Helgarpósturinn - 15.03.1984, Page 6
INNLEND YFIRSÝN
Okkur íslendingum bregður ætíð í brún
þegar skörð eru höggvin í sjómannastéttina
okkcir; nú síðast þegar Hellisey VE fórst með
fjórum ungum mönnum undan Vestmcinna-
eyjum fyrir fáeinum dögum. Þetta slys varð
tilefni harðrar ádrepu utcin dagskrár á Al-
þingi á þriðjudaginn.
Það var Árni Johnsen, Verstmcinnaeyja-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem
kvaddi sér hljóðs og gerði að umtalsefni
hægagang við að búa fiskiskipaflotann sjálf-
virkum sleppibúnaði björgunarbáta, svo-
kölluðum Sigmundsbúnaði. Þessi búnaður
er þess eðlis að ef ekki næst að sjósetja
gúmbjörgunarbát áður en skip fyllist af sjó
eða sekkur, losar búnaðurinn björgunar-
bátinn og opnar ioftþrýstiflösku sem blæs
bátinn út. Arni kvað þennan útbúnað hafa
verið tiltækan fyrir þremur árum og ræddi
mistök við að fullbúa flotcinn þessum nauð-
synlega björgunarbúnaði. Orðrétt sagði
hann á Alþingi:
,Jíætt var um setja þennan búnað um
borð í landsflotann með samstilltu átaki á
einu ári með því að framleiða búnaðinn á
nokkrum stöðum. Þegar kom til kasta Sigl-
ingamálastofnunarinnar að fylgja málinu í
höfn fór allt á annan veg og þessu stórkost-
lega öryggismáli sjómcinna var klúðrað
þannig að aðeins lítill hluti landsflotans
hefur þennan búnað um borð.“ Síðan bætti
Árni við að slysið þegar Hellisey fórst hafi
verið dæmi um atburð jiar sem umræddur
björgunarbúnaður hefði aukið björguncilík-
ur.
„Það er víða pottur brotinn í öryggismál-
um sjómanna og þetta er eitt stórmálið,"
segir Oskar Vigfússon, formaður Sjómanna-
sambandsins. ,Á fundum okkar og þingum
höfum við lagt hart að Siglingamálastofnun
og fleiri aðilum að þessu máli verði fylgt fast
eftir, en því miður vantar oft mikið uppá að
lögum og samþykktum sé fylgt eftir. Við
fögnuðum því mög þegcir þessi búnaður var
lögfestur fyrir tveimur árum. Það sem síðan
hefur gerst er allundarlegt og ekki laust við
að mann gruni að ýmis peningasjónarmið
hafi ráðið því að þessi búnaður hefur ekki
náð því að komast í báta nema að litlu leyti,
það ereinsog málið hcifi helst snúist um það
hver eigi að framleiða þennan búnað.“
I júní 1982 var sett reglugerð um að slíkur
sjálfvirkur sleppibúnaður yrði settur í allcin
• Ráða peningasjónarmið
ferðinni? spyrja sjómenn.
• •
Oryggismálum
sjómanna klúðrað?
íslenska bátaflotann. Þá hafði búnaður sem
Sigmund Jóhannsson uppfinningamaður í
Vestmannaeyjum hcmnaði með stuðningi
Sjóslysanefndar verið reyndur með góðum
árangri. Síðastliðið ár var svo tekin upp sú
stefna að þessi búnaður yrði kominn í allan
flotann lta mars 1984. Sú hefur ekki orðið
raunin.
„Skráð þilfcirsskip lta janúar síðastliðinn
voru 840, þar af voru 450 skip komin með
þennan búnað lta mcirs. Það er rétt að
reglugerðin frá 1982 segir til um að öll skip
eigi að vera komin með búnaðinn fyrir lta
mars. En menn verða að gera sér grein fyrir
því að þetta er geysilega stórt verkefni og
framleiðslugetan tcikmörkuð. Okkur varð
því ljóst að möguleikarnir á þvi að koma
búnaðinum í allan flotcinn voru litlir, en
tókum samt þá stefnu að láta starfsmenn
okkar ekki gefa út hciffærniskírteini til skipa
nema þau hefðu pantað búnaðinn eða að
þau hefu gildar ástæður fyrir því að hcifa
ekki náð að koma honum upp. Við lögðum
sumsé mikla áherslu á að þessi búnaður
væri fyrir hendi, en sáum okkur ekki fært að
stöðva skip sem sigla án hans og hafa siglt
án hans í mörg ár. En ég veit að það er mikil
hreyfing á þessu máli um þessar mundir."
