Helgarpósturinn - 02.08.1984, Page 26
HELGARDAGSKRAIN
Föstudagur 3. ágúst
18.00 Ólympiuleikarnjr í Los Angeles.
19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dög-
um. 13.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingarog dagskrá.
20.40 Á döfinni.
20.50 Skonrokk.
21.15 Uppreisnin á Bounty. Bandarísk
Óskarsverðlaunamynd byggð á
sannsögulegum heimildum. Leik-
stjóri Frank Lloyd. Aðalhlutverk:
Charles Laughton, Clark Gable.
Franchot Tone, Herbert Mundin og
Movita.
Á herskipinu Bounty unir áhöfnin
illa harðstjóm Blighs skipstjóra og
gerir loks uppreisn undir forustu
Christians Fletchers tyrsta stýri-
manns. Einhver besta ævintýra-
mynd állra tíma með afburðaleik
Charles Laughton. 3 stjörnur.
23.20 Ólympíuleikarnir í Los Angeles.
00.50 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 4. ágúst
16.00 Ólympiuleikarnir í Los Angeles.
18.30 Ég hélt við ættum stefnumót.
Danskt sjónvarpsleikrit um hass-
reykingar unglinga á skólaaldri.
19.05 Ólympíuleikamir i Los Angeles.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20 00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Í fullu fjöri. Þriðji þáttur.
21.00 Fred Ákerström á Listahátið.
Sænski söngvarinn Fred Áker-
ström flytur lög eftir Bellman og
Ruben Nilsson. Upptaka frá hljóm-
leikum í Norræna húsinu þann 7.
, júni síðastliðinn.
21.55 Flóttinn mikli. Bandarísk þíómynd
frá 1963. Leikstjóri John Sturges.
Aðalhlutverk: Steve McQueen,
James Gamer, Richard Atten-
borough, James Donald, Charles
Bronson, Donald Pleasance og
James Coburn.
Bandarískum striðsföngum, sem
hafa orðið uppvísir að flóttatilraun-
um, er safnað saman í rammlega
víggirtar fangabúðir nasista. Þeir
gera þegar í stað ráðstafanir til að
undirbúa flóttann mikla. Fyrsta
flokks hasarmynd.
00.30 Dagskrárlok.
d Sunnudagur 5. ágúst
'17.00 Ólympíuleikarnir í Los Angeles.
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Geimhetjan. Sjötti þáttur.
18.35 Mika. Sænskur framhaldsmynda-
fiokkur.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarog dagskra.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Ást Guðs á þar aðveitustöð. Her-
mann Sveinbjömsson ræðir við Ey-
þór Stefánsson, tónskáld á Sauðár-
króki. Eyþór Stefánsson er lands-
kunnur fyrir sönglög sín og heima i
héraði hefur hann verið burðarás
tveggja menningarþátta, leiklistar
og tónlistar, um áratuga skeið.
21.10 Hin bersynduga. Annar þátf
ur.
22.00 Ólympiuleikamir i Los Angeles.
23.20 Dagskrárlok.
©
Föstudagur 3. ágúst
14.00 „Lilli" eftir P.C. Jersild.
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Nýtt undir nálinni. Hildur Eiríks-
dóttir.
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar: Tónlist eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp.
19,00 Kvöldfréttir.
19 50 Við stokkinn. Stjórnandi Gunnvör
Braga.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.10 Tónlist eftir Carl Nielsen.
21.35 Framhaldsleikrit: „Gilbertsmál-
ið“ eftir Frances Durbridge. End-
urtekinn III. þáttur: „Peter Galino.
22.15 Veðurfregnir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Maðurinn sem hætti að reykja"
eftir Tage Danielsson.
23 00 Söngleikir í Lundúnum. 3. þáttur.
23.45 Fréttir frá Ólympíuleikunum.
23,55 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2. Lýkur kl.
05.00.
Laugardagur4. ágúst
13.40 íþróttaþáttur.
14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um málefni
líðandi stundar.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvarsson.
16.20 Framhaldsleikrit: „Gilbertsmál-
ið“ eftir Frances Durbridge. IV.
þáttur: „Klúbburinn La Mortola”.
(Áðurútv. ’71).
