Helgarpósturinn - 15.03.1984, Qupperneq 13
MATKRÁKAN
Klauflax og annar föstufiskur
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
Nú er langafasta hafin, en eigi vænti ég að
margir lúterskir afturbatapungcir kippi sér
upp við það. En meðan ísland var enn páp-
ískt föstuðu margir að hætti frelsarans;
alltént var það almenn regla að snerta
hvorki ket né flot alla föstuna. Menn átu
hver sem betur gat af keti á sprengidags-
kvöld, en þá safnaði húsbóndinn ketleifun-
um saman í skinnbelg, batt hann upp í bað-
stofumæni og lét hann hanga þar fyrir aug-
unum á heimcimönnum sínum alla föstuna.
Laugardaginn fyrir páska tók hann ofan belg-
inn og fékk hverjum sínar leifar sem ,setið
héifði í föstunni" með því að nefna hvorki
ket né flot alla föstuna, heldur skyldi nefna
ketið „klauflax" eða „páskahákall" en flotið
„afrás“. Eða eins og segir í vísunni:
Enginn mátti nefna ket
alla föstuna langa;
hver það af sér heyra lét,
hann var tekinn til fanga.
í Klauflaxinum segir Jónas Hallgrímsson
skondna sögu af mannaumingja sem þoldi
ekki kjötbindindið, „gekk úr föstunni" með
tilheyrcirndi kjötneyslu og -stuldi. Sá sat í
tunglsijósi á eldhúsglugga og seildist inn á
rárnar og s'egist svo frá honum: „Hann
sagðist liggjá á dorg og vera að veiða og hélt
að það væri hverjum manni heimilt. Og
þegar hann kom á þingið og sýslumaðurinn
sagði hann hefði stolið, þá bar hann ekki á
móti því nema hvað hann neitaði að það
hefði verið kjöt. ,£g hef tekið klauflax,"
sagði þjófurinn, „og býst við að verða
hýddur, en það er best að bera sig karl-
mannlega." Það bcir ekki heldur á honum að
hann væri sériega daufur. En þegar honum
var lesin upp þingbókin og hann heyrði þar
stóð „fimm fjórðungcir af kjöti“, þá fór hann
að gráta og sagði við dómarann:, JCrofið var
fimm fjórðungar, en hitt voru ekki mín orð;
skrifið þér heldur sex fjórðunga og setjið
þér klauflax." “
Það var og til siðs í hérlendri pápísku að
enginn mátti hafa nærklæðaskipti afla föst-
una út, enn síður kasta lús af sér, og var svo
ríkt að því gengið, ef lús skreið á úlflið eða
úr höfði manns, varð að pota henni upp
undir ermi, barm eða í höfuðhár. Þetta hef-
ur væntanlega verið gert til að auka píslir
manna, eða hvað?
Regnpostular
Úr pápískri lús íslenskri vindum við okk-
ur yfir til Mexíkó sem er pápísk a.rn.k. að
nafninu til, og hugum örlítið að þeirra föstu-
fæði. MexíkancU" eru engir slukscir í matar-
gerð. Hver borg og þorp í Mexíkó lumar á
hundruðum staðbundinna mataruppskrifta
að sérréttum sem eru tengdir tilteknum
dögum ársins. í einu þorpi má t.d. finna upp
undir hundrað uppskriftir að „atole", rnild-
um maísmjölsdrykk ævafomum. Útgáfur
drykkjæins miðcist við mismunandi heilsu-
far neytendans, en einnig ólíkar hátíðir í
hringrás sólarársins.
Víða í dreifbýli eimir enn mjög eftir af
fornri vættadýrkun sem hefur scunlagcist
kristinni trú á undraverðan hátt. í þorpinu
Octxaca er t.d. nauðsynlegt að borða tólf
ákveðnar fæðutegundir meðan á dymbil-
viku stendur; hver fæðutegund er tákn fyrir
einn ctf postulunum tólf sem sátu hina heil-
ögu kvöldmáltíð. En þessar fæðutegundir
hafa einnig annað og uppmnalegra gildi
fyrir bændurna í þorpinu. Þær tilheyra allar
,,ferskvatnsfæðu“ samkvæmt flokkun ind-
jánanna. Sagt er að þær lúti stjórn regn-
guðsins, herra þmmu og eldinga. Hvítleitt
yfirbragð þeirra, gagnsæi og vatnsinnihald
gerir þær að „ferskvatnsfæðu", eins og
gúrkuna t.d.
