Helgarpósturinn - 15.03.1984, Page 14
EG FLUÐI
UR LANDIUNDAN
eftir Sigmund Erni Rúnarsson mynd Jim Smart
,,Líf mitt allt hefur markast af fljótráðum ákvörðunum, oft á tíðum
röngum ákvörðunum. Þetta hefur vissulega verið erfitt á stundum, en
mistökin hafa kennt mér, kennt mér að meta það sem er einhvers virði í
lífinu.
Eg er voðalega hörð manneskja með afdráttarlausar skoðanir. Ég er
hörð í mínum dómum, vegna þess einfaldlega að ég dœmi út frá reynslu.
Og hún er hörð.
Vel má segja að lífmitt hafi aldrei tekið á sig eðlilega mynd. Það hefur
aldrei verið í föstum skorðum. Ég er til að mynda fjórgift. “
Anna Vilhjálms. Fyrst og fremst söngkona. Ekki enn orðin fertug en á
samt nœrri aldarfjórðung að baki með hljóðnemann að vörum. Uppi á
sviði, með gleði dansandi fólks á valdi sínu.
Hún er ósköp smávaxin, svolítið þybbin að verða, en andlitið ávallt
brosandi þar sem hún situr gegnt mér inni í Þórscafé, reykjandi Winston
special long. Og röddin rám þegarhún rifjar upp ferilinn.
„Þetta byrjaði allt saman í lítilli kjallaraíbúð á
Lindargötu. Vitatorgið var mitt athafnasvæði á
fyrstu árunum. Ég er víst komin af þessu venju-
lega alþýðufólki, nema það megi teljast óvenju-
legt að pabbinn er hálfþýskur, Vilhjálmur
Schröder barþjónn. Mamma, Sigurjóna Vigfús-
dóttir, vann við hárgreiðslu meðfram húshald-
inu. Og eignaðist sex börn. Óskaplega góðir
foreldrar, en vitalaglausir. Ég hef því oft verið
spurð að því hvaðan í fjáranum ég hcifi allan
þennan söng. Svarið er sennilega að finna hjá
föðurafanum, píanistanum Hans Alfred Schröd-
er.hljómsveitarstjóra til margra ára. Hann kom
hingað til lands tvívegis á mínum bemskuárum
með grúppuna sína. Eg man að þeir æfðu alltaf
heima í kjallaraholunni. Við krakkarnir máttum
ekki trufla þá eða vera neitt að þvælast fyrir
þeim og vorum því alltaf send út til leikja.
Systkinin fóru þá niður á Vitatorgið, en ekki ég,
sem alltaf tyllti mér niður á gangstéttina fyrir
utan herbergið þ;ir sem afi og hinir vom að æfa
músíkina. Ég féll gjörséimlega í dá af þessari
notalegu sveiflu sem þeir löðuðu fram úr hljóð-
færunum. Og sat sem sagt þama í kjólnum mín-
um, snortin á gangstéttinni. Þaðan hef ég senni-
lega músíkgáfuna."
Vangalag œskunnar
„Eins sat ég og ein systra minna, sem deildi
með mér bemskuherberginu, langtímum sam-
an fyrir framan lítið útvarpstæki á kvöldin. Það
var þá einvörðungu músík sem við hlustuðum
á, annaðhvort úr Kancinum eða þvi íslenska. Við
drukkum alla dægurtónlist í okkur úr þessu
viðtæki, lærðum óteljandi texta og laga utan að,
og það voru oft á tíðum ekkert sérlega þjóð-
legcir vögguvísur sem við sungum okkur inn í
svefninn með. Lengst af var lagið ,JCæri Jón“ í
mestu uppáhaidi hjá okkur. Það var oftast síð-
asta lagið hjá okkur systrum fyrir svefninn.
Svona vangalag okkar sldlnings."
- Kjallaraholan á Lindargötu var þröng fyrir
átta manns í heimili, hvað þá þegar heilt big-
band kom að æfa þar eins og Anna minnist á.
