Helgarpósturinn - 13.06.1985, Blaðsíða 3
sig framúr Búrundi
nákvæma útreikninga — eða sjö reyna ad halda mig í bænum malbika landið.
einbýlishús í viðbót. Ég ætla að þangað til þeir verða búnir að -GG
í
í
Keppandi HP, Sigmundur Ernir Rúnarsson, missti marks strax í fyrstu þrautinni,
eins og sést á myndinni, en hresstist svo allur og endaði sem bronsverðlaunahafi.
Takið eftir þaulæfðri jafnvægissveigju Sigmundar, en það er mat manna að hún hafi
ráðið úrslitum um viðunandi árangur kappans I keppninni...
Ökuleiknin '85:
HP fékk
bronsið
Fyrsta keppni sumarsins í öku-
leikni sem Bindindisfélag öku-
manna stendur fyrir, var haldin í
gærkvöldi. Það voru fulltrúar fjöl-
miðlanna sem riðu á vaðið og var
bæði keppt á reiðhjólum og bílum.
í bifreiðakeppninni bar Ari Ólafur
Arnórsson frá NT sigur úr býtum, en
aðeins eitt refsistig skildi á milli
hans og Kristjáns Ara Einarssonar á
DV sem lenti í öðru sæti. Morgun-
blaðsmaðurinn Valur B. Jónatansson
reyndist þriðji besti fjölmiðlaekill-
inn. Arangur Helgarpóstsins var
ekki sem skyldi í þessari grein; Jim
okkar Smart hafnaði í níunda sæti af
ellefu keppendum. (Hér verður vita-
skuld að hafa í huga að vinstri um-
ferð er enn við lýði í heimalandi
hans og hefur það efalítið haft sín
áhrif á frammistöðu þessa annars
töluvert trausta ökumanns).
í reiðhjólakeppninni sigraði Rás 2
með Einar Gunnar Einarsson á
hnakknum, annar varð Valur B.
Jónatansson frá Mogga (fjölhæfur
maður!) og bronsverðlaunahafinn
var einhver geðþekkasti maður
keppninnar, Sigmundur Ernir Rún-
arsson af HR Sigmundur er maður
vanur hjólum, hefur meðal annars
hjólað á Ítalíu og í Pýreneafjöllum,
en jafnframt er rétt að taka fram að
hann steig kvenhjól í þessari
keppni, einn karlmanna, og vildi
þannig kveðja kvennaáratuginn
langa.
Áttu erfitt með að
þola niðurstöður
skoðanakannana?
Svavar Gestsson alþingismaður
„Ég ætla ekki að hafa niðurstöður kosninganna eins og nið-
urstöður skoðanakannana eru um þessar mundir. Það er ætlun
okkar í Alþýðubandalaginu að gera það sem við getum til þess
að breyta því. Og við teljum að það séu fyrir hendi öll skilyrði
til að breyta því verulega."
— Það stendur þá ekki til að láta Jón Hannibalsson
og kratana hirða af ykkur fylgið?
„Alþýðubandalagið verður næststærsti flokkurinn eftir
næstu kosningar. Við förum því miður ekki yfir íhaldið, en eftir
næstu alþingiskosningar verðum við næststærstir."
— Þú sagðir í viðtali að skoðanakannanir væru skoð-
anamyndandi — er þá ekki auðveldur leikur fyrir and-
stæðinga Alþýðubandalagsins að standa að hverri
skoðanakönnuninni á fætur annarri þangað til þið eruð
horfnir út af kortinu?
/rJú — það er akkúrat það sem að þeir hafa verið að gera að
undanförnu. Þeir hafa hamrað á því — með sífelldum skoðana-
könnunum — og verið að ná sér niðri á Alþýðubandalaginu. Út
af fyrir sig þykir okkur vænt um að fá þetta heilbrigðisvottorð
sem birtist í árásum á mig og Alþýðubandalagið upp á síðkast-
ið. Þetta hefur vitanlega áhrif — og það er athyglisvert sem
Baldur Kristjánsson benti á í NT um daginn, að DV hefði enga
skoðanakönnun eftir verkföllin í vetur þegar íhaldið var sem
lengst niðri."
— En hefurðu einhverja skýringu á því hvers vegna þú
og Alþýðubandalagið náið ekki til fólksins?
„Ég held að á því séu mjög margar skýringar. Ein skýringin
er auðvitað erfiðleikar verkalýðshreyfingarinnar á að ná saman
í heillegri baráttu fyrir almennilegum lífskjörum. Alþýðubanda-
lagið hefur staðið við hlið verkalýðshreyfingarinnar á undan-
förnum árum og menn draga oft jafnaðarmerki á milli okkar og
verkalýðshreyfingarinnar. Og þegar verkalýðshreyfingin hefur
ekki byr, þá er hætt við að það komi fram í minnkuðu
fylgi Alþýðubandalagsins. Með þessu er ég ekki að kenna
verkalýðshreyfingunni um eitt né neitt, heldur aðeins að benda
á skýringu. Svo er líka það, að við núverandi aðstæður eru
frjálshyggjuöflin í sókn, eða hafa verið í talsverðri sókn. Það
kemur meðal annars fram í þeim rosalegu tölum sem borgar-
stjórnaríhaldið í Reykjavík fær í þessum skoðanakönnunum.
Og menn mega þá velta fyrir sér eftirfarandi spurningu: Vilja
menn kjósa nauðungaruppboðin áfram? Menn eru að kjósa
byggðaeyðinguna, kjósa misréttið, kjósa ráðgjafabitlingana.
Vilja menn að núverandi ástand ríki áfram? Er mikill hluti þjóð-
arinnar þeirrar skoðunar að þetta eigi að vera svona?
Við í Alþýðubandalaginu erum á móti þessu. Og við höldum
áfram að berjast á móti þessu svo lengi sem nokkur kostur er."
— En bendir ekki útkoman úr skoðanakönnunum til
þess að fólk viti bara ekki um það, að þið séuð á móti
þessu sem þú varst að nefna?
„Það er mikið til í því. Og það hlýtur að vera okkur talsvert
umhugsunarefni. Útkoman er vissulega vísbending um að
okkur hafi ekki tekist að brjótast í gegn. Það er vafalítið okkur
að kenna. Þessar tölur eru auðvitað einhvers konar áminning
til okkar um að við þurfum að standa okkur miklu, miklu betur.
Við tökum þessum tölum sem áeggjan um að sækja fram."
— En ertu fýldur f garð þjóðarinnar eftir síðustu út-
komu úr skoðanakönnun?
„Nei, ég held nú fyrir það fyrsta að ég fari aldrei í fýlu. Stjórn-
málamenn eru auðvitað engir stjórnmálamenn nema þeir hafi
bein í nefinu til að taka bæði með- og mótlæti. Þeir sem bara
duga þegar byr gefst, eru gagnslitlir menn í stjórnmálaflokki,
hvað svo sem sá flokkur heitir."
Svavar Gestsson, form. Alþýðubandalagsins.sagði eftir að niðurstaða
síðustu skoðanakannana DV lá fyrir og Alþbl. reyndist þar vera með
tæpt 11 % fylgi, að rógsherferðin gegn Alþbl. hefði borið árangur og að
síendurteknar kannanir væru skoðanamyndandi.
HELGARPÖSTURINN 3