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Listahátíð 1984: „The Chief-
tains".
18.00 Miðaftann i garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni.
19,00 Kvöldfréttir.
19.35 Ólympíuleikamir í handknattleik:
ísland - Japan. Stefán Jón Haf-
stein. lýsir siðari hálfleik.
20.10 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka.
20.40 „Laugardagskvöld á Gili“. Hilda
*:> Torfadóttir tekur saman dagskrá úti
á landi.
21.15 Harmonikuþáttur.
21.45 Einvaldur í einn dag. Samtalsþátt-
ur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.00 Tónleikar.
22.15 Fréttir.
22.35 „Að leiðarlokum" eftir Agöthu
Christie. Magnús Rafnsson byrjar
lestur þýðingar sinnar.
23.00 Létt sigild tónlist.
23.40 Fréttirfrá Ólympíuleikunum.
'23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl.
05.00.
Sunnudagur 5. ágúst
10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Messa í Skálholtskirkju - Skál-
holtshátíð.
12.20 Fréttir.
13,30 Á sunnudegi. Umsjón Páll Heiðar
Jónsson.
14.15 Frá Gnitaheiði til Hindarfjalls.
Þáttur um Niflungahring Wagners í
umsjón Kristjáns Árnasonar.
15.15 Lífseig lög. Umsjón Ásgeir Sigur-
gestsson, Halllgrímur Magnússon
ogTrausti Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmenntir.
Umsjónarmenn Örnólfur Thorsson
og Ámi Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisgónleikar. Frá tónlistar-
hátíðinni i Bergen i sumar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Eftir fréttir. Umsjón Bemharður
Guðmundsson.
19.50 Ljóð frá ýmsum árum. Valborg
Bentsdóttir.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins.
Helgi Már Barðason.
21.00 Big-Band tónlist.
21.40 Reykjavik bernsku minnar - 10.
Val Ólafs Laufdal
„Ég er ánægður með báðar rásirnar í útvarpinu," sagði Ólafur Laufdal
veitingamaður, ,,og í heildina finnst mér sjónvarpið merkilega gott. Ég’
horfi alltaf á fréttirnar í sjónvarpinu og hlusta á þær í útvarpinu. Allt ís-
lenskt efni sé ég og ég horfi á alla umræðuþætti. Svo horfi ég á bíómynd-
irnar, til dæmis þær amerísku.og á íþróttir náttúrlega. í útvarpinu hlusta
ég á þáttinn „í býtið" og á Rás 2 hlusta ég meðan hún er opin. Þættinum
fyrir gamia fólkið „Hin gömlu kynni" missi ég ekki af.“
þáttur. Guðjón Friðriksson ræðir
við Albert Guðmundsson.
22.15 Fréttir.
22.35 „Að leiðarlokum" eftir Agöthu
Christie. Magnús Rafnsson les
Mánudagur 6. ágúst
Frídagur verslunarmanna
14.30 Á ferð og flugi.
Í6.00 Fréttir.
16.20 íslensk lög sungin og leikin.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Að ferðast er að lifa. Erindi Indriða
i G. Þorsteinssonar.
19.00 Kvöldfréttir.
19 35 Daglegt mál. Eirikur Rögnvalds-
* son talar.
19.40 Um daginn og veginn. Júlíus S.
“ Ólafsson talar.
20.00Lög unga fólksins. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
21.10 Nútímatónlist. Þorkell Sigur-
bjömsson.
21.40 Útvarpssagan: „Vindur, vindur
vinur minn“ eftir Guðlaug Ara-
son.
22.15 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.35 Kammertónlist.
23ÍÍ0 „Mig dreymdi að í sólskini...” Fyrri
þáttur Höskuldar Skagfjörð um
J drauma.
23.45 Fréttir frá Ólympíuieikunum.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
£
Föstudagur 3. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur. Jón Ólafs-
M son og Kristján Sigurjónsson.
14.00-16.00 Pósthólf ið. Valdís Gunnars-
‘;i ,s dóttir.
16.00-17.00 Jazzþáttur. Vemharður
Linnet,
17.00-18.00 í föstudagsskapi. Helgi Már
f Barðason.
i-05.00 Næturvakt á Rás 2. Þorgeir
Ástvaldsson.