Seinna meir kom í 1 jós að þetta húsnæði var líka
heilsuspillandi. Anna fór ekki varhluta af því
þegar hún veiktist af berklum aðeins tíu ára að
aldri. Eftir að hún hafði dvalið tæpt ár á Vífiis-
stöðum, neyddist fjölskyldcin tii að fiytjast af
Lindargötunni vegna mikils raka í kjallaraíbúð-
inni sem Anna mátti ekki við.
„Þessi veikindi urðu reyndar að fyrstu kynn-
um mínum af fordómum", sagði Anna. ,Á þess-
um árum voru berklar taldir ógeðsleg pest. Ég
varð því mikið útundan eftir að ég kom af hæl-
inu. Vinkonum mínum við Vitatorgið var ráð-
lagt að leika ekki við mig, þvf mömmurnar voru
ekkert á því að ég hefði hreinsast af berkla-
f jandanum þrátt fyrir sjúkravistina."
- En þá flystu í nýtt umhverfi, allt suður í
Garðabæ.
„Og þar hef ég líklega lifað bestu ár ævi minn-
ar...“
- Og drakkst í þig fræðin undir handleiðslu
Sankti-Jósefs-systranna í Hafnarfirði.
„Það er líka, að ég held, í einaskiptiðáævinni
sem ég hef haft áhuga á bóknámi. Systumar
voru svo góðir kennarar, cúls ekki þessi strcinga
ímynd eins og stllir héldu, og þeirra á meðal var
ég, áður en ég innritaðist í bamaskólann þeirra.
Þær voru að vísu ákveðnar og ofboðslega ná-
kvæmar í einu og öllu, en um leið tókst þeim að
gera námsefnið svo aðlaðcindi. Þær gátu svo
auðveldlega laðað fram í krökkunum alla þá
orku sem þau áttu í sér, og kallað fram áhuga
þeirra á hvaða sviði sem var. Þeim tókst til að
mynda að fá mig til að sauma, sem var nokkuð
sem ég hafði hvorki þolað né haft þolinmæði til
að fást við fyrr.
Örlögin ráðin í Hafnarfjarðarstrœtó
- Systumar skráðu Onnu burt frá sér með
mjög háa einkunn, og fyrir bragðið innritaðist
hún í gáfnabekkinn í Flensborg, 1A. En þcir tók
annað og meira en námið að freista hennar, til
að mynda söngurinn. Hún segir mér skemmti-
lega sögu af fyrstu aivarlegu kynnum sínum af
hljómsveitabransanum.
„Ég var tæpra sextán ára, þegar ég var ein-
hverju sinni á leið í afmælisveislu til vinkonu
minnar í Hafnarfirði. Ég tók því Hafnarfjarðar-
strætóinn heiman að frá mér. Á leiðinni kom
félagi minn úr Flensborg upp í vagninn. Fyrir var
mikil þvaga, en samt reyndum við að kjafta
eitthvað saman þama í mannmergðinni. Meðal
annars sagði þessi vinur minn frá því að hann
og félagar sínir væri með stofnun hljómsveitar í
bígerð. Þeir væm búnir að útvega sér hljóðfæri,
æfingaaðstöðu og allt; þá vantaði aðeins eitt.
Og það var söngkona, sagði hann um leið og
vagninn stoppaði á einni biðstöðinni þar sem
hann þurfti að stökkva út. Hann kallaði til mín í
flýti, hvort ég væri ekki bara til í að taka að mér
hlutverkið. Eg öskraði yfir mannfjöldann til
hans að ég gæti svo sem alveg gaulað í hljóð-
nemann hjá þeim eins og ég væri vön að gera
með sjálfri mér dags daglega.
Með það fór vagninn af stað aftur. Og ég
hugsaði ekki meira um þetta samtal okkar, fyrr
en... Strax næsta morgun vekur mzimma mig
upp grútsyfjaða, og segir mér að ég eigi að
mæta á hijómsveitaræfingu eftir tvo tíma niðrí
Gúttó. Ég glaðvciknaði náttúrlega, og eftir að
hafa sungið fyrir strákana lcigið „Papers Roses"
tveimur tímum síðcir Vcir ég valin í bandið.
Þama hófst minn söngferill. Hann upphófst sem
sagt í Hafnarfjarðarstrætó."
- En varstu ekki komin í iðnnám á þessum
tíma?
