Helgarpósturinn - 18.06.1982, Side 30

Helgarpósturinn - 18.06.1982, Side 30
I < 30 Föstudagúr'18. júrií'1982 _Helgar——•••••—— .posturinn Aðfaranótt miðvikudags var bjargað i horn á knattspyrnuvelli kjarasamninganna. Spurn- ingin er hvort þjóðarhag var þar með borgið. Bjargað í horn Hefur þjóðarhag verið bjargaö i horn? Þetta hlýtur að vera spurning dagsins eftir að leikurinn á knattspyrnuvelli kjarasamn- inganna var óvænt og skyndilega stöðvaður aðfaranótt miðvikudagsins, þegar allt virt- ist komið i einn hnút, svo jaöraði við leik- leysu. ^^þessum lótboltatimum mætti halda likingunni áfram og velta þvi fyrir sér hvernig spilast úr hornspyrnunni. En eitt er vist, aö það ber að virða þaö við dómara leiksins, Guðlaug borvaldsson rikissátta- semjara, að hann skyldi flauta á þessu augnabliki. Það hefur nefnilega komið betur og betur i ljós i samningaviðræðunum undanfarnar vikur, að samninganefndarmenn launþega hafa i rauninni afskaplega litinn áhuga á þvi að fara i verkföll, og harðar verkfalls- aðgerðir eigi minni hljómgrunn meðal al- mennings en oft áður. Og það hef ég sann- frétt, að svo hafi samninganefndarmenn ASI verið hræddir við verkföll, að þeir hafi gripið fegins hendi það tækifæri sem gafst til að fresta þeim, ekki sist nefndarmenn utan af landi, sem fylgjast náið með at- vinnuvegunum. Um afstöðu VSl manna til verkfalla þarf ekki að fjölyröa. í fréttatima sjónvarpsins á þriðjudags- kvöldiö var þó ekki á oddvita þeirra VSÍ- manna, Þorsteini Pálssyni, að heyra, að rofa mundi til innan tiðar. Þá var útlitið þannig, að hinir óvæntu samningar bygg- ingamanna mundu keyra allt saman fast. Nærri 10% hækkun til þeirra strax og um 20% á næstu þremur árum var of stór biti fyrir atvinnurekendur að kyngja, að ekki sé talað um þá hækkun á reiknitölu bónus- manna i byggingariönaðinum sem um samdist. Hefðu þessir samningar orðið fyr- irmynd að allsherjarsamningum má bóka, aðallt bónusfólk i fiskiðnaðinum hefði orðið að fylgja á eftir. ■ ■ Onnur ástæðan fyrir þvi að samningar byggingamanna fóru svona fyrir brjóstið á mönnum er sú, að þar til sprengjan sprakk með „leyniplagginu” fræga lá i loftinu, að samið yrði um hækkanir á bilinu þrjú til fjögur prósent fram til haustsins, en kaup- mætti launanna haldið óbreyttum með breytingu á visitölugrunninum. — Með öllum skerðingarákvæðum sem gilda um visitöluna er Ijóst, að hækkun á borð við þá sem byggingamenn sömdu um ést upp á innan við einu ári, og þá er verr farið en heima setið, segir heimildarmaður okkar, sem fylgst hefur náið með gangi mála i Karphúsinu. Herforingjastjórn Argentinu við hátiöahöld á þjóöhátiöardaginn 25. niai. Frá vinstri: Galtieri forseti ogyfirmaður landhcrsins, Dozo yfirforingi flughersins og Anaya aömiráil yfirmaöur flotans. Herforingjastjórn Argentínu riðar til falls eftir ósigurinn Asannast hafa ummæli franska aðmir- álsins Sanguinetti, sem hann viðhafði þegar sýnt varð aö til vopnaviöskipta myndi koma á Falklandseyjum milli bresks og argentlnsks herafla. Hann lét þá i ljós þetta álit á argentínska hernum: „Það er auðvelt fyrir vopnaða menn að ástunda nauöganir og pyndingar, en herir fyrirgera sál sinni með sliku atferli. Að ganga til bardaga á vigvelli útheimtir viss- an hreinleika, og honum hafa hermenn Argentinu glatað.” Eftir missi beitiskipsins Belgrano I fyrstu vopnaviöskiptum