Helgarpósturinn - 18.06.1982, Side 8

Helgarpósturinn - 18.06.1982, Side 8
M) Föstudagur 18. júní 1982 _Helgai--- -Pasturinn fyrirsvari fyrir sendinefndinni, jæja, viö sjáumst þá I Sov- étrikjunum. Og þar eigum viö aö vera mætt 1. september. Eins og viö sögöum áöan vitum viö ekki enn um nánari til- högun en okkur skilst aö viö munum koma fram á iþrótta- völlum, i samkomuhúsum og jafnvel i sjónvarpi og út- varpi. Þá er einnig ætlunin aö gera þarna fjögurra laga plötu fyrir sovéskan markaö.” Ekki er hægt aö segja, aö þaö sé daglegur viöburöur aö islenskar rokk- og popphljómsveitir leiki i Sovéti ikjunum. Ekki munum viö betur en aö Haukur Morthens sé eini is- lenski dægurlagasöngvarinn, sem þangaö hefur veriö boö- inn fram aö þessu. Þeir Björgvin og Magnús segjast hlakka mikiö til feröarinnar ,,en við gerum okkur vita- skuld lika grein fyrir þvi, að þetta er feikileg ábyrgð. Viö færum ekki aöeins sem viö sjálfir, heldur lika sem fulltrú- ar islenskrar dægurtónlistar. Einskonar sendiherrar poppsins á íslandi.” Þeir segjast reikna meö, að i þessari islensku sendi- nefnd veröi alls ellefu manns, hljóöfæraleikarar og aö- stoðarfólk. í Sovét bætast i hópinn þarlendir menn, túlkar sem tala bæði ensku og islensku auk sins móöurmáls. Landreisa í ágúst „Þetta er svo einstakt tækifæri, aö auövitaö vilja allir fara. Enn hefur þó ekki verið ákveöiö hverjir verða i hópn- um — nema hvaö aö hljómsveitin er fullskipuö. Auk okkar manna verða i henni Björn Thoroddsen gitarleikari og tveir Sviar, skóiabræöur Björns úr Guitar Institute for Technology i Hollywood — á bassa og trommur. Aherslan veröur lögö á aö kynna áheyrendum I Sovétrikjunum úr- val af islenskri dægurtónlist. Ekki bara gömul vinsælda- lög frá Brimkló og Brunaliöinu.” En þaö veröa ekki aðeins sovéskir áheyrendur, sem fá . að heyra i þessari hljómsveit — hvaö sem hún svo veröur kölluö. I ágúst ætla músikantarnir aö þeytast um landið og skemmta á 20-25 stööum. I för meö þeim veröur hópur leikara, svokallaöur „trllen dúllen doff”-hópur, sem sam- anstendur af Eddu Björgvinsdóttur, Gisla Rúnari Jóns- syni, Randver Þorlákssyni og Siguröi Sigurjónssyni. Þau hafa samið drjúga hluta áramótaskaups sjónvarpsins undanfariö og i allan vetur skemmt fyrir fullu húsi meö kabarett i Þjóöleikhúskjallaranum. (Þá er hugmyndin, aö Þórir Baldursson útsetjari og hljómborösleikari bætist i hljómsveitina um miöbik íslandsreisunnar.) „Þetta verður svona undanfari og aðalæfing fyrir Rúss- landsferöina”, sögöu Björgvin og Magnús. „Leikararnir verða meö leikatriöi á skemmtunum og svo spilum við fyrir dansi. Upphaflega ætluðum viö aö vera tvo mánuöi á feröalagi um landiö en vegna Sovétferöarinnar höfum við þjappaö túrnum saman á einn mánuö. Þaö þýðir aö við munum halda skemmtanir — ekki dansleiki — i miöri viku. Böllin veröa svo i kringum helgarnar eins og venja er.” Afgreiddir sem óalandi og óferjandi Þeir félagar hafa hvilt sig frá dansleikjaspilamennsk- unni i vetur. Báöir hafa unniö viö plötuupptökur og upp- tökustjórn, Magnús rekur vídeóleigu i