Helgarpósturinn - 15.03.1984, Síða 28
þingi í síðustu viku gæti komist á
spjöld þingsögunnar, því þar mun
það í fyrsta skipti hafa gerst að
umræðum sé hætt til að innan-
hússfólk í þinginu komist í bað.
Ræðuhöld um gatið í fjárlögunum
höfðu staðið *llan daginn þegar
sjálfur Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra og gatstjóri, steig
í pontuna rúmlega sjö um kvöldið
eftir að ýmsir þingmenn höfðu
orðið til að ganga í skrokk á hon-
um. Var Albert hinn rólegasti og
sagði að klukkan væri nú farin að
ganga átta og ekki rétt að teygja
þennan lopa mikið lengur. Menn
hefðu verið að halda því fram að
óeining væri í ríkisstjórninni, en
það væri mesti misskilningur. Því
væri rétt að slíta fundi á þessum
punkti því þingmenn, og ekki síður
starfsfólk Alþingis, væru boðin
suður í Kópavog í leikhús þar sem
verið væri að sýna Agöthu Christ-
ie. Þyrftu menn vafalaust að
skreppa heim í bað og skipta um
föt. Þannig kom A-gat-a í gats stað
á alþingi Islendinga...
flW'eilur eru nú logandi vegna
fyrirhugaðra breytinga á skipan
mála að Kjarvalsstöðum sem Ein-
ar Hákonarson, formaður list-
ráðs, hefur beitt sér fyrir. Gera
breytingar þessar ráð fyrir því að
samtök myndlistarmanna muni
ekki útnefna sinn fulltrúa í ráðið
eins og verið hefur, heldur verði sá
listamaður sem fær starfslaun
Reykjavíkurborgar hverju sinni
sjálfkrafa fulltrúi (iar. Það er ein-
mitt listráðið sem velur þann lista-
mann og telja samtök myndlistar-
mcuina að þarna vilji Einar raun-
verulega ráða sjálfur hver verði
fulltrúi myndlistcUTncmna í listráð-
inu. Hafa samtök myndlistar-
manna mótmælt þessum fyrirhug-
uðu breytingum bréflega, en ekki
er útséð um úrslit málsins ...
D
H^^eynt er að hafa ekki hátt
um það, en æði er orðið stirt á milli
Alberts Guðniundssonar fjár-
málaráðherra og ýmissa annarra
forystumanna Sjálfstæðisflokks-
ins. Ekki á þetta síst við um sam-
band þeirra Alberts og Davíðs
Oddssonar borgarstjóra. Til
marks um þetta er ágreiningur um
fyrirkomulag greiðsla á gjöldum til
borgarinnar. Jcifncm er mikill þrýst-
ingur á borgaryfirvöld frá ýmsum
að fá að greiða gjöldin með skulda-
bréfum. Föst venja er hins vegar
hjá borginni að taka ekki við
greiðslu í slíku formi. Þeir menn
eru hins vegar til sem ekki vilja una
þessu. Þeir eru vinir Alberts. Þeir
fara því á fund vinar síns og segja
sínar farir ekki sléttar. Á skrifstofu
fjármálaráðherra og fyrrum for-
seta borgarstjómcu' fer þá fram lít-
ill leikþáttur að viðstöddum fyrr-
nefndum aðilum og er hann á
þessa leið: Albert hringir í Davíð
og lýsir vandræðum fyrmefndra
aðila. Albert: - Heldurðu að þú
reddir þessu ekki fyrir strákana,
Davíð minn? Davíð: - Nei, Albert,
þú veist að ég get það ekki. Við
gerum ekki undantekningar í
þessu máli. Albert: - Já, jæja,
Davíð, þakka þér fyrir. Ég vissi að
þú myndir ráða fram úr þessu. Ég
sendi þá mennina til þín og vertu
blessaður!...
ŒÖPnúsunnendur geta hlakkað
til 1. apríl. í alvöru. Þá koma vinir
okkar The San Fransisco Blues
Band hingað á vegum Jcizzvakn-
ingar og ylja okkur um hjartarætur
í Sigtúni. Blúsinn er í miklum met-
um meðal íslendinga um þesscir
mundir, og mun Jazzvakning jafn-
vel eiga von á fleiri heimsóknum
erlendra blúsmanna á næstu mán-
uðum...
s
4Eprifelldar hræringar em í veit-
ingcihúscikúltúrnum hérlendis og
ætlcU" ekkert lát að verða á fjölgun
vertshúsa. Bjórstofan Gaukur á
Stöng olli nýjustu sprengingunni
og liggja hjá yfirvöldum fjölmargar
umsóknir frá mönnum sem hyggja
gott til glóðarinnar og telja þarna
komna nýja gullnámu. Nú þegar
hillir undir opnun nýrrar bjórstofu
og enn fleiri munu í deiglunni.
