Helgarpósturinn - 15.03.1984, Page 22
SKÁK
Skákmót í skemmtilegu umhverfi
Alltaf er fróðlegt að koma í nýtt
umhverfi og dveljast þar, þótt
ekki sé nema fáeina daga. í
Grindavík er veglegt félagsheim-
ili og heitir Festi, þar var haldið
myndarlegt alþjóðamót í skák nú
á dögunum. Eg var viðloðandi
mótið nokkra daga og sé staðinn
í nýju ljósi eftir það. Félagsheim-
ilið Festi kannaðist ég áður við úr
útvarpi og blöðum, en hafði ekki
gert mér grein fyrir nafninu og
tengslum þess við Grindavík,
þótt eg yrði einu sinni svo frægur
að ganga á Festarfjall, en það er
að vísu ekki mikið afrek. En Fest-
arf jall heitir, eins og félagsheimil-
ið, eítir sérkennilegu jarðlagi í
fjallinu, er minnir á festi. Á skák-
mótinu tefldu 7 innlendir skák-
menn og 5 erlendir. Þar voru allar
aðstæður jafngóðar eða betri en
þær eru að jafnaði í Reykjavík;
rúmt um keppendur og ríkulegar
veitingar handa þeim meðan þeir
voru að tefla. Einnig var vel rúmt
um áhorfendur, svo að auðvelt
var að fylgjast með öllum skák-
unum úr sæti sínu. Á efri hæð
hússins er minni salur sem not-
aður var til skákskýringa þegar
áhorfendur voru margir.
Keppendur bjuggu í nýja gisti-
húsinu við Bláa lónið og voru þar
í fæði, að undanskildum eina
þátttakandanum frá Suðumesj-
um, Björgvin Jónssyni, en hann á
heima í Keflavík.
Umhverfi gistihússins er ævin-
týri líkast, húsið stendur mitt í
úfnu hrauni. I hrauninu var lítils
háttar snjór og minnti á Einar
Benediktsson:
Reifast úfið risaklungur
rifnum stakki fyrstu mjallar-.
Læt ég hægar, hægar lötra.
Hundrað raddir þögnin klæðir.
Fáleit grös í gjótum nötra,
gustur ólífs hraunið næðir.
Ailt er töfrað, fellt í fjötra-
Skammt sunnan við gistihúsið
gnæfir orkuverið í Svartsengi
með mikilúðugum gufustrókum
sem stundum teygja sig út yfir
Bláa lónið, svo að þcir sér varla
handa sinna skil. En gott er að
baða sig í þessari heilsulind og
vel fór um ailla í gistihúsinu.
Allcu- aðstæður, jafnt til keppni
sem til hvíldar, voru með þeim
ágætum á þessu móti, að vel
mætti segja mér að einhverjir
keppenda ættu eftir að hugsa
með söknuði til Grindavíkur og
Bláa lónsins síðar meir í ævinni.
Taflmennskan á mótinu var að
jafnaði fjörug og hressileg, frekar
lítið um jafntefli, og þeir sem
lögðu leið sína á mótið fengu sitt-
hvað skemmtilegt að sjá í hverri
umferð.
Hér var lögmál baráttunnar að
verki eins og jafnan á skákmót-
um; sá sem sigrar í dag getur allt
eins beðið ósigur á morgun.
Þannig vann Elvar Guðmundsson
eina af bestu skákum mótsins
gegn Gutman, en nokkru síðar lá
hcinn sjálfur fyrir sncirpri atlögu
Ingvars Ásmundssoncir. Fyrri
skákin hefur verið birt í blöðum,
sú síðari kemur hér.
Upphaf þessarar skákar er afar
frumlegt, Elvcir hefur svcUt og fet-
ar í spor enska meistarans Miles,
en hann vann heimsmeistarann í
skák þar sem hann svaraði 1. e4
með a6. Þessi skák tekur þó fljót-
lega aðra stefnu en sú skák gerði,
og minnir á franska leikinn. En
sjón er sögu ríkari:
INGVAR ELVAR
01. e4 a6 02. d4 b5
03. a4 b4 04. Be3 Bb7
05. Rd2 Rf6 06. Bd3 e6
07. f3 d5 08. e5 Rfd7
09. f4 c5 10. Rgf3 cxd4
11. Rxd4 Rc5 12. 0-0 Rxd3
13. cxd3 Bc514. R2b3 Ba7
15. f5!
Svartur hefur lítinn liðsafla á
kóngsvæng og Ingvar færir sér
það snarplega í nyt.
15. ... exf5 16. Hxf5 0-0
17. Khl
Það er betra að flytja kónginn af
skálínunni til þess að eiga riddar-
ann lausan ef á þarf að halda.
Atiaga sú sem nú vofir yfir svcirti
er sýnilega stórhættuleg, því að
hvítur er svo fljótur að koma
mönnum sínum á vettvang (Dg4,
Bh6 eða g5, Hael eða Hafl). Og
eftir þcinn varnarleik sem svartur
velur verður sóknin býsna
skemmtileg:
17. ... Bc8 18. Bg5 De8
,19. Bf6H
Nú eru góð ráð dýr: 19.... Bxf5 20.