við breska flotann, hefur argentinski flotinn himt i landvari og ekkert látið til sin taka. Frammistaða 15.000 manna landhers á Falklandseyjum, sem átt hefði að hafa sterka stöðu gagnvart mun fámennari landgöngusveitum Breta, gat varla aumlegri verið. Flugherinn er eina grein argentinska heraflans sem sýnt hefur hreysti og leikni. Menéndez, hershöfðingi argentinska liðsins á Falklandseyjum, geröi hver her- stjórnarmistökin öörum verri. Hann notaöi ekki þyrlurnar, sem hann hafði til umráða i Port Stanley, höfuöstað eyjanna, til aö veita af landi mótspyrnu landgöngu fyrstu sveita Breta við Port San Carlos. Siðan lét hann undir höfuð leggjast að reyna að hefta hálfs mánaðar sókn Breta torfæra leið um hrjóstur Austur-Falklands til Port Stanley. Þegar Bretar komust svo i skotfæri við bækistöðvar meginhers Argentinu, kom i ljós að Menéndez hafði ekki hugkvæmst að láta menn sina búa um sig á hæðakollunum umhverfis bæinn. Argentinumenn hafa verið leyndir öllu sem máli skiptir um gang vopnaviðskipt- anna og frammistöðu hers sins, herfor- ingjastjórnin i Buenos Aires hefur látið rit- skoöun sina birta þjóðinni þá mynd af framvindu átakanna, að árásir flughersins hafi valdið slikum usla I breska flotanum að leiðangur Breta geti ekki annað en mis- heppnast. Nú duga blekkingarnar ekki lengur. Leopoldo Galtieri, forseti herforingja- stjórnarinnar og yfirhershöfðingi land- hersins, hætti við aö ávarpa Argentinu- menn af svölum forsetahallarinnar, af þvi að hallartorgið var fullt af fólki, sem heimt- Og á það er lika bent, að meistarar þurfi ekki einu sinni að standa ábyrgir gerða sinna. Þurfi þeir að greiða byggingamönn- um hærri laun geti þeir einfaldlega hækkað taxtá útseldrar vinnu, auk þess sem meist- arar séu flestir launþegar sjálfir, með ör- fáa menn i vinnu. Áður en það kom til tals aðfaranótt mið- vikudagsins að fresta boðuðum verkföllum hafði sú hugmynd þegar vaknað hjá samn- inganefnd Verkamannasambandsins. Þeir voru orðnir uggandi um það, að saga und- anfarinna ára mundi endurtaka sig, þeim yrði beitt fyrir verkfailsvagninn, en bæru svo minnst úr býtum. Og eftir þvi sem næst verður komist breiddust umræður um frestun út um samninganefndirnar eins og eldur i sinu þar til sáttasem jari tók af skar- ið og mæltist til þess viö menn, að vinnu- brögðum yrði breytt á þann veg, að verk- föllum yrði frestað og málin rædd i alvöru. — Eigtók þessa ákvörðunfyrst og fremst með tilliti til fiskiskipanna og fiskiðnaðar- ins. Með þessu móti geta íiskveiðar hafist, og timi fæst til að vinna úr þeim afla sem berst, en ella hefði fiskiðnaðurinn lamast þegar i stað. Auk þess var ljóst, að jafnvel þótt menn vildu setjast niöur strax um nótt- ina og hefja viðræður var vonlaust að ná nokkrum samningum i höfn áður en verk- föll skyllu á. Til þess þarf að minnsta kosti hálfan mánuö, sagöi Guölaugur Þorvalds- son rikissáttasemjari þegar ég náði tali af honum tveimur timum áður en viðræður áttu að hefjast á miðvikudaginn. Liklega er óhætt að fullyröa, að mörgum hefurlétt við að heyra útvarpsfréttir á mið- vikudagsmorguninn. Fleiri og fleiri eru nefnilega farnir að sjá, að ávinningurinn af þvi að eiga heimsmet i verkföllum hefur verið býsna litill, nema þá kannski fyrir einstaka hátekjuhópa sem hafa öðrum betri aðstæður tii að láta að sér kveða. Aðrir liða fyrst og