Þessara fæðutegunda verða menn einnig
að neyta yfir sjáifa páskana vegna þess að
trúarháúð þessi markar upphcif regntímans
þar um slóðir. Meðan á honum stendur em
hafðar í frammi ýmsar trúarathafnir í því
skyni að biðja guðina um steypiregn svo
maískornin megi þroskast. Ferskvatnsfæð-
an sem maðurinn neytir flytur nærcindi vatn
til frækornanna nýsáðu - í kosmísku nær-
ingarsamhengi. Óbeint flytur hún boð um
vatn í gegnum manninn.
i Mexíkó-city og öðrum borgum vita
menn nú orðið harla fátt um maísfæði og
þmmuguði. Á dymbilviku borða menn mik-
ið af þurrkuðum rækjum og kavíar, svo eitt-
hvað sé nefnt, og virða þar með kjötbann
kaþólsku kirkjunnar meðéin á föstu stendur.
Fiskréttir em í hávegum hafðir þar sem fisk-
urinn minnir á frumtákn gagnkvæmrar
virðingar (og samneyslu) meðal kristinna
manna. Sá sem borðar fisk á föstunni náig-
ast Krist á táknrænan hátt.
Mexíkanskur föstufiskur
og páska
Best er að nota fisk sem er stinnur og
þéttur í sér, s.s. lúðu eða kola, en einnig má
nota flunkuný ýsuflök. Rétturinn er krydd-
aður vel og Mexíkanar neyta hans með hrís-
grjónum og ölkollu. Uppskriftin er miðuð
við 4-6.
u.þ.b. 1 kg af fiskflökum
2 miSlungsstórir laukar
1 stór, græn paprika
3 tómatar
1 dl ólífuolía
1 dl þurrt hvítvín
1/4 tsk steytt rósmann
1/4 tsk chilipipar
sítrónusafi
1/4 tsk kanelduft
1/2 tsk þurrkað timjan
1/4 tsk steytt oregano
1/4 tsk kúmenduft
Auk þess;
niðursoðinn chilipipar, kapers og grænar
ólífur.
1. Afhýðið laukinn og skerið í þunnar
sneiðar; skerið paprikuna í strimla og
svo í bita; afhýðið tómatana, fjarlægið úr
þeim kjarnana og skerið í bita.
2. Smyrjið eldfast mót með olíu. Hrærið
kryddunum saman við ólífuolíu, hvítvín
og sítrónusafa og hellið blöndunni yfir
fiskinn. Bakið í klukkutima í 200 gr. heit-
um ofni.
3. Rétt áður en fiskurinn er borinn fram er
söxuðum kapers, grænum ólífum og
chilipipíu' stráð yfir. (Niðursoðin chili-
pipar sést stundum hér í versiunum en
farið varlega í sakimar, ef þið notið hann,
því hann er geipilega bragðsterkur.)
Þú getur haldið áfram að telja
endalaust. Nýtt forrit fyrir IBM
PC einkatölvuna verður til á
hverjum degi. Um allan heim
keppast forritaframleiðendur við
að einbeita sér að þessari eftir-
sóttu tölvu.
Þess vegna getur IBM PC
einkatölvan auðveldað þér svo
margt, bæði í einkalífinu, í fyrir-
tækinu og við kennslu. Svo sem
hraðari upplýsingaöflun, meiri
hagkvæmni, gerð greiðslu -
og fjárfestingaáætlana, lækkun
kostnaðar án niðurskurðar, verð-
lagningu á framleiðslu ofl. ofl.
sem setur þig framar keppi-
nautunum.
Þú hefur betri yfirsýn og færð
aukinn tíma til að sinna mikil-
vægum þáttum í rekstrinum og
heima fyrir - t.d. með fjölskyld-
unni.
Hvers vegna hefur þú ekki
samband við eitthvert söluum-
boðanna fyrir IBM PC einka-
tölvuna? Þú
skýrir fyrir
þeim þarfir
þínar og
óskir, og þeir
finna réttu
lausnina
með þeim for-
ritum sem
henta þér
best. - Þvi
máttu
treysta.
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Gisli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfísgötu 33,
Reykjavík, simi 20560
Örtölvutækni sf., Garðastræti 2,
Reykjavík, sími 11218