Helgarpósturinn - 15.03.1984, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Egill Helgason
og Sigmundur Emir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Þóra Nielsen
Lausasöluverð kr. 30.
Ritstjórn og augiýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaöaprent h/f
Rannsókn
eða refsing?
Lögreglan okkar á mörg
úrræöi til aö leysa sakamál.
Eitt þeirra er gæsluvarð-
haldsúrskuröur. Þaö merkir
aö menn eru settir í ein-
angrun um óákveöinn tima
á meðan unniö er aö rann-
sókn á meintri aöild þeirra
aö tilteknu afbroti.
Gæsluvarðhald er ekki
refsing samkvæmt lagabók-
stafnum, enda hefur ekki
enn sannast sök á þá menn
sem þurfa aö sæta henni.
En víst er algjör frelsis-
svipting, hin haröa einangr-
un sem beitt er viö gæslu-
varðhald, ekkert nema refs-
ing. Refsing sem jafnt sekir
sem saklausir mega þola.
Þetta kemur skýrt fram í
grein sem Helgarpósturinn
birtir í dag. Þar er fjallað um
eöli og réttmæti gæsluvarö-
halds eins og því er beitt
hérlendis. Einar Bollason
og Magnús Leópoldsson,
tveir fjórmenninganna sem
lentu að ósekju inn í hring-
iöu Geirfinnsmálsins, segja
HP allt um þaö.
Gæsluvaröhaldsúrskuröi er
sjaldnar beitt á íslandi en
í næstu nágrannalöndum
okkar, en fram kemur í
greininni aö íslenskt gæslu-
varðhald er mun strangara
en þekkist "víöast hvar í
næstu löndum. Afbrota-
fræðingur viö Skiloröseftirlit
ríkisins segir okkur: ,,Eng-
um vafa er undirorpiö að
einangrun í þeim mæli sem
beitt er viö íslenskt gæslu-
varöhald, getur haft mjög
alvarlegar afleiöingar fyrir
geöheilsu þolanda."
í nágrannalöndum okkar,
þar sem gæsluvarðhald er
vægara en hér, hefur fariö
fram mikil umræða á síö-
ustu árum um réttmæti svo
strangrar einangrunar sem
þar er beitt í gæsluvarö-
haldi. Ekki er deilt um það
aö lögreglan veröi að hafa
einhver úrræöi sem þessi
viö uppljóstrun glæpamála,
en menn eru ekki á eitt sáttir
um hversu einangrunin eigi
að vera mikil.
Einhverra hluta vegna
hefur þessi umræöa ekki
borist hingaö til lands, enn
sem komiö er. En hún á fullt
erindi hingað. Vonandi
verður grein HP í dag byrj-
unin þar á. Þaö má aldrei
gleyma mannlega þættinum
í aðgerðum sem þessum.
Eöa eins og afbrotafræö-
ingurinn segir: ,,Þaö væri til
góðs aö varlegar væri farið
í gæsluvaröhaldsúrskurði.
Betra er aö einhverjir
sleppi, en aö aðfarirnar séu
svo háskalegar að jafnvel
saklausir menn þurfi aö þola
þá illu meöferð sem ein-
angrun er.“
BRÉF TIL RITSTJORNAR
Keyrt yf ir
markið?
í tilefni greinar um dvöl blm.
Helgarpóstsins í sjúkrastöð SÁÁ í
síðasta tölublaði:
Um árangur meðferðcu- áfeng-
issjúkra hefur mjög verið deilt. í
Quarterly Journal of Studies on
Alcohol 1975 birtust niðurstöður
384 sjúkrastofnana um árangur
meðferðar við áfengissýki. i 72
þessara rannsókna var stuðst við
samanburðarhópa, þar sem ann-
ar hópurinn fékk meferð en hinn
enga. Aðeins í 5 tilfellum reyndist
meðferðin vera-ár;ingursríkari en
engin meðferð. Samskonar nið-
urstöður voru birtar frá 8 stórum
sjúkrahúsum í Bandaríkjunum
1976. Þrátt fyrir þessar niður-
stöður vilja menn ekki gefast upþ
og telja rétt að reyna til þrautar
við hvern sjúkling. Á íslémdi eru 2
meðferðarstefnur ráðandi, þ.e.:
1. Vistun á geðsjúkrahúsi eða
hæli fyrir .áfengissjúka, þ.e.
læknismeðferð sem stjómað
er af geðlækni.
2. SÁÁ og AA meðferðin. Siðari
meðferðin byggist aöallega á
leiðbeiningastarfi leikmanna
sem eru „óvirkir alkóhólistar”.