Hafnarfiröi og frá Björgvin kemur á næstu dögum ný sólóplata, sem hljóörit- uö var i Englandi siöla vetrar. En hvernig skyldi þeim lit- ast á stöðuna i islensku rokki I dag, eftir aö hafa veriö utan hringiöunnar um tima — og fengið á sig haröa og óvægna gagnrýni yngri manna, nýrrar kynslóðar i rokki? „Mér list mjög vel á stööuna.” Björgvin Halldórsson varö fyrri til svars. „Eins og alltaf er, þá eru sumir af þessum strákum góöir, einstaka hljómsveitir eru góöar — hitt er skrum.” Magnús tók undir þetta: „Þaö hafa náttúrlega verið dregnar mjög skarpar linur i þessu að undanförnu. Viö höfum nánast veriö afgreiddir sem óalandi og óferjandi en tökum þaö ekki nærri okkur. Viö erum sjálfir alveg klárir á okkar stööu — vitum hvaö við kunnum og getum. En viö vitum lika, að sumir þeirra sem hæst hafa geta ekki mik- iö.” Björgvin: „Aöstaöan hér fyrir þessa músik og öll starfs- skilyröi eru allt önnur núna en var þegar viö vorum aö byrja. Þessi kynslóð okkar, ef þú vilt nota það orö, hefur byggt mikið upp i þessum iönaöi hér — komið upp full- komnum hljóðverum, plötupressu og fleira. Yngri strák- arnir njóta góös af þessu — þaö sést best á þvi gifurlega plötumagni, sem nú kemur út. En hvaö varöar gagnrýn- ina, þá kippi ég mér ekki upp viö þaö. Ég lit á þaö frekar sem kompliment — ég man vel eftir þvi sjálfur, þegar ég var aö byrja, hvernig viö gagnrýndum og geröum jafnvel grin aö Ragnari Bjarnasyni og Hauki Morthens. Nú geri ég mér grein fyrir ástæöu þessa „fjandskapar” okkar: þessir menn voru einfaldlega ógnun við okkur. Þeir vissu allt um þennan bransa — allt, sem hefur tekiö okkur tiu og fimmtán ár aö læra. En þeir eru lika enn i fullu fjöri og engir aukvisar heldur. Ég held aö þetta sé að endurtaka sig núna.” No business like show business Magnús: „Ég er ekki viss um aö þessi sveifla eigi eftir aö skila mörgum góöum músiköntum. Þetta er kannski núna eins og kartöflugaröur, sem á eftir að taka upp úr, en mér sýnist þetta nú samt. Þaö sem mér þykir verst er aö margir af þessum krökkum, yngri hljóöfæraleikurunum, ganga meö ógurlega fordóma gagnvart þeim, sem á und- an hafa farið — og ég er hræddur um aö þau þurfi aö éta sumt af þessu aftur þegar fram i sækir.” Björgvin: „Er þetta ekki bara eins og þaö var? magnús: „Jú, auövitaö ganga allir i gegnum þetta skeiö. Ég man sjálfur vel eftir þvi þegar ég var svo mikill töffari og pönkari aö ég ætlaöi aö henda mér I drullupoll þegar gömlu skólafélagarnir voru aö koma af unghjóna- balli I Keflavik. Bara til aö sjokkera þá, sem mér fannst svo smáborgaralegir og uppskrúfaðir. Nú sé ég auövitaö að þetta var bara della. En þetta er hart lif, rokkiö. Þaö er ég búinn aö reyna — ég hef veriö atvinnumaöur i þessu I sextán ár. Ég er búinn að horfa upp á suma félaga okkar veslast upp i þessu og jafnvel deyja — deyja úr rokki. Nei, krakkarnir eiga nefnilega eftir aö læra, aö þaö er no business like show business.” „Við sjáumst í Sovétríkjunum’ ’ — sagði sovéskur menningarmálafulltrúi við Björgvin Halldórsson og Magnús Kjartansson sem hyggja á