Helgarpósturinn - 15.03.1984, Blaðsíða 2
Aldraðir
djamma í
Broadway
☆ ,,Hin gömlu kynni“ er nafniö
á býsna nýstárlegri skemmtun
sem haldin verður í veitinga-
húsinu Broadway fimmtu-
dagskvöldið 22. mars. Já, ný-
stárleg er hún að mörgu leyti,
þótt víst sé að meðalaldur
gesta í húsinu muni fara snar-
hækkandi (setta kvöld.
Skemmtunin er nefnilega
einkum ætluð fólki sem komiö
er yfir sextugt. Þaö er hópur
einstaklinga og áhugamanna
um öldrunarmál sem stendur
fyrir „Hinum gömlu kynnum“,
sem verða „lík að uppbygg-
ingu og þær skemmtanir sem
eru fyrir unga fólkið hér í borg-
inni“, svo notuð séu orð
Róberts Sigurðssonar, for-
stöðumanns Þjónustuíbúða
aldraðra og eins af upphafs-
mönnunum að þessu tiltæki.
„Við sem vinnum að mál-'
efnum þessa hóps vitum að
kjarkurinn er oft ekki mikill.
Flest af þessu fólki hefur aldrei
komið í þetta margumrædda
hús og margt af því ekki einu
sinni komið uppí Breiðholt,“
segir Róbert. „Því ríður á að
aðstandendur aldraðra og þeir
sem vinna að þessum málum
séu með á nótunum og reyni
að hvetja sitt fólk til að mæta,
agíteri eins og það er kallað.
Þetta er vonandi einn liður í
þeirri viðleitni að breyta þess-
um gamla elliheimilismóral, að
fólk hætti að vera til undireins
og það fer inná elliheimili. Ég
þykist líka vita að undirtektirn-
ar verði í samræmi við það.“
Gamalt og nýtt rennur sam-
‘an í einn farveg þettakvöld-á
boðstólum verður norðlenskt
hangikjöt og rjómapönnukök-
ur við undirleik hljómsveitar
Gunnars Þórðarsonar. Tísku-
sýning verður undir stjórn Her-
manns Ragnars Stefánssonar
og þvínæst flytur Anna Guð-
mundsdóttir leikkona gaman-
mál. Feðginin SigurðurÓlafs-
son og Þuríður Sigurðardóttir
taka lagið og loks verður stig-
inn dans fram undir miðnætti.
Og er þá fátt eitt nefnt. Verð
aðgöngumiða verður kr. 500 -
eða eins og Róbert Sigurðs-
son orðar það; „við komumst
að þeirri niðurstöðu að
skemmtun af þessu tagi ætti
að kosta pening. Gamla fólkið
vill ekki þiggja ölmusu frekar
en aðrir. 500 krónur held ég
líka að sé sanngjarnt verð
miðað viö það sem þarna
verður á boðstólum.“^
Dansmennt MR-inga í Oklahólma hefur vakið mikla athygli.
halda ástinni greinilega engin bönd.
☆ Árni Johnsen,
sá litríki alþingis-
maður, varð fer-
tugur um daginn
og urðu margir til
að heiðra afmæl-
isbarnið. Þeirra á
meðal var þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins og
aðrir kollegar af þingi. í því boði
flutti Þorsteinn Pálsson formað-
ur stutt afmælisávarp og sagði
m.a. eftirfarandi sögu af kynnum
sínum af afmælisbarninu: Fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi við síðustu
kosningar; Þorsteinn Pálsson,
Eggert Haukdal og Árni Johnsen
voru á yfirreið um væntanlegt
kjördæmi sitt og héldu baráttu-
fundi. Á einum fundanna bar á
góma fækkun fólks í héraðinu.
Bæði Þorsteinn og Eggert héldu
tölur um nauðsyn þess að auka
atvinnutækifærin á staðnum til að
laða að nýtt fólk. Árni Johnsen
steig hins vegar i pontu með öðru
hugarfari: - Besta aðferðin til að
fjölga fólki í Suðurlandskjördæmi
er sú sama og notuð hefur verið
frá upphafi vega og fram á þennan
dag við fjölgun mannkyns! - Ekki
var meira fjallað um ný atvinnu-
tækifæri á þessum fundi. ★
^ífG/A,
Hér
☆Tímanna tákn? Jú, vissu-
lega lifum við á verðbólgnum
tímum! Ekki munum við betur
en að hér í eina tíð hafi fastur
gangprís á saltkjöti og
baunum verið — túkall!★
HELGARPUSTURINN
fgSBfr HjTT? «B, UAPCPr ttt
Skeif unni 5a, sími 84788.