Senn opnar að Hverfisgötu 46 krá
sem heyrst hefur að heita muni
POBB-INN, og eins og nafnið bend-
ir til verður þar tekið mið af enskri
bjórstofumenningu, öfugt við þá
þýsku sem ríkir á Gauk á Stöng.
Þarna var áður leiktækjasalur, en
eigandinn Gylfi Guðmundsson,
sem áður hefur m.a. rekið Skrínuna
og Kirnuna, er sagður ætla að hafa
lifandi tónlist á boðstólum fyrir
gesti sína, jcizz, blús og svo fram-
vegis. Slíkur músík-pöbb er mikið
tilhlökkunarefni. Þá heyrir HP að
von sé á öðrum pöbb í Tryggvagöt-
unni, ekki langt frá Gauknum.
Einnig er von á viðbót við hótel-
rýmið í höfuðborginni. í húsi
Brauðbæjar við Óðinstorg er verið
að vinna að opnun nýs hótels ...
M.
tt tímarit mun líta dags-
ins ljós áður en langt um líður.
Nefnist það Bíllinn - bílablað og
er það útgáfufyrirtækið Frjálst
framtcik sem gefur blaðið út í sam-
vinnu við Félag íslenskra bifreiða-
eigenda. Samstarf FIB og Frjáls
framtaks hefur staðið um árabil og
gáfu þessir aðilar út Öku-Þór. Nú
hefur FÍB hins vegcir gert Öku-Þór
að fréttabréfi sínu og er það ein-
göngu ætlað félagsmönnum, en
hins vegar mun nýja bílablaðið
einnig verða selt á frjálsum mcirk-
aði. Ritstjóri þess verður Sighvat-
ur Blöndahl sem um árabil hefur
séð um bíiasíður Morgunblaðsins
mg
I ^Bú stefnir í talsverða grósku
í blaða- og tímciritaútgáfu hérlend-
is. Helgarpósturinn heyrir að nýtt
vikublað, tileinkað útvarpi, sjón-
varpi, myndböndum, skemmtana-
lífinu, bæði af innlendum og er-
lendum vettvangi, muni hefja
göngu sína í aprílmánuði. Helsti
hvatamaður þessarar útgáfu er
Jóhannes Guðmundsson, sem
reyndur er í blaðaútgáfu, m.a. sem
framkvæmdastjóri Alþýðublaðs-
ins í mörg ár og einnig Helgar-
póstsins á sínum tíma ...
líHIP'g þriðja nýja blaðið mun
koma út á vegum útgáfufyrirtækis-
ins Fjölnis. Það hefur um hríð gef-
ið út lcmdbúnaðarblaðið Bóndann,
sem dreift er ókeypis til bænda um
allt land. Fjölnir, sem þar með virð-
ist leggja aukna áherslu á blaða-
útgáfu í stað bóka áður, hyggst nú
hefja útgáfu annars blaðs á sviði
atvinnulífsins, sem dreift yrði með
svipuðum hætti og Bóndanum,
eða um 5000 eintökum ókeypis og
um 1000 eintökum í lausasölu og
áskriftum. Þá heyrir HP að þriðja
blaðið af svipuðum toga sé í undir-
búningi hjá Fjölni, sem virðist
þannig stefna í talsverða Scim-
keppni við Frjálst framtak. Hefur
Fjölnir nú flutt í ný og rúmgóð
húsakyni að Höfðabakka 9 og eru
þar fjórir starfsmenn í fullu starfL
l fiskútflutningi hcifa menn
talsverðcu- áhyggjur af þeirri frétt
sem birtist í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku um að leyfi hafi verið
veitt til frystingar á fiski í gámum.
Þessi svokallaða lausfrysting er
hæg, öfugt við fullkomna hrað-
frystingu frystihúsa í landi, og ótt-
ast menn að þessi meðferð á fisk-
inum kunni að leiða til minni
gæða. Sagt er að hér sé um skref
afturábak að ræða sem kunni að
hafa alvarlegar afleiðingar fyrir ís-
lenskan fiskútflutning og bjóði ekki
síst heim sundrungu í sölusamtök-
um og öllu markaðskerfi íslend-
inga. Um þessa lausfrystingu gilda
engin lög og engar reglugerðir og
þykir sýnt að gæðaeftirlit með
þessum fiski verði takmarkað...
a cbsso/S/°
°Wn %)ltS
Nýttbrauð
á hveijum moigni
OPIÐALLAR HEL6AR TIL4