Helgarpósturinn - 15.03.1984, Qupperneq 17
Á hvaða
sykurmola
sest flugan?
- Egill Ólafsson leikur
Upphœða-Sky í Gœjum og pœjum
Egill Ólafsson i hlutverki Upphæöa-Sky; veöjar stórt og veðjar mikið.
Smartmynd.
Egill hér.
Egill hér.
Egill Helgason hérnamegin.
Egill Óiafssonhéma megin.
Einmitt já. Það var gott. Heyrðu
nafni, þú ert að syngja aðalhlut-
verkið í söngleik sem kemur á fjal-
irnar í Þjóðleikhúsinu innan
skcunms - Guys and Dolls, ekki
satt?
„Gæjar og pæjur á ylhýra mál-
inu. Jú, þetta er söngleikur og að
margra mati ansi gott leikrit síuti-
hliða söngnum. Ég veit til dæmis að
hann er í miklu uppáhaldi hjá þeim
eina sanna sir Lárens, Söngleikur-
inn er byggður á sögum eftir Dam-
on Runyon, sem þóttu miklar
skemmtibókmenntir hér á ámnum
kringum stríðið, en sögurnar aftur
byggðcU' á karaktemm sem áttu sitt
blómaskeið í New York í „the roar-
ing twenties”, í öllum þeim galskap
sem þá var. Nú, síðan var það mað-
ur að nafni Frank Losser sem dikt-
ar mikið frægéui söngleik uppúr
þessum sögum um 1950. Uppúr
honum var svo gerð stórmynd
með aungvum öðrum en Frankie
boy og Brandó í aðalhlutverkum.
Þetta er sumsé býsna þekktur
söngleikur í Bretlandi og vestan-
hafs, og þótt ekki hafi farið mikið
fyrir honum hér þá hefur maður
verið að heyra þessi lög í gegnum
tíðina, ýmsir djassarar hcifa verið
að leika sér með þau.”
- Efnið, um hvað er sungið og
dansað?
,Aðalpersónurnar, þessir fuglar
eru gamblcuar, fjárhættuspilarar
og lifa á því að veðja á allan and-
skotann. lnní það fléttast svoýmis-
legt einsog vera ber, rómcuis-
ar og smáatvik, til dæmis stúlku-
kind úr Hjálpræðishemum sem
verður hluti af einu veðmálinu.”
- Hvert er þitt hlutverk í Gæjum
og pæjum?
„Ég leik karakter sem gengur
undir nafninu Upphæða-Sky, upp-
hæða vegna þess að hann leggur
svo mikið undir í fjárhættuspilinu.
Hann er líka þekktur fyrir það að
veðja á óiíklegustu hluti, til að
mynda á það á hvaða sykurmola
flugan sest. Hlutverkið byggir víst á
manni sem hafði verið lögreglu-
stjóri í einhverju fylki Bandarikj-
anna, en komst svo að þeirri niður-
stöðu að hann gæti haft miklu
meira uppúr sér í fjárhættuspilinu.
Þetta er ansi skemmtileg týpa,
stórbokki, talcU' fágað mál og slær
um sig og þykist eiga talsverða
samleið með efri stéttinni.”
- Er þetta ekki hálfgerð tíma-
skekkja, að setja upp ævafornan
söngleik?
„Eg legg ekkert mat á það. Það er
nú svo margt sem hægt er að líta á
sem tímaskekkju. Fyrir mig er það
gaman að fá að spreyta mig á sviði
og allt annað en að vera í bíóinu.
Við reynum að gera þetta þannig
úr garði að þetta verði sem mest
og best skemmtun og ekki mikið
umfram það. Það er enginn stór
boðskapur í verkinu, en samt er
víst að þessi tegund af manntólki
er til - þú þarft ekki annað en að
skreppa upp á Billann á Klappar-
stígnum til að komast að raun um
það...”
- Nú þarftu að bregða undir þig
dansfætinum í sýningunni. Hvern-
ig gengur það?
„Sem betur fer er það ekki mikill
dans sem mæðir á mér, engir stór-
dansar eða klassískir ballettar.
Dansinn gefur sýningunni auðvit-
að mikinn lit, en plottið er samt
ekki verra fyrir það - ég held meira
að segja að það hafi verið sett upp
sýning á Gæjum og pæjum þar sem
aðaláherslan var lögð á textann en
á kostnað söngsins og dansins.
Það var einhver leikhússfrömuður
sem taldi það synd að tónlistin
væri þarna að þvælast fyrir.”
- Söngurinn?
„Nei, hann er ekkert vandamál.
Þetta eru dægurlög, létt og
skemmtileg swing-lög sem maður
getur farið býsna frjálslega með.”
Það er Ragnheiður Steindórs-
dóttir sem leikur hjálpræðishers-
stúlkuna Söru í Gæjum og pæjum,
en auk hennar fara með stór hlut-
verk Flosi Ólafsson, sem einnig
þýðir verkið, Bessi Bjamason, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Sigurður Sig-
urjónsson, að ógleymdum íslenska
dansflokknum og stórum hópi
ungra leikara sem margir hverjir
hafa ekki komið á fjalir Þjóðleik-
hússins áður. Hljómsveitarstjór-
inn og annar leikstjórinn koma frá
Bretlandi, þeir Terry Davies og
Kenn Oldfield. Hinn helming leik-
stjórnarinnar sér Benedikt Áma-
son um, leikmynd gerir Sigurjón
Jóhannsson og búninga Una Coll-
ins.
Söngleikur - ja, kannski hefur
Þjóðleikhúsið veðjað á réttan hest
í þetta skipti, altént eru söngleikir
hátt skrifaðir hérlendis um þessar
mundir, sjáið bara My Fair Lady á
Akureyri...