,dú, ég ætlaði að verða hárgreiðsludama eins
og mamma. Ég var reyndar byrjuð í því námi i
Iðnskólanum í Reykjavík þegar þama var komið
sögu. En mér fannst ég alltaf eitthvað svo
klaufsk með greiðuna, að ég var fljót að svissa
yfir þegar mér bauðst þessi staða með hljóð-
nemann uppi á sviði í Gúttó. Míkrófónninn er
ólíkt þjálli í hendi en hárkambur."
- Þú hefur alltaf þótt frökk á sviðinu, áræðin
og stundum ögrandi.
„Ég er óttalega frökk manneskja og það er
ekki til minnsta feimni í mér. Þetta hefur hjálpað
mér mjög vemlega í bransanum, ásamt því
hvað ég hef alltaf verið fljót að munstrast inn í
hvaða grúppu sem er, jafnvel án minnstu æf-
ingar með viðkomandi bandi. Þetta má eflaust
rekja til útvarpshiustunar minnar í gamla daga,
þegar ég lærði utan að tugi ef ekki hundmð
dægurlaga.
Gott dæmi um þetta er þegar ég var ein-
hvemtí'ma að syngja með einhverri grúppunni
suður í Stapa þeirra Keflvíkinga. A miðjum
dansleik var hringt í mig ofan cif Velli. Ólafur
Gaukur var í símanum, alveg að fæast á taugum
vegna þess að bandið vantaði söngkonu til þess
að áheyrendumir, dátarnir á Top of the rock,
hefðu einhvem kvenmann til að mæna á. Það
var í rauninni skilyrði á þessum tíma að her-
mannaböndin hefðu einhverjum kvenmanni á
að skipa, því dátamir vom þá í svo miklu kven-
mcmnssvelti, að það var hrein bjargráðastarf-
semi að sýna þeim einn slíkan af og til. Þannig
að ég sló til í góðmennsku minni, Ólafi Gauki og
soldátunum hans til mikils léttis. Ég ku víst hafa
púslast svo rækilega í spilið þama, og brætt
hjörtu hermannanna svo hressilega, að þetta
varð upphafið að því að ég fór að syngja á
Vellinum."
Öskrið heillar mig ekki
- Milli áranna ’62 og 70 stóð Anna Vilhjálms
í fremstu röð íslenskra dægurlagasöngkvenna,
og oftar en ekki var imprað á því við hana að
sigla vestur um haf og meika það þarlendis, sem
margir héldu að hún ætti að geta farið létt með.
Á þessum tíma þótti Anna framúrskarandi í fag-
inu að sögn ailra sem unnu með henni þá. Hún
var sú eftirsóttasta, enda var sviðsframkoma
hennar svo lífleg og söngurinn svo hressandi og
góður, að jafnan Vcir uppselt þar sem hún kom
fram. Söngurinn var fúlltæmdjobb, öll kvöld
vikunnar, nema miðvikudagskvöld; „þurra
kvöldið", segir Anna... „En þetta með að meika
það vestanhafs,” heldur hún áfram, „fannst mér
sjálfri ekki raunhæft á þessum áirum. Ég hafði
hreinlega ekki trú á sjálfri mér sem söngkonu.
Eins og fyrr segir datt ég bara inn í þennan
bransa cif tilviljun í Hcifncirfjarðarstrætó. Og
hefði líklega orðið hárgreiðsludama, ef ég hefði
ekki tekið vagninn."
- Það má heita eðlilegt að spyrja söngvara
hvað honum þyki skemmtilegast að syngja. Og
Anna er spurð að því.
„Mér fellur best að spreyta mig á lögum sem
flytja einhvern boðskap, til dæmis um glataða
ást, mannraunir og öll þessi tílfinningalegu skil
sem alltaf eru að koma fram í okkur mannfólk-
inu. Þegar ég fæst við svona efni, finnst mér ég
vera að segja eitthvað af sjálfri mér. Og þar með
gef ég áheyrendunum meira en þegar ég er til að
mynda að garga með hraði þetta innihaldslausa
rokk eins og það vill stundum haga sér. Því er
samt ekki að leyna að rokkið nær stundum
tökum á mér, og það er þá þegar ég er í fítons-
stuði að mér líkar að flytja það. En samt... öskrið
heillar mig ekki. Það er auðveit að garga, en
miklu meira sem þarf til að fara með hæglátt
stef sem jafnframt segir okkur eitthvað cif sjálf-
um okkur."
