Helgarpósturinn - 13.06.1985, Side 2
FRÉTTAPÓSTUR
I Fálkadráp í tilgangsleysi |
Fjórir Húsvíkingar hafa orðið uppvísir að því að skjóta
fálka sér til skemmtunar. Fundust fjögur hræ í frysti- I
geymslum þar nyrðra og tvö hrae hafa þeir brennt. Fálkarnir 1
voru skotnir á undanförnum þremur árum en ekki er upp- I
víst í hvaða tilgangi. Hræin sem geymd voru eru of gömul til I
þess að þau megi stoppa upp, en fyrir uppstoppaða fálka .
fæst hátt verð erlendis. ]
Flótti úr fóstrustétt
Fóstrur og foreldrar barna á dagheimilum hafa lýst yfir 1
neyðarástandi á dagheimilum vegna launakjara fóstra. Illa i
gengur að manna heimilin, fóstrur staldra stutt við og helm- I
ingi minni aðsókn er nú að Fósturskólanum en verið hefur ■
undanfarin ár. Að sögn fóstra er það mjög bagalegt ástand |
þegar börnin ná ekki að kynnast uþpalendum sínum vegna
stuttrar viðveru fóstra á hverjum stað. Hafa fóstrur hótað I
róttækum aðgerðum verði launakjör þeirra ekki bætt. *
Sjómannadeilan strand og uppsagnir í frystihúsum |
Á fimmta hundrað fiskverkunarfólks hafa misst atvinnu
sína í Reykjavík vegna hráefnisskorts vinnslustöðva, sem er I
svo aftur rakinn til verkfalls undirmanna á fiskiskipum. I
Enginn sáttafundur hefur verið í deilunni þessa viku en ,
verkfallið hefur nú staðið í fjórar vikur án þess að nokkuð |
hafi þokast í samkomulagsátt.
Mannekla á sjúkrahúsum I
Sjúkrahúsin standa nú frammi fyrir miklum erfiðleikum .
vegna manneklu, en illa gengur að fá faglært fólk í sumaraf- |
leysingar. Er fyrirsjáanlegt að mun fleiri deildir sjúkrahúsa
verða lokaðar á sumri komandi en verið hefur undanfarin I
sumur. Forsvarsmenn ríkisspítalanna segja, að jafnvel þótt 1
fólk fengist, væri ekki til fé til að ráða það. Mestur hörgull i
er á hjúkrunarfræðingum og að einhverju leyti rakið til I
bágra kjara. .
Bjórinn svæfður hjá þjóðinni 1
Líkur eru nú taldar á að bjórmálið tefjist fram yfir þing- i
lok, eftir að efri deild Alþingis samþykkti að málinu skyldi I
skotið til þjóðarinnar með atkvæðagreiðslu. Neðri deild
hafði áður fellt tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu og fer mál- |
ið nú aftur fyrir neðri deild þar sem allsherjarnefnd mun
taka það fyrir að nýju.
BÚH selt Hvaleyri hf.
Gengið hefur verið frá sölu Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar I
en það er nýstofnað hlutafélag, Hvaleyri, sem kaupir fyrir-
tækið. Kaupverðið er 280 milljónir en Hafnarfjarðarbær I
tekur á sig um 100 milljónir af skuldum fyrirtækisins. Full- '
trúar Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins voru sölunni
andvígir en aðrir bæjarfulltrúar samþykkir. Hvaleyri hf., |
sem er í eigu Samherja á Akureyri, fjögurra eigenda Hag-
virkis og Jóns Friðjónssonar, mun hefja veiðar og vinnslu I
hið fyrsta.
Mannréttindabrot á íslandi?
Pólverja sem hingað kom í heimsókn til tengdafólks sem
býr á íslandi, var vísað úr landi við komuna til Keflavíkur-
flugvallar í liðinni viku. Aðstandendum hans hér heima
hafði þá ekki tekist að fá fyrir manninn vegabréfsáritun-né I
heldur að ná í hann til þess að tilkynna honum synjunina. '
Útlendingaeftirlitið telur að maðurinn hafi verið kominn ■
hingað til þess að setjast hér að og telur það næga ástæðu til I
þess að vísa honum úr landi. Aðstandendur hans segja það
aftur á móti mannréttindabrot að komið sé í veg fyrir fjöl- |
skylduheimsóknir.
Prjú íslandsmet í sundi
Ragnheiður Runólfsdóttir frá Akranesi setti þrjú íslands-
met í sundi í landskeppni íslendinga og íra í Belfast síðast- I
liðna helgi. Hún synti 100 m baksund á 1:07,81 mín, 200 m •
fjórsund á 2:26, 43 mín og 400 m fjórsund á 5:12,67 mín. ■
Annars voru það írar sem sigruðu í þessari keppni með 199 I
stigum gegn 123.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
Spánverjar sigruðu íslendinga á Laugardalsvellinum í I
gærkvöld með 2:1. íslendingar skoruðu sitt mark í fyrri *
hálfleik (Teitur Þórðarson fyrirliði), en í síðari hálfleik
gerðu Spánverjar út um leikinn. Spænska liðið af fróðum ]
talið betri aðilinn.
• Leiðsögumenn sömdu um síðustu helgi þannig að ekki
kom til boðaðs verkfalls.
• Reykjavíkurborg keypti í vikunni Ölfusvatn í Grafningi *
fyrir 60 milljónir króna, sem fulltrúar minnihlutaflokka ■
telja alltof hátt verð. I
• Ævar Kjartansson útvarpsmaður hefur ákveðið að taka ,
sér ársleyfi frá störfum, og er ákvörðunin talin standa í sam- |
bandi við afskipti útvarpsráðs af störfum Ævars.