hljómleikaferð um Sovét ast á við rokk og ról. Ekki einasta eru þeir tveir nú aö setja saman nýja hljómsveit heldur eru þeir að takast á viö stærsta og mest krefjandi verkefni sitt til þessa: hljóm- leikaferö um Sovétrikin. Þrjátiu tónleikar á fimmtán dög- um i jafn mörgum borgum Ráöstjórnarrikjanna. I boði menningaryfirvalda þar eystra. „Þaö hefur eiginlega tekið tvö ár aö koma þessu á”, sögöu þeir Björgvin og Magnús þegar viö hittum þá i vik- unni. „Okkar gamla plötufyrirtæki hóf þá bréfaskipti viö „rikisútgáfu hljómplatna” i Moskvu. I fyrra kom svo hingaö sendinefnd, sem viö hittum og ræddum viö og spil- uöum fyrir. Svo fengum viö nú nýlega staöfestingu á þessu hljómleikaferöalagi en biöum enn eftir nánari upplýsing- um og tillögum þeirra um skipulagningu. Þegar þaö er allt komiö tökum viö endanlega ákvöröun um hvort viö þekkj- umst þetta boö.” Sendiherrar poppsins á íslandi Þaö var i Naustinu, sem sovésku fulltrúarnir hlustuöu 4 þá Magnús, Björgvin og fleiri hljóöfæraleikara. Nokkrum dögum siöar komu Rússarnir aftur og hlustuöu á hljóm- sveitina i Sigtúni. „Þetta var mjög skritin uppákoma þarna i Naustinu”, sögöu þeir. „Viö spiluöum fyrir þau I klukkutima eöa svo og þau sátu öll meö steinandlit og hlustuöu. Aldrei var klappaö á milli laga og okkur var fariö aö litast svona og svona á þetta allt saman. En þegar við vorum búnir þá klöppuöu þau eins og þau ættu lifið að leysa og þökkuöu okkur aö auki meö handabandi. Svo sagöi konan, sem var i Þaö hefur væntanlega ekki fariö framhjá neinum, aö mikill uppgangur hefur veriö i rokktónlist á tslandi und- anfarin misseri. ótrúlegur fjöldi hljómsveita hefur sprott- iö upp, eins og svo greinilegt var I kvikmyndinni Rokk I Reykjavik, og skiptir ekki alltaf máli hvort þessir ungu hijómlistarmenn eiga hljóöfæri. Þaö skiptir jafnvel ekki alltaf máli, hvort þeir kunna á hljóöfæri, séu þau til. Aöal- atriöiö er aö drifa I aö stofna hljómsveit og koma henni af staö. Og kraftinn vantar ekki, eöa áhugann. Þessi uppgangur minnir á þaö sem geröist fyrir 15-20 ár- um þegar óteljandi hljómsveitir voru stofnaöar I kjölfar Bítlaæöisins. Eins og þá standa nú ákveönir menn upp úr — og þeir eru reiöir. Gefa dauöann og djöfulinn f ailt og alla. Nema hráa og haröa tónlistina og þau lifsviöhorf, sem hún táknar. Tveggja ára undirbúningur Liklega hafa fáir fengiö jafn haröa og afdráttarlausa gagnrýni frá þessari nýju rokkkynslóö og helstu fulltrúar næstu rokkkynslóöar þar á undan. Eöa hét þaö kannski poppkynslóöin og eru poppararnir, sem nú eru margir hverjir um og yfir þritugt, þá skallapoppararnir I dag? Er kannski Björgvin Halldórsson, einhver mesta stjarna, sem skotist hefur upp á Islandi, helsti skallapopparinn? Gamall og þreyttur og úr sér genginn þegar hann stendur á þritugu? Hann hefur ekki fariö varhluta af gagnrýni yngri rokkaranna. Og þá ekki siöur Magnús Kjartansson. En þeir eru siöur en svo dauðir úr öllum æöum og ekki á þeim aöheyra annaö en aö þeir séu enn reiöubúnir aö tak-

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.