Þetta eru orð Magnúsar Jóhannessonar
sem um þessar mundir gegnir starfi sigl-
ingamálastjóra.
En það er fleira en sýnist í þessu m áli,
margt fleira. Staðreyndin er nefnilega sú að
það er tvenns konar sleppibúnaður í notk-
un í flotanum. Sá upprunalegi er sem áður
segir hannaður af Sigmund og frcunleiddur í
Vélsmiðjunni Þór í Vestmannaeyjum. Hin
tegundin hefur verið framleidd í mun
skemmri tíma í Vélsmiðju Óla Ólsen í
Njarðvíkum. í vestmcinneyska búnaðinum
er það loftþrýstiflaska sem losar um björg-
unarbátinn, en í þeim njarðvíska gorma-
búnaður. Siglingamálastofnunin hefur talið
hvorn tveggja búnaðinn standast kröfur
sínar, en þeir Vestmemnaeyingar og fleiri
hafa talið þcinn njarðvíska mun síðri; hann
hafi heldur ekki sannað gildi sitt og einnig
álíta þeir sig hafa borið skarðcm hlut frá
borði í samskiptum sínum við Siglinga-
málastofnun, sem hafi haldið Njarðvíkur-
búnaðinum að skipstjórum og útgerðar-
mönnum.
, ,Það er sorglegt ef menn geta ekki tekið á
þessum málum af heilindum,", segir Árni
Johnsen við Helgarpóstinn. ,J>egar upp-
runalega vcir rætt um að gera þetta átak var
talað um að búnaðurinn yrði frcimleiddur í
vélsmiðjum víða um landið undir leiðsögn
og eftirliti vélsmiðjunnar Þórs, enda eðli-
legt að þeir sem haífa mestu reynsluna hafi
þarna hönd í bagga. Eðlilegast væri auðvit-
að að ganga hreint og beint úr skugga um
eftir Egil Helgason
hvor búnaðurinn er betri og taka síðan
ákvörðun í samræmi við það. En hitt er alls
ekki rétt sem maður hefur heyrt fleygt að
við Eyjamenn viljum sitja einir að því að
framleiða þennan búnað.“
, Jteglugerð er reglugerð," segir Þórhallur
Hálfdánarson, frctmkvæmdcistjóri Sjóslysa-
nefndcir. „Við kostuðum þessar tilraunir í
Vestmannaeyjum á sínum tíma og erum
vissir um að hvergi er framleiddur betri
búnaður. Þessi búnaður á að vera bæði
handvirkur og sjálfvirkur, segir reglugerðin
en staðreyndin er sú að búnaðurinn frá
Njarðvfk fullnægir alls ekki ákvæðunum um
sjálfvirkni. Það er áleitin spuming hvað út-
gerðarmenn þeirra 300 skipa sem hafa fjár-
fest í Ólsens-búnaðinum gera ef fyrirtækinu
tekst ekki að ráða bót á þessu.“
Magnús Jóhannesson hjá Siglingamála-
stofnun svarar þessu: ,3ú skoðun Ama og
þeirra Vestmannaeyinga að við höfum
haldið einum búnaðinum fremur en öðrum
að útgerðarmönnum er fjarstæða sem ég
hlýt að vísa til föðurhúsanna. Við gerum
kröfur til þess að búnaðurinn fullnægi
ákveðnum lágmarkskröfum, en síðan er
það kaupendanna og útgerðarmannanna
að meta hverslags búnaði þeir fjárfesta í.