Svo virðist sem verulegur hluti
„nýrra áfengissjúklinga” hafi á
undanförnum árum leitað til
SÁÁ. Heilbrigðisyfirvöld hafa
unnið að bættum tengslum
lækna og SÁÁ en nú starfa læknar
á allflestum SÁÁ-stofnunum. Ég
lel að auka þurfi til muna tengsl
geðlækna og SÁÁ-stofnana, ekki
síst vegna þess að kannabisneyt-
endum hefur fjölgað mjög á SAÁ-
stofnunum. Fyrir 4 ámm reynd-
ust um 11% sjúklinga vera
kannabisneytendur en nú em
þeir um 30%. Þá er miðað við
sjúklinga sem hafa neytt kanna-
bis a.m.k. vikulega í a.m.k. hálft
ár.
Til geðlækna eru yfirleitt send-
ir þeir áfengissjúklingcir, sem
þjást jafnframt af alvarlegri geð-
veiki, enda er ekki aðstaða til
þess að sinna slíkum sjúklingum
á SÁÁ-stofnunum. Slíkir sjúkling-
ar eru oftcist erfiðari í meðferð,
búa við verri félagslegar aðstæð-
ur og njóta minni stuðnings af
hálfu samborgaranna en þeir
sjúklingar sem leita til SÁÁ og
ÁA-samtakanna.
Fyrir atbeina aðila eins og SÁÁ
hafa íslendingar nú byggt mun
fleiri vistunarrými fyrir úfengis-
sjúklinga en nágrannalöndin, þó
áfengisneysla og áfengissjúk-
dómar séu minni að vöxtum hér
á landi en þar. Trúlega höfum við
keyrt yfir markið í þeim efnum
sem öðrum. Þetta er einfaldlega
okkar lífsstíll. Við verðum engu
að síður að fara með gát í fram-
tíðinni og muna eftir að líkt og
sjúklingur kallcir á sjúkrarúm,
getur rúmið krafist sjúklings.
Mikil og góð þjónusta getur þvi
bæði skapað þörf og eftirspurn
fyrir meðferð á þessu svði sem
öðrum.
NOACK
FYRIR ALLA BÍLA 0G TÆKI
Scensku óilalramleióenúuimr VOLVO. SAAB og SCANIA
nola NOACK ralgeyma vegna kosla þeirra
Ekki þarf að efast um að
göngu- og dagdeildir geta í ríkari
mæli sinnt misnotendum áfengis
án þess að dregið sé úr gæðum
þjónustu. Göngudeildar- og dag-
deildarþjónusta er líka mun
ódýrari en stofnanaþjónusta. Ég
tel hins vegar að ekki verði fram-
hjá því gengið að starf SÁÁ hefur
skilað góðum árangri á undan-
förnum árum. Það er því eðlilegt
og rétt að opinberir aðilar styðji
við bakið á SÁÁ og samtökin sjái
um verulegan hluta af þjónustu
við áfengissjúklinga. Það þarf þó
að tryggja að eðlilegt jafnvægi
ríki jafnan í þjónustu geðsjúkra-
húsa, meðferðarstofnana, og
göngu- og dagdeilda.
Ólafur Ólafsson
landlœknir.
MAÐUR TIL MEÐFERÐ/
Sólarhringur blaðamanns á sjúkrastöð S/
Að ráðast gegn
sjálfum sér
Rökhyggja og sundurgreining
aðalatriða og aukaatriða virðast
mjög framandi hugtök í almennri
umræðu. Ef við lítum á þau skrif,
ýmist í greinaformi eða viðtala-
formi, sem birst hcifa eftir samn-
inga ÁSÍ og VSÍ (m.a. HP-viðtalið
við Pétur Tyrfingsson í síðasta
tbl. Helgarpóstsins) ber mest á
bamslegri undrun yfir því að ekki
hafi verið gerðir allt aðrir og
miklu betri samningar. Skuldinni
er skellt á ASÍ, eða verkalýðsfor-
ystuna í heild, en nær enginn
ræðir um ríkisstjóm eða löggjaf-
ctrvcddið í þessu sambandi, hvað
þá atvinnurekendur. Réttilega er
bent á að 12 þúsund krónur séu
engin laun, réttilega er bent á að
þúsundir heimila séu á vonarvöl.
Þessar staðhæfingcir hafa verið
tíundaðar rækilega á undanförn-
um mánuðum í bæklingum sem
ASÍ hefur látið gera og í Vinnunni.
Það væri þarft verkefni fyrir þjóð-
félagsfræðinga að skilgreina það
ástand sem nú ríkir, og af hverju
þokkalega greint fólk ræðst gegn
sjálfu sér og sínum fulltrúum, en
ekki þeim sem fara með öll völd í
landinu.
Þegcir við í ráðleysi okkcir og
ruglandi ráðumst á verkalýðsfor-
ingjana sem sökudólgana er rétt
að benda á einfaldar staðreyndir:
Þúsundir innan verkalýðshreyf-
ingarinnar gáfu þessari ríkis-
stjórn atkvæði sitt.
Þúsundir innan verkalýðshreyf-
ingarinnar koma aldrei á fundi í
sínum stéttarfélögum.
Þúsundir innan verkalýðshreyf-
ingarinnar setja sig ekki inn í ein-
földustu atriði er varða kaup og
kjör og stéttarlega stöðu.