• Sólheimamaðurinn Reynir Pétur kemur til Akureyrar um I
helgina en hann er á göngu um landið til söfnunar fjár í '
íþróttabyggingu að Sólheimum. ,
• Ákveðið hefur verið að hámarkshraði í Þingholtum og á I
Skólavörðuholti verði 30 km á klukkustund eins og í Vestur-
bænum.
•Kínverjar hafa ákveðið að leggja aukna áherslu á bjór-
framleiðslu, m.a. til þess að koma í veg fyrir að aukin áfeng- |
isneysla beinist að sterkum drykkjum.
• Aids mótefni fannst nýlega í tveimur íslendingum, karli |
og konu.
•Búist er við að þingslit frestist fram til föstudagsins 21.
júní en þingmenn hættu störfum snemma í gær, miðviku- '
dag, til þess að fylgjast með landsleik Spánverja og íslend- i
inga. I
• Aðalfundur SÍS er í dag. -
• Ungur Þjóðverji lést af slysförum í Hvalfirði á þriðjudag. |
Andlát:
Jónas Guðmundsson stýrimaður, rithöfundur og listmál-
ari er látinn, 54 ára að aldri. i
2 HELGARPÓSTURINN
-EI»J Vd'ÖU-U.....
Þjóðhátíðarnefnd hefur pantað
gott veður hjá Veðurstofunni.
Olafur Jónsson, sem unnið hefur
dag og nótt upp á síðkastið við
að skipuleggja fjölbreytilegan
sautjánda, lagði allt að því
höfuðið að veði: „Það verður
sól,“ sagði hann. „Það er áreið-
anlegt. Og léttur andvari til að
kæla vangann því að hitinn
verður 18 stig.“ Við treystum
þessu, Ólafur! En skiljum
kannski ekki alveg hvers vegna
æskulýðstónleikarnir sem
haldnir verða um kvöldið skuli
þá vera hafðir inni í Laugardals-
höll. Hvers vegna ekki úti í
Viðey?
Hvað um það — veðrið verður
gott. Og í brakandi þerri og létt-
um blæ verður margt að skoða í
borginni, aðallega í miðbænum.
Ungir sem aldnir finna sitthvað
við sitt hæfi: Fornbílaklúbburinn
viðrar gömlu beyglurnar, tamn-
ingamenn sýna reiðkúnstir sínar,
siglingamenn damla á Tjörninni,
skátar drífa upp tjöldin sín eins
og hverjir aðrir indjánar í Hljóm-
skálagarðinum, Lúðrasveitin
leikur þar líka og menn sýna
glímu og golf (hvort er þjóðar-
íþróttin?). Randver Þorláksson,
Sigurður Sigurjónsson og Örn
Árnason sýna leikþátt ætlaðan
börnum og svo koma Bjössi
bolla og Jón Páll vinur hans í
heimsókn, Sultuleikhúsið
bregður á leik og Tóti trúður.
Allt verður þetta rækilega aug-
lýst á áberandi hátt, plakötin
komin á flug upp um alla veggi
og þeir í Lúðrasveitinni farnir að
æfa lögin og Sláturfélagið byrjað
að troða í pylsurnar! _qq
íslendingar slá ekki slöku við
Hafa nú malbikað
Þ.
vegna framrúðubrota — sem
aftur stafa af grjótkasti af malar-
vegum — 20 milljónir, sagði
Sveinn Torfi í fyrra eftir
að er sama hvert litið er
— á öllum sviðum erum við Is-
lendingar á framfarabraut! Fyrir
nokkrum árum vorum við
neðstir á listanum yfir þær
þjóðir sem hafa komið bærilegu
skikki á vegamál sín. Nú erum
við ekki lengur neðstir. Við höf-
um malbikað okkur fram úr
Kamerún og Búrundi og víst
Togó líka. Búrundi situr á botn-
inum núna — eins gott að vera
ekki að flækjast þangað á bíl,
þannig ferðalag gæti vakið upp
erfiðar minningar. En blaðam.
fór að hugsa um malbik og vegi
hér um daginn á ferð um
landsbyggðina. Myndin skýrir
tilurð þeirra vegaþanka — hún
var tekin laugardaginn 8. júní
a.d. 1985.
Reykjavíkurmalbikið
Það er nokkuð um liðið síðan
staðið var að mesta framtaki til
þessaí gatnagerð á íslandi. Það
var vitanlega malbikun allra
gatna í Reykjavík. Það var
framkvæmd sem sett var á tíu
ára áætlun — að sovéskri
fyrirmynd — en þótt ótrúlegt
megi virðast á voru landi, var
henni lokið á níu árum og það
án þess að íbúar Reykjavíkur
tækju eftir því að nýir skattar
hefðu verið lagðir á. Þeir hjá FÍB
sögðu að Reykjavíkurævintýrið
væri hægt að endurtaka fyrir allt
landið ef rétt væri að staðið og
bentu á, að hér á landi væru
bifreiðaeigendur látnir greiða
eitt hæsta verð í heimi fyrir allt
sem snerti bíla og bílaútgerð:
bensín, gúmmí, varahluti o.s.frv.
Vissuð þið að árlegur kostnaður
bifreiðaeigenda vegna aurhlífa
(oftast kallað drullusokkar) er
kringum 28 milljónir kr? (!) Það
er á að giska andvirði 5—6
einbýlishúsa, eða svo segir
Sveinn Torfi Sveinsson
verkfræðingur í blaðinu Ökuþór,
tölublaði frá í fyrra (þannig að
milljónirnar eru sjálfsagt enn
fleiri). Og hugsið ykkur kostnað
Koppalogn og sól
ó sautjóndanum