Varðandi sjálfstýringuna vil ég benda á það
að reglugerðin er í raun tvíþætt þar sem
þilfarsskipin eiga í hlut. Annars vegar er
kveðið á um fjarstýrðan búnað, sem losað-
ur er með einu handtaki. Slíkur búnaður átti
að vera kominn í allan flotann fyrir ltamcirs
síðastliðinn. Hins vegar er í öðmm hluta
reglugerðarinnar rætt um sjóstýrðan bún-
að sem fer í gang þegar skilið fyllist af sjó. í
reglunni er þetta viðbótarkrafa og ekki enn
sett sem skilyrði. Vestmannaeyjabúnaður-
inn hefur þetta hvort tveggja í einum pcikka,
fjarstýringuna og sjóstýringuna, en Njarð-
víkurbúnaðurinn ekki ennþá. Hins vegar
veit ég að uppá síðkastið hcifa staðið yfir
prófanir á slíkum búnaði hjá þeim. Hvort
við síðan viðurkennum hcinn eða ekki kem-
ur í ljós síðar.“
ERLEND YFIRSYN
Fylgi Harts byggist á starfi
sjálfboðaliðssveita
Næst sækir Hart að
aðalvígjum Mondale
Undirbúningur frambjóðenda í Demó-
krataflokknum fyrir forkosningar um val á
forsetaefni var með margvíslegu móti.
Walter Mondale, fyrrum varaforseti, safnaði
liðsafla verkalýðsfélaganna og flokkskerfis-
ins áscuut fleytifullum kosningasjóði. John
Glenn öldungadeildarmaður treysti á þjóð-
frægð sína fyrir geimflug, sem gerð vom skil
í vinsælli kvikmynd, ,JJightStuff“.Gary Hart
öldungadeildarmaður skrifaði bók. Hún
heitir „Nýtt iýðræði".
Eftir að prófkjör og flokksfundir um val á
forsetaframbjóðanda hafa farið frcim í rúm-
um fjórðungi fylkja Bandaríkjanna, 14 af 50,
er niðurstaðan að vænlegra sé til sigurs að
skrifa bók en láta gera um sig kvikmynd eða
reyna að leggja undir sig auglýsingatíma
sjónvarpsins með fjáraustri. Bcikarhöfund-
urinn Hcirt er sigurvegari í tíu fylkjum,
Mondale, sem allir spáðu i upphafi auð-
veldri sigurgöngu, hefur orðið ofaná í þrem.
Geimfarinn Glenn á enn eftir að komast efst
á blað í nokkm fylki og er talinn úr leik.
Athygli fréttamanna á Gary Hart vaknaði
fyrst fyrir alvöm eftir að hann náði því að
komast næst Mondale í vali flokksfulltrúa í
lowa fyrir þrem vikum. Martin Schram,
fréttcimaður Washington Post, leist vel á
manninn, en aftók að hann hefði bolmagn
og tíma til að keppa við Mondale í níu fylkja
vaiinu þriðjudaginn 13. mcirs, og ólíklegt
væri að hann sigraði í nokkm fylki fyrr en þá
í Connecticut 27. sama mánaðar.
Allt hefur þetta farið þveröfugt. Mondcile
er kominn í vörn, og hefði hann ekki haft
það af að sigra í tveim suðurfylkjum 13.
mars, og í öðm þeirra með naumindum,
væri hann úr sögunni. Það hefði þótt fjar-
stæða fyrr í vetur, að spá því að merkisberi
drottnandi afla í Demókrataflokknum ætti
eftir að fleyta sér í anncin áfanga forkosn-
inganna með því að vinna Alabama og
Georgíu.
Komið hefur á daginn, að furðu margir
fréttamenn sem fylgjast með forkosningun-
um hafa látið undir höfuð ieggjast að lesa
bók Harts, og hneigjast því til að eigna sigra
hans framkomu, útliti og aldri miklu frekar
en því sem hann hefur að segja. En mergur-
inn málsins er að fylgi Harts byggist á starfi
fjölda sjálfboðaliða, sem hafa komist að
þeirri niðurstöðu, að öldungadeildarmað-
urinn frá Colorado sé tilvalinn til að sigra
Ronald Reagan, af því að hann hefur tíma-
bæra hluti að segja og boð;ir ný úrræði.
Hart heldur því fram að vegur Bandaríkj-
anna og velferð bandarísku þjóðarinncir
velti á því, að rétt sé bmgðist við tæknibylt-
ingu í atvinnulífi og breyttri stöðu Banda-
ríkjanna á heimsmcirkaðnum. Til að laga
hagkerfið að nýjum aðstæðum vill hann
reiða sig á fríverslun, ásamt skattlagningu
til að ná félagslegum markmiðum.
