi viðhorf.”
Landsfundarfulltrúar vilja
væntanlega mjög gjarna fá að
heyra afstöðu þína til annarra
kandi'data til trúuaðarstarfa fyrir
flokkinn. Hvaö meö forinaiininii
Geir Hallgrfmsson í þvi sam-
bandi?
,,Ég skal fúslega viðurkenna
það, að ég hefði gjarna viljað fá
opnari umræðu i forystuliði Sjálf-
stæðisflokksins um forj'stumál
hans, i framhaldi af siðustu kosn-
ingum og stjórnarmyndun. Nú er
ljóst að Geir Hallgrimsson hefur
ákveðið að gefa kost á sér áfram,
og liklegt er að hann verði kjör-
inn. Ef ég verð kjörinn varafor-
maður flokksins, þá ber mér auð-
vitað skylda til þess að standa við
hlið formannsins, hver sem hann
er.”
„Heföir gjama viljað fá opnari
umræðu”, segir þú. Hvað áttu
við?
,,Ég hefði talið það eðlilegra,
miðað .við þá stöðu, sem upp er
komin i flokknum, að forystu-
sveitin fengi tækifæri til að
komast að niðurstöðu óbundin af
þvi að formaöur flokksins væri i
framboði. Ég tek það fram, að
niðurstaðan hefði að sjálfsögðu
getað orðið sú, að Geir Hall-
grimsson hefði verið talinn heppi-
legasta framboðið eftir slilíar
umræður. Þessari afstöðu minni
hef ég margoftlýst opinberlega.”
Teldirðu þá ekki eðlilegt eins og
nú er komið málum, að Geir fengi
mótframboð til formaiius, þannig
að hreinar linur fengjust i afstöðu
manna?
„Hver veitnema það getikom-
ið fram mótframboð”.
Fyndist þér sjáifum slikt mót-
framboð æskilegt?
„Kosningar til formanns og
varaformanns eru óbundnar, og
allir Sjálfstæðismenn i kjöri.
Munurinn á formannskjörinu og
varaformannskjörinu nú er hins
vegar sá, að formaðurinn gefur
kost á sér til endurkjörs, en vara-
formaðurinn ekki”.
Vilt þú fá stjórnarsiiina á topp
piramidans i flokknum?
„Ég tel það vera heldur óþén-
ugt, að i æðstu trúnaðarstöðum i
flokknum sitji menn, sem séu á
öndverðum meiði um þessa rikis-
stjórn. Mikill minnihluti þing-
manna flokksins, flokksráðs og
annarra stofnana flokksins, hefur
lýst yfir stuðningi við ríkisstjórn-
ina og mér finnst það þessvegna
varla eðlilegt, að þeiri eigi aðild
aö æðstu stjórn flokksins, þótt
þessi hópur, og aðrir minnihluta-
hópar I flokknum, eigi að sjálf-
sögðu að hafa áhrif á stefnu og
störf flokksins.”
Þú vilt sem sagt ekki sjá Gunn-
arsmemi I neinum toppembætt-
uin?
„Ef landsfundurinn kemst að
þeirri niðurstöðu, að stjórnar-
sinnar skuli sitja I æðstu stjórn-
inni, þá ber að hlita þvi. A lands-
fundi sitja fast að 1000 Sjálfstæð-
ismenn, valdir úr hópi starfandi
Sjálfstæðismanna um allt land,
og það er auðvitað þeirra ddmur,
sem er endanlegur i þvi máli.”
Nú vitum við ekki hug lands-
fundar, enn sem komið er, og ég
spyr þig þess vegna en ekki
landsfundinn, hvort það sé ekki
eðlilegt, að Gunnar og hans menii
fái sinn skerf af toppstöðum i
flokkuum, þegar skoðauakaniiaii-
ir sýna aö 40% Sjálfstæðismaima
styðja rikisstjórn Gunnars?
„Það eru kjósendur sem
ákveða hverjir sitja á þingi fyrir
Sjál fstæðisflokkinn. Nokkrir
þingmenn flokksins — i raun mik-
ill m innihluti,hafa tekið sig sam-
an um að standa að núverandi
rikisstjórn með öðrum ftokkum,
gegn yfirgnæfandi meirihluta
flokksráðs. Skoðanakannanir á
milli kosninga breyta engu þar
um til eða frá, en auðvitað hljóta
landsfundarfulltrúar að taka sitt
miö af þeim og aðstæöum öllum
þegar þeirvelja sina umbjóðend-
ur til forystustarfa.”
Þú segist hafa stuðning i fram-
boði þinu. Getur þú t.d. nafn-
greint nokkra stuðuingsmenii
iiiiian þingflokksins?
,,Ég kæri mig ekki um það.”
Eru beir til?
,,Ég tel það vera ástæðulaust
fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins að koma sér saman um, hver
sé i framboði til varaformanns
við núverandi aðstæður. Einnig
er ásæðulaustfyrirþá aðlýsa yfir
stuðningi við einn frambjóðanda,
þegar ekki er ljóst, hve margir
munu gefa kost á sér.”
Eu heldurðu að þú fáir stuðuing
nokkurra þingmaiiiia, þegar til
kemur?
„Ég gæfi ekki kost á mér, ef ég
gerði mér ekki vonir um að
sigra.”
Styður Geir þig?