Auðvitað er hægt að skrifa
langt mál um þessar þrjár ein-
földu staðreyndir, en mig langcir
að eyða nokkrum orðum að þeim
fullyrðingum að ASÍ eða verka-
lýðsforystan haii brugðist hrap-
aliega í upplýsingastreymi til
hins óbreytta félagsmanns.
Þá er fyrir það fyrsta spurning-
in: Til hvers er ætlast af ASÍ á
þessum vettvangi? ASÍ gefur út
Vinnuna, sem í eðli sínu er
skýrslublað, þ.e. á að fjalla um og
útskýra gerða hluti og fræða um
hluti sem eru í deiglunni. Þessu
hlutverki hefur Vinncin sinnt mis-
vel en mun betur á sl. 10-12 mán-
uðum en áður. ASÍ gefur út frétta-
bréf, sem allir geta fengið sem
óska eftir því. ASÍ gaf einnig út á
sl. ári þrjá bæklinga er fjölluðu
um kjara- og félagsmál, gefnir út í
því augnamiði að fræða og að-
vara.
Þetta er allt „leynipukrið” og
þetta er allur „slappleikinn” hjá
ASÍ-forystunni.
Það sem alltaf er reynt að fela í
umræðunni er sú staðreynd að
verkalýðsfélögin, stór og smá,
eiga samkvæmt uppbyggingu
samtakanna að sinna upplýs-
ingéiskyldunni gagnvart sínum
félagsmönnum. Þau ráða því
hvort Vinnan sést á vinnustöðum,
þau ráða því hvort bæklingar ASÍ
fara á vinnustaði, þau ráða því
hvort og þá hverjir innan þeirra
raða fá Fréttabréf ASÍ. Málið er
ekki flóknara en þetta.
Ef Jón og Gunna í verkalýðsfé-
lögunum segjcist að Scimningum
loknum ekkert hcifa fengið að vita
hvað væri að gerast, þá ber þeim
að snúa sér fyrst til síns félags
með kvartanir sinar. Ef fulltrúi
þeirra hefur t.d. setið í miðstjóm
ASÍ eða á formannaráðstefnum,
en ekki haldið fundi í sínu félagi
til að útskýra málin, þá er sá hinn
sami að vinna gegn því kerfi sem
er við lýði innan ASÍ í dag, þ.e.
miðstjórnarfundir, formannaráð-
stefnur og fundir í landssam-
böndum eru haldnir til að miðla
upplýsingum, sem fundcirmenn
eiga síðan að miðla áfrcum til
sinna félagsmanna. Ef þeir gera
það ekki þá er ekki við ASI að
sakast. Svona einfal t er þetta mál.
Þá skulum við ekki gleyma þvi
að mörg stærri félögin gefa út
fréttabréf eða blöð af vandaðri
gerð. Dagsbrún er t.d. nýlega
byrjað að gefa út vandað blað
eftir margra ára doða á því sviði. í
dag er auðvelt og ódýrt að halda
úti fréttabréfum, svo það er ekki
kostnaðarhliðin sem heldur aftur
af mönnum, heldur eitthvað ann-
að.
Ekki er hægt að saka dagblöðin
eða ríkisfjölmiðlana um að vilja
ekki sinna málefnum verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þar eru allar dyr
opnar upp á gátt.
Spurningin er bara hvort menn
hafa eitthvað fram að færa annað
en skammir á ASÍ og verkalýðs-
forystuna.
Ef að ég væri í stéttarfélagi í
stað þess að vera einn af þessum
„sérfræðingum” sem keyptir eru
til ákveðinna starfa, myndi ég
hafa mikinn áhuga á ráðstefnum
og fundum um eftirfarandi atriði:
1. Hvar eru peningarnir í þjóðfé-
iaginu?
2. Hvað eiga laun að vera há fyrir
8 stunda vinnu?
3. Hvað er eðlilegt að menn eigi
NYJUSTU TEPPAFRÉTTIR
BERBER
gólfteppi á ótrúlega hagstæðu
verði. Vegna sérstaklega hagstæðra
magninnkaupa bjóðum við BERBER
gólfteppi á aðeins kr. 390,- m2.
Dæmi:
Þú kaupir 40 m2, heildarverð ca kr.
15.600,-, þú greiðir aðeins kr. 3.000,-
í útborgun og eftirstöðvar færðu
lánaðar í 6 mánuði.
OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18
föstudaga kl. 8—19
laugardaga kl. 9—12
41^4 . , ,. _ >' . ■' r j. '"■
wim
,.....,
.
M
-Ji> "
v? -* :•
VJZ
WA
JL
r
'L
BYGCINGAWOBUBl
HlBÍ
HRINGBRAUT 120:
Byggingavörur
Golfteppadeild
Simar: Timburdeild ................ 28-604
28-600 Malningarvörur og verkfæri 28-605
28-603 Flisar og hreinlætistæki.... 28-430
HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu)
10 HELGARPÓSTURINN