Mondale hefur að áeggjan verkalýðsfé-
laga gerst talsmaður vemdcirstefnu fyrir
bandaríska atvinnuvegi sem standa höllum
fæti gagnvart innflutningi, til dæmis bíla-
iðnaðinn. Hann heldur fast við gctmlan vana
demókrata að lofa illa settum hópum að
bæta hlut þeirra með styrkjum af opinbem
fé.
Ráð Harts við atvinnuleysinu er allt cinn-
að. Hann hyggst koma á tryggingakerfi
verkafólks og atvinnurekenda, til að standa
straum af tækninýjungum og endurþjálfun
starfsfólks í atvinnuvegum sem dregist hafa
ciftur úr. Hann vill launa lágt vömverð og
launaþróun undir verðbólgumörkum með
skattaívilnunum til framleiðenda og laun-
þega sem í hlut eiga. Baráttan við mengun
er að hans dómi best háð með því að leggja
mengunarskatt á fyrirtæki sem valda um-
hverfisspjöllum, og verja tekjunum af hon-
um til að hreinsa mengunarvilpurnar sem
myndast hafa.
Við endurnýjun úreltra atvinnugreina vill
Hart koma á samstcirfi atvinnurekenda,
verkalýðsfélaga og ríkisstjómar. Markmiðið
væri að atvinnurekendur tækju að sér að
halda uppi tiltekinni atvinnu og sjá um
endurþjálfun starfsliðs, en verkalýðsfélögin
féllust á að samþykkja hagnýtingu nýrrar
tækni til að auka hagkvæmni í rekstri.
Hart stærir sig af að vera eini öldunga-
deildarmaður demókrata sem sóttist eftír
forsetaframboði og greiddi á þingi atkvæði
gegn öllum atriðum í fjármálcistefnu
Reagans forseta. Stjóm forsetcms reynir að
fleyta sér fram yfir kosningar á hallabúskap
hjá ri"kissjóði langt umfram það sem áður
hefur þekkst. Reagan hefur stórhækkað
herútgjöld, en fyrst og fremst til dýrra
vopncikerfa, sem kitla hégómagimd hers-
höfðingja og tryggja vopnasmiðjum ofsa-
gróða. Raunvemlegur herstyrkur Banda-
ríkjanna, reiðubúinn til aðgerða, hefurrým-
að um fjórðung á landi og í lofti frá því
Reagan komst til valda.
Hart hefur frá því hann kom á þing setið í
landvarnanefnd Öldungadeildarinnar, og
þar hefur hann komið á lciggirnar hóp þing-
manna úr báðum flokkum, sem berst fyrir
því að vígbúnaðarstefnunni sé breytt,
þannig að megináhersla sé lögð á einfaldcin
vopnabúnað og traustan og her í fullri þjálf-
un en ekki stjörnustríðsdrauma. Hcirt bend-
ir á andstöðu sína við hersetu í Líbanon
löngu áður en Mondale tók cifstöðu í því
máli og fordæmir að Bandarikjaher sé gerð-
ur að lífverði fyrir hcirðstjóra í Rómönsku
Ameríku.
Athyglisverðust úrslit í prófkjömnum á
þriðjudaginn vom í Massachusetts og
Flórída. Fyrrnefnda fylkið er fyrsta fjöl-
menna iðnfylkið, þar sem atlwæði em
greidd. Þrátt fyrir samkeppni frá gömlum
Scimherja, McGovem forsetaframbjóðanda
frá 1972, vann Hcirt mikinn sigur á Mondale.
Yfirburðir Harts í Flórída vom einnig vem-
legir, en þar em kjósendur af spænskumæl-
andi bergi brotnir fjölmennir, og þeir em
einn hópurinn sem Mondale hefur gert sér
sérstakt far um að heita gulli og grænum
skógum.
Þessi úrslit em vísbending um að úrslit
geta ráðist í keppni Harts og Mondale á
næstu vikum í kosningum í iðnríkjunum,
þar sem keppt er um fjölmennustu sendi-
nefndirnar á flokksþing demókrata í júlí.
Innan viku verður kosið í Michigan og Illin-
ois og í New York 3. apríl.
Bregðist kosningavél verkalýðsfélaganna
Mondale í þessum fylkjum, á hann sér ekki
viðreisnar von. Skiptist fylgið jafnt milli
hans og Harts í þessum fjölmennu fylkjum
þegar á heildina er litið, ráðast úrslit ekki
fyrr en á flokksþinginu.
6 HELGARPÓSTURINN