Laugardagur 4. ágúst
24.00-00.50 Listapopp.
00.50-05.00 Á næturvaktinni.
f Sunnudagur 5. ágúst
ö-18.00 S-2, sunnudagsútvarp. Páll
Þorsteinsson og ÁsgeirTómasson.
45-05.00 Á næturvaktinni. Jónatan
S Garðarsson.
Mánudagur 6. ágúst
00-12.00 Morgunþáttur. Jón Ólafs-
Jf son.
00-15.00 Dægurflugur. Leopold
á Sveinsson.
Dp-16.00 Krossgáta númer 7. Jón
# Gröndal.
00-18.00 Á heimleið. Júlíus Einars-
son.
SJÓNVARP
eftir Guðjón Arngrímsson
Sportidjótasumarið
Það hefur kosti ekki síður en gaila að
njóta viðburða eins og Ólympíuleikanna
í sjónvarpi.
Byrjum á göllunum.
Stemningin tapast eins og venjulega.
Það er sama hvort verið er að sýna
íþróttir, tónleika, dýramyndir eða bara
fréttaviðburði, alltaf vantar mikið á að
atburðir komist til skila eins og þeir eru
upplifðir af manneskju á staðnum.
Myndavélin upplifir ekkert, hún skráir
aðeins á kaldan og yfirvegaðan hátt það
sem henni er beint að. Og þegar búið er
að mixa saman það sem margar mynda-
vélar sjá og pakka því inn í stofu heima
færðu íitla tilfinningu fyrir rafmagninu í
Ólympíuleikar í sjónvarpinu - þetta vil ég
fá og fæ það.
loftinu, fyrir hitanum, Iyktinni og háværa
manninum í sætinu fyrir aftan. Aðeins
örfáum kvikmyndagerðcirmönnum hef-
ur tekist að ljá kvikmyndum sínum slík-
an raunveruleikablæ - og eru þeir þó
alltaf að reyna.
Annar galli er sá að við á íslandi sjáum
ekki atburði fyrr en nokkru eftir að þeir
hafa gerst - sem enn dregur úr stemn-
ingunni.
En kostimir em fleiri:
í fyrsta lagi ertu þó að horfa á Ólymp-
íuleikana, nokkuð sem þú ættir annars
varla möguleika á.
í öðm lagi, og það er aðalatriðið, þá
em þessir Ólympíuleikar skipulagðir sem
sjónvarpsefni, og nánast útilokað fyrir
aðra en vellauðuga LA-búa að njóta
þeirra í heild án aðstoðcir kassans. Keppt
er allan daginn á fjölmörgum stöðum. í
frjálsum íþróttum á aðalleikvanginum, í
sundi í suridlauginni (reikna ég með), í
körfubolta í íþróttahöllinni, í handbolta í
anncú-ri höll, í knattspymu á knatt-
spyrnuvelli, í róðri úti á sjó, í hjólreiðum
úti á götu og í hjólreiðahöllinni og þá er
eftir-að minnast á júdó, glímu, lyftingar,
hockey, dýfingar, blak, tennis og margt
fleira. Tugir kílómetra em á milli keppn-
isstaðcuma, þannig að á einum degi er
vart hægt að fara nema á tvo, í mesta lagi
þrjá staði - og það kostar sitt.
Nei, má ég þá biðja um tvo til þrjá tírria
á dag af völdu úrvcdsefni. Ég vil sjá ís-
lendingana hamast við, og síðan æsileg-
ustu augnablik keppninnar í sem flest-
um greinum, tcikk fyrir. Þetta vil ég fá
heim í stofu fyrir sama og ekkert. Og
þetta láta þeir Bjami og Ingólfur okkur
fá. Meira að segja sýna þeir hægt
það allra æsilegasta og líklega oft og
mörgum sinnum. Svo er sjónvarpinu
fyrir að þakka að sumarið ’84 er mikil
hátíð fyrir sportidjóta.