„Ég hef ekki spurt hann að
því”
Hvað með Gunnar? — Nú segir
sagan aðGumiar Thoroddseu hafi
i eiua tíð talið Friðrik Sophusson
uiigan og efnilegan i pólitfkinni og
sótt það t.d. mjög fastaðfá haun
með i ri'kisstjóniarævintýrið á
sinum tima. Þú hafnaðir þvi til-
boði Gunnars. Heldur þú að hrifn-
ing Gunnars á þér hafi eitthvað
dvinað á siðustu misserum?
„Það er rangt að Gunnar hafi
boðið mér sérstaklega i rikis-
stjórnina eða til stuðnings við
stjórnina á si'num tima, umfram
það, að hann bauð þingflokknum
öllum til samstarfs. Ég undir-
strika það, aö ég áljt mig hvorki
vera i svokölluðum Gunnars- né
Geirshópi. Ég er fyrst og fremst
Sjálfstæöismaður og höfða fyrst
og fremst til almennra Sjálfstæð-
ismanna, sem ekki vilja láta
draga sig i' dilka”.
Hefurðu rætt þitt framboð við
Guunar Thoroddsen?
„Já, og við Geir Hallgrimsson
h'ka.”
Hefur Guiinar i þeim samtölum
tekið einhverja afstöðu til þins
framboðs?
„Nei. ”
Hvorn viltu sem borgarstjóra-
kandídat Sjálfstæðisf lokksius, Al-
bert G uöm uudssou eða Davið
Oddsson?
„Min skoðun er sú, að það eigi
að fylgja Urslitum prófkjörs, sem
fram fer i næsta mánuði, og ég
geri mér vonir um að báðir þessir
menn verði i framboði i þvi próf-
kjöri, ásamtöðrum góðum mönn-
um eins og Magnúsi L. Sveinssyni
og Markúsi Erni Antonssyni.
Hvorn munt þú setja ofar á lista
i þvi prófkjöri?
„Frambjóðendum verður ekki
raðað i þvi prófkjöri.”
Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn
eiginlega i mörgum brotum og
brotabrotum i dag, Friðrik? Þið
hafið Geirs- og Gunnarsarm ana ,
A Ibertsliði ð, ungher jahópinn ,
Guðmnndar-Ey verjaklikuna,
Haukdalsgengið, Sólnessöfnuö,
lögfræðingana, verkalýðsleiðtog-
ana og svo framvegis og fram-
vegis. Getur þú bætt nokkrum
tugum fylkinga i hópinn og full-
komnað hina margklofnu mynd
flokksins? Hvað heldurðu að
armarnir séu margir i allt?
„Sjálfstæðisflokkurinn er
byggður upp af einstaklingum
fyrst og fremst, og ef telja á brot-
in út i ystu æsar, þá er liklega
hægt að nota þá tölu, sem við
fengum i siðustu Alþingiskosn-
ingum.”
Þú stendur náttúrlega i kosn-
ingasmölun um þcssar mundir.
Máttu nokkuð vera að þvi að
siuna þingþrasinu á meöan?
„Ég hef enn sem komið er,gert
lftið i þvi að afla fylgis meðal
landsfundarfulltrúa, en mun að
sjálfsögðu eiga viðtöl við menn
áðuren til landsfundarins kemur.
Hins vegar hafa margir lýst yfir
stuðningi sem ég er þakklátur
fyrir.”
Kviðir þú átökunum á lands-
fundinum og erkomiim kosninga-
skjálfti i þig?
„Nei.”
Ertu búinn að semja framboðs-
ræð una ?
„Nei, og óvist er hvort hún
verður flutt. Ég held að fram-
boðsræða á landsfundi skipti ekki
sköpum, heldur það traust sem
viðkomandi frambjóðandi hefur
unnið sér hjá landsfundarfulltrú-
um með starfi sinu i Sjálfstæðis-
flokknum, og fyrir Sjálfstæðis-
stefnuna.”
Er það ráðherrasæti i rikis-
stjórn seinna meir, sem rekur þig
út f varaformannsslaginn?
„Nei, þá hefði verið vænlegra
að sitja þægur hjá og biða
átekta.”
Það hefur mjög verið nefnt að
likur séu einnig á framboði Matt-
hiasar Bjarnasonar til varafor-
manns. Er einhver málefna-
ágreiningur á milli ykkar Matthi-
asar, sem skilur ykkur að?
„Við erum báðir i stjórnarand-
stöðu i ftokknum, en það má
kannski segja, að einhver
áferðarmunur sé á okkur tveim-
ur...”
... Annar ungur, hinn kominn á
efri ár?
„Aldursmunurinn ernáttúrlega
staðreynd, sem menn hljóta að
sjá, en Matthias hefur tekið mjög
harða afstöðu gegn þeim aðilum
innan Sjálfstæðisflokksins, sem
styðja rikisstjórnina. Ég vil hins
vegar þrautreyna, hvort ekki sé
hægt að ná þessum hópum saman
i stóran og heilsteyptan flokk.”
Þú ert sem sé fulltrúi sáttar-
gjörðarinnar, en Matthias yrði
lúðurskurðarm aðurinn?
„Það eru þin orð, en ekki min,
og ég tek það fram að Matthias er
að minu áliti einn áhrifamesti og
skeleggasti þingmaður flokksins
og hann fékk góða einkunn sem
ráðherra.”
Hververður næsti varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins?
„Sá sem fær flest atkvæði i
varaformannskjörinu á lands-
fundinum. Vonandi Friðrik Sop-
husson.”
eftir Guðmund Árna Stefánsson
myndir:Jim Smart