fremst vinnutap og ná varla meiri árangri i launabaráttunni en halda i horf- inu, nema kannski rétt i bili. Slikar raddir heyrast meira að segja úr röðum vinstri- manna núorðið. Eins og hér hefur komið fram er nú svo komið, að jafnvel samninganefndarmenn Alþýðusambandsins veigra sér við að leggja út i verkfall. Ásmundur Stefánsson forseti ASl sagði um þessi mál á miðviku- daginn, að hann væri sáttur við þessa ákvörðun um frestun verkfalla framyfir IMIMLEMO YFIRSVM 'MD aði aö herforingjarnir tækju afleiðingum ósigursins meö þvi að láta af völdum. Lög- reglan var látin dreifa mannfjöldanum, og hafa forustumenn tiu stjórnmálaflokka og verkalýössambanda mótmælt hrottaskap hennar. Stjórnmálaforingjarnir, sem herinn ýtti til hliðar fyrir hálfum áratug, krefjast að stjórnskipan Argentinu veröi látin ganga i gildi á ný, en Galtieri og félagar hans ætla sér greinilega að halda sem fastast i völdin, enda eiga þeir ekki von á góðu eftir morö á allt að 15.000 löndum sinum á fyrstu árum valdaferilsins og nú ósigur fyrir Bretum. Galtieri komst til valda með þvi að hrifsa forsetatignina af öðrum hershöfðingja, Viola aö nafni. Til þess naut hann stuðnings Dozo, yfirforingja flughersins, og Anaya, yfirmanns flotans. Allir bera þeir jafna ábyrgð á hertöku Falklandseyja og öllu sem af henni hiaust. Losni tök þeirra á her- aflanum við ósigurinn, má búast við að lægra settir foringjar hugsi sér til hréyf- ings, úr þvi sú venja er komin á að hver herforinginn svipti annan völdum. mánaðamótin, fyrst og fremst með tilliti til þess að útgerð geti haldið áfram. Ef við litum út fyrir þennan undirstöðu- atvinnuveg þjóðarinnar má lika benda á, að komi til verkfalla riðar annar mikilvægur atvinnuvegur til falls. Það er feröamanna- þjónustan, sem einmitt er að komast i full- an gang um þessar mundir. Það leynist engum að sú atvinnugrein er þjóðarbúinu mikilvæg, þegar þess er gætt, aö hvorki meira né minna en 5 - 6 prósent þjóðarinnar byggir afkomu sina á henni, eða álika stór hópur og islenskir bændur, og gjaldeyris- öílun þessa atvinnuvegar er álika mikil og allra útflutningsatvinnuvega landsmanna, aðfrádregnum útflutningiá áli og álmálmi. Og jafnvel þótt ekki komi til verkfalla er talsverður skaði skeöur i ferðamannaþjón- ustunni. Undanfariö hefur nefnilega af- pöntunum á feröum til ísiands rignt yfir flugfélög og þær ferðaskrh'stofur sem skipuleggja ferðir innanlands. Hver vill eiga á hættu að verða innlyksa á Islandi, landi verkfallanna, um óákveðinn tima? — Þetta er i fyrsta sinn sem ég heyri upp- gjafarhljóð á fólki i bransanum, segir Kjartan Lárusson, forstöðumaöur Ferða- skrifstofu rikisins, og bætir þvi við, að þó kalli þeir ekki allt ömmu sina. Þessi orð eru rituð um það bil stundar- fjórðungi áður en fyrsti samningafundurinn eftir frestunina átti að hefjast. Það var þvi ekki vitað þá hvaöa stefnu málin mundu taka. Forseti ASI lét þau orð falla, að þótt nú eigi að ganga til viöræðna af alvöru séu mörg ljón á veginum. En rikissáttasemjari kvaðst bjartsynn svo lengi sem menn töluð- ust við. Hvort frestunin á miðvikudags- morgun gaf aðeins gálgafrest eða muni leiða til samninga innan þriggja vikna er þvi ómögulegt að segja á þessari stundu. þó virðist andrúmsloftið vera þannig, að samið verði um beinar launahækkanir á heldur lágum nótum, einhversstaðar á bil- inu 3 - 4 