MIKIÐ ÚRVAL
PRJÓNAGARNI.
Saltkjöt
og baunir-
tvöhundruö
og tíkall!
Allt í sóma í Oklahólma
☆Þetta hefur gengið ofboðs-
lega vel hjá okkur!“ segir
Kolbrún Halldórsdóttirog er
greinilega í háloftunum yfir sér
og sínu fólki. Flestir kannast
sennilega við Kolbrúnu - ja,
þó ekki sé nema við röddina í
henni, sem vekur ekki ófáa
landsmenn til nýs dags - því
hún er einn af umsjónarmönn-
um morgunþáttarins Á virkum
degi. En Kolbrúnu ersitthvað
fleira til lista lagt, því hún er
leikari og hefur gerst æ stór-
tækari á sviði leikstjórnar síð-
ustu árin og leikstýrir nú viða-
mestu sýningu sem Herranótt
Menntaskólans í Reykjavík
hefur nokkurn tíma sett upp,
Oklahólma eftir þá Rodgers og
Hammerstein.
Oklahólma - er það ekki
gamall söngleikur sem öllum
finnst hryllilega hallærislegur?
Kolbrún: „Jú, auðvitaðeru
það viðbrögðin sem ég bjóst
við. Enda er það raunin að
unga fólkið hlær og hlær að
rómantíkinni og dellunni.
Eldra fólkið fellur hins vegar
alveg í stafi. En við leikum
þetta af fúlustu alvöru og
einlægni og hugsum fyrst og
síðast um það að hafa gaman
af þessu.“
Stór sýning? Jú, það er víst
óhætt að fullyrða (Dað.
Leikarareru hérumbil fimmtíu,
og stóreflis hljómsveit nær
eingöngu skipuð nemendum
skólans leikur undir. „Það er
ekki síst gaman að virkja
hæfileika nemenda sjálfra á
þennan hátt, það var ekki lítið
af hæfileikum sem kom á
daginn að fundust innan
veggja skólans. “ Til marks um
það nefnir Kolbrún hljóm-
sveitina, dansana sem eru
samdir og æfðir af einni nem-
endskunni, leikmyndinasem
er gerð af upprennandi mynd-
listarmanni í MR og búninga á
allan þennan fjölda sem eru
saumaðir af nemendum.
„Eini hængurinn á þessu eru
húsnæðismáíin," bætir Kol-
brún við, pínulítið skuggaleg í
röddinni. „Það er auðvitaó
ófært að skólinn eða þá borgin
skuii ekki eiga þokkalegt sam-
komuhús sem hægt er að nota
undir starfsemi af þessu tagi.
Tónabær er góðra gjalda
verður, en leikhús er hann alls
ekki!“ Ætli Guðni rektorgæti
ekki tekið undir þessi ummæli
Kolbrúnar?
Sýningum á Oklahólma
verður fram haldið í Tónabæ
um næstu helgi, flestir
nemendur skólans eru nú
búnir að sjá þetta framtak
skólasystkinanna, en nú er
vonast til þess að aðrir söng-
og leikelskir láti sjá sig...*
HÖGGDEYFAR
í MIKLU ÚRVALI
Við opnum kl. 8.30
og höfum
opið í hádeginu
Næg bílastæði
AUK ÞESS MIKIÐ ÚRVALAF
PRJÓNUM, SMÁVÖRUM
TILBÚNUM DÚKUM 0G
SMYRNA.
TÍSKUGARN, VENJULEGT GARN
HVERGI MEIRA ÚRVAL.
SJÓN ER SÖGU fíÍKAfí/
PÓSTSENDUM DA GLEGA
HOF
- iNGÓLFSSTRÆT11 símí 16764
E
V7S4
EUROCARO
Mikið úrval af bóni-
ulíargarni og alullar-
garni
Opið
laugard.
frá 10-12
Njálsbrenna enn á ný
Enn hitnarað Bergþórshváli
hjá Haukdal og séra Páli.
Þar lítum við skelfd
þann logandi eld
sem lagður var fyrrum að Njáli.
Niðri.
2 HELGAnPÖCTURMN