UTVARP
eftir Helga H. Jónsson
Horfið barnagaman
Skoðanakannanir em orðnar merki-
legt verkfæri þjóðfélagsfræðinga - og
raunar ýmissa annarra - við athugcinir á
margvíslegum fyrirbærum og tilbrigð-
um mannlífsins. Auðvitað er útvarps-
hlustun eitt af því sem kannað hefur ver-
ið, þótt eflaust þyrfti að gera meira af því
hér á landi en þegar er orðið. Og þá
mega forráðamenn útvarpsins ekki
gleyma þvf að taka mark á niðurstöðum
og miða svipmót dagskrárinnar að ein-
hverju leyti við þær. Stundum læðist að
manni gmnur um að þeir sem móta eiga
dagskrána, hafi sumir hverjir einum of
ríka tilhneigingu til þess að líta á það
sem hlutverk sitt að hafa vit fyrir fólki.
Að sjálfsögðu er ekki með þessu sagt að
útvarp eigi ekki að vera menntandi og
fræðandi. Málið er það, að menntun og
fræðslu er hægt að veita án þess að vera
leiðinlegur.
Tilefni þessara orða var annars barna-
efni í útvarpinu. Trúlega em börn í senn
einhverjir vandfýsnustu og þakklátustu
útvarpshlustendur sem til em. Spum-
ingin er kannski sú, hvort ekki sé svo
lítið fyrir þennan hlustendahóp gert, að
hann sé smám saman að venjast af því
að skrúfa yfirleitt frá útvarpi. Sjálfsagt
myndu einhverjir segja, að minnkandi
útvarpshlustun bama og unglinga sé
bein og óhjákvæmileg afleiðing þess að
þeim býðst orðið svo margt cinnað til
dægradvalar. Það er án efa rétt - að
vissu marki. En hluti skýringcuinnar er
væntanlega líka það efni sem þeim er
boðið upp á og meðferð þess. Sé sú
ályktun rétt að börn og unglingar hlusti
minna á útvarp en fyrr, hljóta menn enn-
fremur að leiða hugann að því hvemig
verði með útvarpshlustun jieirra, j>egar
þau vaxa úr grasi.
Mér finnst sem alltof lítil áhersla sé
lögð á efni ætlað bömum og unglingum í
útvarpi. Þar þýðir ekki að ætla að tína til
einhverjar tölur um hlutfall slíks efnis í
útvarpinu, því að það em gæðin sem
máli skipta.
En sé í útvarpinu efni sem böm og
unglinga fýsir að hlýða á, held ég að ekki
muni standa á þeim við að hlusta, þrátt
fyrir allt annað sem þau eiga á völ.
Að undanförnu hefur líka verið á dag-
skrá útvarpsins bamaefni, sem unnið er
eins og sæmir í þessum miðli, það er að
segja það er „pródúserað" eins og það
heitir á útvarpsmáli. Þama á ég við þætt-
ina Við stokkinn - brúðubíllinn í Reykja-
vík skemmtir börnunum. Ég hlustaði um
daginn á einn þessarar þátta - meira af
tilviljun en ásetningi - og það vildi enn-
fremur svo til að við hlið mér sat þriggja
ára ungfrú. Og hún sperrtí heldur betur
eyrun sú stutta, þegar hún heyrði í
brúðubílsfólkinu!
En í dagskrárkynningunni mátti líka
heyra að þessir þættir em endurútvarp
frá í fyrra. Nú er ég ekki að lasta endur-
útvarp á efni, sem er þess vert. En kann-
ski segir það einhverja sögu um frammi-
stöðu útvarpsins varðandi bamaefni og
þá áherslu sem á það er lögð - eða öilu
heldur ekki lögð - að þurft hafi að grípa
til barnaefnis frá í fyrra í stað þess að
eiga nýtt efni, jafngott, handa jiessum
hópi hlustenda.
Utvarpið hefur því miður misst af
strætisvagninum, jægar bamaefni og
unglinga er annars vegar - en alltaf má
nú reyna að hlaupa vagninn uppi.
Hvemig væri til dæmis að fá hóp ungra
og efnilegra rithöfunda, hljómlistar-
manna og Ieikara tíl að slá í púkk og búa
til efni fyrir þessa hlustendur sérstak-
lega? Slíka hópa mætti ráða til ákveð-
inna verkefna eða tiltekinn tíma í senn
og fá síðan nýja í tuskið.
26 HELGARPÓSTURINN