prósent og lagfæringar á visitölu- grunninum, þannig að fyrst og fremst verði haldið i horfinu hvað kaupmátt varðar. Spurningin er bara sú, hvort Þorsteini tekst að verja eftir að Ásmundur tekur hornspyrnuna, eða leikmenn á knatt- spyrnuvelli kjarasamninganna lenda aftur i þeirri þvögu, sem sáttasemjari greiddi úr á miðvikudagsmorguninn. eftir Þorgrim Gestsson [ eftir Magnús Torfa ólafsson Herforingjastjórnin anaði út I töku Falk- landseyja af þvi hún reiknaöi alla þætti dæmisins rangt. Hún taldi af og frá aö Bretar snerust til varnar, og ef þeir geröu sig liklega til sliks væri enginn vandi fyrir Argentinumenn að fá Reagan Bandarikja- forseta til að hafa hemil á bresku stjórn- inni. Þar skákaði herforingjastjórnin i þvi skjóli, aö Argentina gegndi sliku lykilhlut- verki i fyrirætlunum Reagans varðandi skipan mála i Rómönsku Ameriku, að hann hætti alls ekki á að hrinda landinu frá sér. Allar þessar bollaleggingar herforingj- anna reyndust rangar, og nú halda þeir þvi á loft að Argentina eigi að snúa baki við Bandarikjunum og leita eftir forustuhlut- verki meöal þróunarlanda sem leiötogi Rómönsku Ameriku. Ekki er sú hugmynd likleg til að bera mikinn árangur, þó ekki væri fyrir annað en hversu Argentinumenn eru illa liðnir meðal annarra þjóða álf- unnar, sér i lagi fyrir kynþáttahrokann sem áður var getið. Ný herforingjastjórn er liklegri mögu- íeiki i Argentinu en að foringjum gömlu stjórnmálaflokkanna takist að fá herinn til að skila völdunum. Flokkarnir eru veik- burða eftir langt valdatimabil hersins, ó- sammála hver öðrum og sumir þar á ofan klofnir. Þvi er með öllu ósýnt aö þeir fái virkjaö ólguna i landinu og óánægjuna með herforingjastjórnina i sina þágu. Frétta- menn, sem fylgst hafa með gangi mála i Argentínu undanfarnar vikur, virðast hall- ast að þeirri skoðun, að eftir ósigurinn taki við upplausnartimabil, þangað til fram á sjónarsviðiö kemur leiötogi og stjórnmála- hreyfing, sem fyllt getur tómarúmiö sem nú rikir. Sjáifsálit Artentinumanna er mikið, og þeir hafa jafnan taliö sig hafna yfir aðrar þjóðir Rómönsku Ameriku. Byggja þeir það einkum á kynþáttafordómum, telja sig nær hreinræktaða Evrópumenn og því æðri en blendinga eins og til dæmis Brasiliu- menn. Ljóst er af atburðum siðustu mán- aöa, að hofmóður Argentinumanna getur hæglega fætt af sér svæsna sjálfsblekkingu. En meðan Argentinumenn eru að leita aö sjálfum sér eftir pólitiska svefngöngu, fer ekki hjá þvi aö Falklandseyjastriðið hefur áhrif i öðrum löndum Rómönsku Ameriku. Sér i lagi hefur Castro Kúbufor- seti séð sér leik á boröi að koma sér I mjúk- inn hjá hinum herforingjunum sem löndum stjórna og hingað til hafa haft horn i siöu Kúbuforseta i þvi skyni að þóknast Banda- rikjunum. Sömuleiðis breytist nú staða Brasiliu. Herforingjastjórnin þar hefur verið alger andstæða þeirrar i Argentfnu að þvi leyti, að hún hefur kostaö kapps um aö skipta sér sem minnst af málum nágrannarikja sinna. Brasilia er lang f jölmennasta og stærsta riki Rómönsku Ameriku, og þjóðir landanna sem að henni liggja eru tortryggnar gagn- vart nágranna sem gnæfir svo mjög yfir þau. Meöan Argentina er úr leik vegna óvissu um framvindu mála þar i landi, verður stjórn Brasiliu aö taka að sér for- ustuhlutverk, hvort sem henni líkar betur eöa verr.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.