Helgarpósturinn - 15.03.1984, Page 23
HRINGBORÐIÐ
Heilbrigðið og hormónaskrímslin
í dag skrifar Magnea Matthíasdóttir
Eitt af því sem setur sorglegan
svip á íslenskt þjóðlíf þessa daga
kreppu og eymdar, er hinn yfir-
gengilegi íþrótta- og heilsuáhugi
sem gagntekur fólk. Enginn þykir
lengur maður með mönnum, ef
hann er ekki skráður í einhverja
heilsuræktina og góðbókmenntir
(að ekki séu nefndar aðrar bæk-
ur) hafa horfið úr hiljum heimil-
anna en í staðinn komnar aðskilj-
anlegar Fondur og Prinsípullur,
svo ekki séu tíundaðar þær á
heima(víg)vellinum. Meira að
segja veðrið hefur vikið úr sínum
heiðurssessi í orðræðum manna
og þess í stað er skipst á frægðar-
sögum úr ljósunum og hinum
ýmsu tækjum.
Þetta fer óskaplega í taugamar
á mér, ég viðurkenni það þegar,
þó það muni að sjálfsögðu kosta
mig útskúfun úr öllu samfélagi
heilsuhraustra. Ég hef nefnilega
alla tíð fremur verið höll undir
það sem kallað er anti-sport og
óhollt líferni, enda að mínu mati
mun skemmtilegra én hitt. Auk
þess hef ég lengi efast um „heil-
brigðu” sálina í „hrausta” líkam-
anum og að slíkt verði nauðsyn-
lega að merkja ofþroskaða vöðva
undir gervibrúnu skinni.
Sumt cif þessu „holla” lífemi fæ
ég heldur ekki með nokkm móti
skilið að sé heilsusamlegt.
Hvemig getur það til dæmis ver-
ið gott fyrir líkamann að pína
hann á hlaupum, þar til allt
virðist vera að bresta - lungu,
hjcirta og eflaust lifrin líka? Eða
lifa á jógúrt og eplum vikum sam-
an (og fáeinum sveskjum svona
fyrir meltinguna), að ekki séu
nefndar tíu daga eða lengri föst-
ur, sem em víst eitt nýjasta fyrir-
bærið? Nú, og hvað um fleiri-
hundmð metra sundspretti í tutt-
ugu stiga gaddi eða svo? Slíkt
hljómar að minnsta kosti hræði-
lega, hver sem hollustan er.
Aukaverkanir þessarar óhugn-
anlegu hollustutilbeiðslu em
fleiri en sjást í fljótu bragði. Ein
sú versta (að mínu mati) er
skelfileg brenglun á fegurðar-
kennd og kímnigáfu. Þannig var
til að mynda auglýst um daginn
að á ónefndu vertshúsi hér í borg
yrði boðið upp á það sem
„skemmtiatriði” að sýna ofvaxna
olíusmurða vöðva og er trúlega
ekki síðasta auglýsingin sem við
sjáum þess efnis. Hvort svo aftur
eru til einhverjir, sem hafa unun
af að skoða vaxtarlag vesalings
hormónaskrímsla, sem boðið er
uppá einsog hver önnur „freak-
show”, skcil ósagt látið. Slíkt vil ég
ekki úttsila mig um, án þess að
ráðfæra mig við sérfræðinga (sál-
ar og laga).
Annar fylgifiskur er ótrúleg þrá
til að predika og frelsa aðra verr á
sig komna líkamlega, einsog okk-
ur veslings stórreykingafólkið,
sem virðumst stundum rétt-
dræp . Efnilegir drykkjutækncir
þurfa að þola langar ræður um
skaðsemi alkóhóls og þeir sem
eru í þokkalegum holdum geta
ekki litið í blað án þess að yfir þá
þyrmi, vegna aðskiljcinlegra kúra
og læknciskýrsla sem beint er
gegn þeirra tiltekna holdafari. Á
vinnustöðum ganga fjölritaðir
megrunarkúrar manna á meðal
og enginn er óhultur, jafnvel ekki
þeir sem hefðu verið taldir sæmi-
lega grannir fyrir svosem einsog
fimm árum eða svo. Útsendcircu-
heilsufrelsunarinnar eru í hverju
horni.
En auðvitað eru stöku Ijós-
blettir i svartnættinu, einsog
annarsstaðar. „Fátt er svo með
öllu illt,” sagði einhver, hvort
sem það var nú heldur kerlingin
eða Biblían. (Til þeirra tveggja
heimilda er oftast vitnað á ís-
lensku - innsk. MJM.) Einn af
þeim þykir mér til dæmis að fólk
er orðið miklu meðvitaðra um
það sem það lætur oní sig, svo-
sem einsog efna„bættan” mat og
litaðan og allskyns „gervifæðu”,
einsog hvítt hveiti og sykur. Nýtt
grænmeti og ávextir fást nú
blessunarlega allt árið um kring,
meira að segja á viðráðanlegu
verði svona stundum, og þar er
„fronturinn” sífellt að breikka
með spennandi viðbótum:
Baunaspírum, ferskum krydd-
jurtum, framandlegum ávöxtum
og öðrum skemmtilegum nýj-
ungum í íslenskum verslunum.
Það þæf meira að segjaekki leng-
ur að fara í langa leiðangra til að
finna heilhveiti og rúgmjöl á öðr-
um tíma en sláturtíðinni.
Þetta heilsufarsæði er þá
kannski ekki svo galið eftir allt
saman og engin ástæða til að
nöldra yfir því. Á það ber aftur á
móti að líta, að það er ekki gott
fyrir heilsuna að byrgja alla
gremju inni...
Æjá, það er vandlifað í stórum
heimi.
í ÁSKRIFT
— inn um bréfalúguna
á föstudagsmorgni
Fyrir ykkur öll sem ekki getiö hugsað ykkur
helgi án Helgarpóstsins
Áskriftarsími 81511
Msnn hafa veríð að fá botn i hlutina
í Borgarnesi.
Það var haft eftir Bakkabræðrum, að
botninn væri suður í Borgarfirði. Þetta
orðtak hefur verið að rætast á óvæntan hátt
fyrir marga, sem átt hafa í flóknari málum
en bræðurnir á Bakka. Menn kannast orðið
við það úr fréttum, að þegar mikið liggur
við og ekkert má trufla fara nefndir og ráð
stundum upp í Borgames til þess að fá
botn í hiutina. Þar finna menn frið til að
hugsa og tala saman. Þar er líka að finna
þá tilbreytingu frá daglegu umhverfi, sem
oft nægir til þess að sjá hlutina í samhengi.
Frið og tilbreytingu má víða finna á íslandi
en í Borgarnesi hefur verið byggð upp að-
staða rétt utan við höfuðborgarsvæðið fyrir
fólk sem vill vera í friði án þess að missa í
leiðinni af þægindum nútímans. Hótelið er
tilvalið fyrir ráðstefnur, fundi og námskeið
en ekki síður fyrir einstaklinga, sem vilja
fínna frið og ró rétt við bæjardymar þjá sér
án þess að leggja á sig mikil ferðalög eða
kostnað.
7A HÓTEL
BORGARTÆS
HELQARTILBOÐ: Qisting í tveggja
manna herbergi m/baði í tvær nætur ásamt
morgunverði og ferðum fram og til baka
frá Reykjavík með Sæmundi eða Akraborg.
Verð frá kr. 970.00 á mann. Leitið upplýs-
inga hjá Hótel Borgarnesi eða Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
(TILBOÐIÐ GILDIR TIL 15. APRÍL NK.)
s*.25855
S: 93/7119
HELGARPÖSTURINN 23