Rxf5 Rd7 21. Dg4 g6 22. Rh6 mát!
19. ... gxf6 20. Dg4+ Kh8
21. Dh4!
Þennan leik þurfti Ingvar að sjá
fyrir.
21. ... Hg8 22. Hh5!
Og nú gafst Elvar upp. Taflið er
tapað, Hg7 svcirar hvítur með
exf6 og svartur verður að iáta
hrókinn af hendi, án þess að
verulegt lát verði á sókninni.
Einna skemmtilegustu lokin eru
líklega: 22. - Kg7 23. Hxh7+ Kf8
24. Dh6+ Ke7 25. Dxf6+ KÍ8 (Kd7
26. Dd6 mát) 26. Hf 1 og vinnur.
VEÐRIÐ SPILAÞRAUT LAUSN Á KROSSGÁTU
Blíðviðri um allt land um helg-
ina, segir blessuð Veðurstof-
an, og vér fögnum innilega.
Er þá langþráð vorið komi?
Já, segja gæsirnar fyrir aust-
an fjall og yngsta kynslóðin
(a.m.k. í Reykjavík) sem
undanfarið hefur verið önnum
kafin við snú-snú og bimbi-
rimbirimbam. Tvímælalaust
pottþéttir vorboðar. En allur
er varinn góður og vissara að
klæða sig vel, krakkar, því
svolítil skúra- og éljahætta er
á suðvesturhorninu, þótt víð-
ast verði léttskýjað.
S A-K-8-6-4
H Á-9-4-2
T Á-10-5-3
L --
S D-G-9-3-2
H K-8-5-3
T 9-8-2
T K
S 10-5
H 7
T K-G-7-4
L Á-G-9-8-7-5
S A-K-8-6-4
H Á-9-4-2
T Á-10-5-3
L -
S D-G-9-3-2
H K-8-5-3
L K
Vestur spilar fjóra spaða.
Norður lætur tromp.
Þannig voru öll spilin:
S 7
H D-G-10-6
T D-6
L D-10-6-4-3-2
LAUSN Á BLS. 27.
• 6 B • V ■ . E - . B ■ S A . H
B fí R N U N G 1 • m £ -Ð /< 0 /< K fí
fí u R U <5 fí R ■ H 0 R N & £ R 1 . T
R J 'o m fí • E F fí R B fí R fí 5 r fí
• 5 fí L L fí / R R / N G p R . N F . U R Ð
T R J 'O fí fí N . 'fí R fí G R U G G U 6 T ú /
• fí ■r 6 m • S N 'fí P fl S fí . m fí s R ö fí D •
• F • m u N l< • r fí R ■ S fí u m fí S L fí G
5 K '0 fí R 1 • L fí Ð • S T u N fí N K s • R 'o
ff) fí R R 5 L y s • fí s . m u N N fí ■ K fí L
• R fí '0 T U k T / N F fí N s • S 1 N N .
B l R fí R / L L / G fí u s ö R fí R 'fí s T
• fí 5 K fí • L P R F fí F • T o m fí Æ R fí N
4^=7! i VfíNS/ H SpmíT /■'flTfí sfímnL. BRfíGÞ hBFfíR ZJ 'fí.. HOfÐ/ 5 VERfíZ DurrU urr\ KoLL FÚTffí SToFfí IboRDfí V/ fíRfíS Ljó/nfí FoRSk. DYR ' SfímSTA Zj MLTiNN S’iVu,
YfíOl /j. SfímsT. SH. ST. EUfíDNfí
op
r
V >
Mjáó þu/fQT LJOTfí
TU/fGU m'n t- £KK/ htiSfiR TRétJ Romsfí
II LL 5T/IU!? STfíffí PÚKfí HfíÍNfíR '0L0c,IJ)
STÉRkd <SLjfí! MoRsut/ BlRTfí VttTfíA nftLL* róm HjflRq
'fl FUÖLI fííTOUl MOGL
l Þríytu TruFlSR : • BL'oTfí
Sj'o HHJÓÐ
PF ST/ft> UROfíR KfíUP vlsfíN CNV.
Tv'i UÓNfí TfíLfí 'Oloq- /NNfí
5PÝlUR KvCHVfiR 6UMNH
GiS-ri Hú S -| P£N1U6» SToFHUN
Sfírn$T KrYpT) 5 KUTUR
LtNORn upp/ VISIR Tr'e '/ LfíT
5ó'6N '/ 80k U/T/L /3RfíUT) Smé /Ð H£RB. ÚT FiSKur
VEtfLfi i— 771 FOR
l '0YIS5H SvfíRfl 5 P/RuR RoSKúR
TÓNN BND. GELT % ElNS
ÆRí>- PR HLjÓÐfl SviD- IHGR
KLETffl syiiFug VjfíRf /R S/fífí GIL.VI
22 HELGARPÓSTURINN