Helgarpósturinn - 15.03.1984, Qupperneq 5
☆ Fáir einstaklingar eru senni-
lega meira á milli tannanna á
þjóð sinni en þeir sem veljast
til að sjá um hinn umdeilda og
ómissandi þátt Daglegt mál í
útvarpinu. Nýverið lét Erlingur
Sigurðarson af umsjón þáttar-
ins á hátindi glæsilegs ferils
og við tók ungur orðabókar-
maður, Sigurður Jónsson að
nafni. Við höfðum tal af Sigurði
og báðum hann að segja
nokkur deili á sjálfum sér.
„Ég er borinn og barnfædd-
ur Reykvíkingur, en rek líka
ættir mínar austur á Hérað. Ég
var þar hálfgerður sveitamað-
ur fram til fjórtán ára aldurs og
harðmæltur á hverju sumri
fram í október. Nú, svogekkég
þessa hefðbundnu leið; í
menntaskóla og þvínæst tók
ég íslensku, sögu og sálar-
fræði til BA-prófs í háskólan-
um. Síðankenndiég ífimmárí
Menntaskólanum á ísafirði, en
kom svo aftur suður í kandí-
datsnám, sem ég lýk á næst-
unni. Aðalstarf mitt þessa
dagana er á Orðabók Háskól-
ans, þar sem ég fæst einkum
við tölvuvinnslu á orðasafn-
inu. Þetta er nú það helsta.“
- Sígild spurning til um-
sjónarmanns þáttarins Dag-
legt mál; hverja telur þú vera
mestu hættunasemsteðjarað
íslenskri tungu?
„Ég tel nu að áhugaleysi sé
einna verst. Um leið og við
hættum að fylgjast grannt með
því hvaða breytingareru á
seyði í tungunni erum við
komin á visst hættustig. En ég
hef reyndarekki þungar
áhyggjur - þegar ég kom í
háskólann á ný eftir þetta hlé
varð ég var við mikinn áhuga
og grósku í máli og mál-
vísindum, mikið af nýjum og
kröftugum kennurum og
nemendum. Sumum finnst
kannski nóg um frjálslyndið,
en ég held að ákveðið frjáls-
lyndi skaði ekki neitt.“
- Þú hefur fjallað talsvert um
börn í fyrstu þáttum þínum,
máltöku og máluppeldi
barna...
„Já, börn eru mér að mörgu
leyti hugstæð, bæði síðan ég
var í sálarfræðinni og svo síð-
an ég fékk heiftarlega uppeld-
isfræðidellu í tengslum við
kennsluna hérna um árið. Svo
spilar það kannski ekki síst
inní að ég ásjálfurbörn-9 ára
strák, 7 ára stelpu og einn 17
mánaða, og svo náttúrlega
konu einsog gefur að skilja.
Jú, þetta er dálítil pressa að
sjá um þessa þætti,“ viður-
kennir Siguður að lokum. HP
óskar honum velfarnaðar í
sínu vandasama hlutverki...*
Frjálslyndið
sakar ekki
mm m
Ný kynslóð tónskálda
- #1 »v-
x
☆Tíðindamenn Helgarpósts-
ins rákust á þennan fríða og
fjölmenna flokk á rölti sínu um
miðbæinn einn votan góðviðr-
ismorguninn í vikunni. Hvað er
á seyði? Hvert eruð þið að
fara? spurðum við, og var
svarað hressilega að bragöi;
„í morgunkaffi á Hressó!" Við
örkuðum í kaffið og vorum
fræddir á því við eitt hornborð-
ið að öll væru þau nemendur í
Tónlistarskólanum,
upprennandi tónskáld sem
notuðu morgunkaffið til að
skipuleggja mikla tónleika
sem haldnir verða á Kjarvals-
stöðum á þriðjudagskvöldið.
Öll kváðust þau vera nemend-
ur Atla Heimis Sveinssonar,
sem væri sérlegur „maestro"
tónleikanna, en verkin tólf sem
flutt verða á tónleikunum skrif-
ast flest á reikning hópsins
sem sést á myndinni - á
þriðjudagskvöldið er sumsé
kjörið tækifæri til að nema þá
grósku sem er í æðri tónmennt
og tónsköpun á íslandi um
þessar mundir.
Heyrðu, við sjáum ekki betur
en að fyrrverandi poppari og
alþingismaður, FinnurTorfi
Stefánsson, sé þarna á mynd-
inni í hópi okkar yngstu tón-
skálda....^
Ilmsjón:
Egill Helgason
og Jim Smart.
ÖRUGGASTA OG BESTA VALIÐ
MICRA ÖRYGGIÐ FELST í: gæðum og endingu sem Nissan verksmiðjurnar einar geta tryggt.
GULLTRYGGÐ ENDURSALA á verði sem er það langbesta sem nokkur keppinautanna getur boðið á bílurn sem eiga að heita sambærilegir.
NISSAN MICRADX NISSAN MICRA GL
FISLÉTTUR, FRÍSKUR BENSÍNSPARI
SEM LEYNIR Á SÉR.
IIMGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
HELGARPÓSTURINN 5