-EH
Undir teppinu hennar ömmu
- nýtt kvennaleikhús frumsýnir verk eftirNínu Björk Árnadóttir
Við erum stödd í ósköp smáum,
en ofur vistlegum sal, svokölluðu
Auditoriumi Loftleiðahótelsins,
þangað sem lítt styrkt leikhús hafa
hrakist langt yfir mýrar og skurði
undan leiklistarhússleysi. I þessum
sal höfum við frétt að eigi að setja
upp nýtt íslenskt leikrit einhvern
nœstu daga. Við skimum í krók og
kima, en finnum enga afþeim kon-
um sem við höfðum mœlt okkur
mót við, svo karlmennskur ráð-
stefnusalaandi svífur yfir flostepp-
unum.
Við öndum að okkum andblæ
fjölþjóðahótelsins, eigrum um
ganga, kíkjum aðeins á vídeó,
rennum á lyktina af eggjum og
beikoni úr kaffiteríunni; og þar
sitja útvið glugga glaðbeittar kon-
ur, sem okkur finnst við þekkja úr
blöðunum.
„Við erum vorkonur Alþýðuleik-
hússins,” svara þær kveðju okkar,
„og syngjum Unga fólk undir fram-
sóknarmerki..
Þarna er sumsé hluti kvennanna
sem eru að setja upp leikritið
„Undir teppinu henncu- ömmu” í
nafni nýtilkomins kvennaleikhúss;
leikstjórinn Inga Bjamason, bún-
inga- og leikmyndcu-höfundurinn
Guðrún Svava Svavarsdóttir, Sig-
urveig Jónsdóttir leikkona og einn
karlmaður sem stingur í stúf, Ámi
Baldvinsson segist hcmn heita og
bætir við til skýringar:
,JÉg er ráðunautur um lýsingu,
eins konar ráðherra mætti segja.”
„Við uppgötvuðum okkur til
sárrar hrellingar að við kæmumst
ekki af án karlmanna,” útskýrir
leikstjórinn. „Það em tveir kcu-I-
menn sem leggja okkur lið. Hinn er
Hákon Leifsson sem spilcu- á har-
mónikku og notar rödd.”
Hverslags leikrit er þetta, spyrj-
um við, kvennaleikrit?
Leikstjórinn: ,,Þetta er leikrit
sem Nína Björk Ámadóttir skrifaði
sérstaklega fyrir okkur. Það byggir
að hluta á síðustu ljóðabók henn-
ar, Fugli óttans; ákaflega ljóðrænt
og óvenjulegt verk, sem fjallar um
nútíð, fortíð og framtíð þriggja
kynslóða kvenna ... En spurðu
höfundinn sjálfan, þarna kemur
hún,” segir Inga einsog þungu fargi
sé af henni létt.
Nína Björk kemur brosandi að
borðinu og í humátt á eftir henni
tvær ungar leikkonur, Sigrún Edda
Björnsdóttir og Sigurjóna Sverris-
dóttir.
,Æ, er ekki betra að aðrir geri
það,” segir Nína Björk með angist-
arsvip. Samt rennur henni greini-
lega blóðið til skyldunnar: ,£g held
að það sé réttara að kalla þetta
leikhúsverk en leikrit. Það skiptist í
þrjá samtengda þætti, sá fyrsti er
eintalsþáttur með tónlistarivafi,
annar þátturinn er einþáttungur í
hefðbundnari dúr og sá þriðji er
þeirra ljóðrænastur ...”
„Eins konar ljóðræn martröð
sem ein konan gengur í gegnum,”
bætir leikstjórinn við.
„Eigum við ekki frekar að kalla
það opið eintai,” bætir Nína Björk
um betur. „Heldurðu að fólk vilji
koma í leikhús til að sjá martraðir
Ja, fólk fer að sjá Sumargleðina,
ansar blaðamaðurinn útí hött.
„Þú mátt allt ekki halda að þetta
sé eitthvert endemis svartnætti,”
segir Inga. „Það er sungið og dans-
að og leikritið er líka meinfyndið á
köflum.”
Æíingin í ráðstefnusalnum er í
þann mund að hefjast, menningar-
vitar Sjónvarpsins komnir á svæð-
ið með vélar sinar og leikkonumar
hringsnúast um sjálfar sig í leit að
búningum, leikmunum og snyrti-
dóti. Inga og Nína Björk setjast nið-
ur hinar rólegustu og kveikja sér í
sígcirettu.
Hvernig er það stúlkur, ætlið þið
að halda áfrcim að leika kvenna-
leikhús?
Inga: „Það vona ég svo sannar-
lega. Ég held að þetta sé al-
skemmtilegcista vinna sem ég hef
komist í og finnst líka áberandi
hvað stelpurnar hafa lagt hart að
sér þessa rúmu tvo mánuði sem
við höfum verið að æfa.”
Gleymdum við ekki einhverjum?
Jú - Mist Þorkelsdóttir semur tón-
listina við Undir teppinu fienricir
ömmu, Guðrún Birgisdóttir leikur
á flautu í sýningunni; ótaldar leik-
konur eru Sólveig Halldórsdóttir,
Kristín Bjarnadóttir og Anna Ein-
arsdóttir. Frumsýningin verður á
Hótel Loftleiðum þriðjudagskvöld-
ið 20ta mars.
Svo er það stóra spumingin:
Hvað leynist undir teppinu hennar
ömmu? -EH.
HELGARPÓSTURINN 17
Sólveig Halldórs-
dóttir meö teppiö
hennarömmu á
hnjánum og skeytir
ekki áköfum bænum
Sigurjónu Sverris-
dóttur.
Smartmynd.