- Þú ert búin að syngja á sviði í nærri aldar-
fjórðung. Verður það hlutskipti aldrei leiði-
gjamt að syngja fyrir framan meira og minna
drukkið fólk?
,3jáðu nú til. Áður fyrr söng ég eingöngu
vegna þess að ég hafði gaman ai því fyrir sjálfa
mig. Þá var ég óþroskuð, bransinn Vcir bara
sprell fyrir mér, og áheyrendur skiptu minnstu
máli. Þetta mat mitt á dægurlagasiingnum hef-
ur breyst mikið með árunum. Núorðið finnst
mér ég vera að gefa fólkinu með söng mínum.
Og í stað þess að njóta söngsins sjálfrar mín
vegna, nýt ég hans áheyrendanna vegna. Það
er í rauninni mjög notaleg aðstaða að ná með
söngnum sambandi við fólk og hafa stemmningu
þess næstum á valdi sínu. Þetta samband hefur
haldið mér að bransanum, eftir að ég uppgötv-
aði það.“
Vinn vel efég nœ að gleðja
- En tölum þá um þetta hlutskipti að
skemmta öðrum og geta nærri aldrei farið út að
skemmta sér sjálfur. Langar þig ekki stundum
til að stökkva út á dansgólfið...?
,Jú, svo sannarlega. Og þetta er einmitt gall-
inn við það að vera í þessum sjóvbíssness.
Maður getur einfaldlega aldrei verið eða hagað
sér eins og annað fólk, t.d. farið út um helgar og
gleymt amstri hversdagsins. Þetta kemur kann-
ski sérstaklega illa niður á mér, þar sem ér er
alveg sjúk í að dansa. Ég verð meira að segja
oftlega afbrýðisöm út í fólkið sem er að
skemmta sér á dansgólfinu fýrir framan mig.“
- Þegar þú hefur einhverra hluta vegna ekki
verið í stuði, en samt þurft að syngja hressilega
fyrir þyrstan lýðinn. Hefurðu þá fengið þér í
glas?
„Ég er nú bara þannig gerð að ég þarf ekki að
fá mér í glas til að komast í stuð. Ég verð líka að
syngja edrú, get það ekki að öðrum kosti. Ég
verð bæði fölsk og missi vald á röddinni þegar
ég fæ mér eitthvað í glas. Og þessvegna sleppi
ég víninu alveg með söngnum. Annað væru líka
svik við yfirmenn mína. Þetta er vinna, ekki
auðveldur leikur sem leyfir kæruleysi.
En þetta með að vera illa fyrir kölluð í söng-
hlutverkinu. Jú, vissulega er ég oft þreytt þegar
ég er að syngja. En ég get sagt þér, að því gleymi
ég þegar og ef ég sé eina einustu manneskju úti í
sal sem ber sig eftir því að hlusta á mig. Hún fær
mig til að gleyma þreytunni, kemur mér í stuð,
fyllir mig þrótti. Um leið og ég sé að fólk er
ánægt með það sem ég er að gera og ég verð
þess vör að ég kem því til að gleðjast, þá veit ég
að ég hef unnið mitt verk vel. Þetta er kjaminn í
því að vera söngkona á balli."
Völlurinn yfirtekinn
- En áfram með lífshlaup þitt. Við vorum
komin fram undir 1970.
„Um það leyti var ég að yfirtaka Völlinn..."
- Hvað segirðu ?
„Já, ég hafði stofnað band með nokkrum
ungum strákum, ég var sú reyndasta ai þeim í
branscmum og því var hljómsveitin skírð í höf-
uðið á mér. Við settum okkur það takmark að ná
Vellinum af öðrum grúppum sem við áttum í
samkeppni við á þeim vettvangi. Til dæmis við
Trúbot og Pónik og Einar.
Ég lenti í mikilli rimmu við Rúnar Júl. í Trú-
broti um yfirráðin á Vellinum. Ég man sérstak-
lega eftir hörku orðasennu milli okkar á FÍH-