Helgarpósturinn - 13.06.1985, Page 8
kvæmt lögum eða ekki? Þessi
maður væri líklegur til að henda
peningum í næsta húseiganda, og
hneigja sig síðan fyrir honum.
Hann er einfaldlega að reyna að
komast í húsaskjól."
— En vœri ekki rétt ad þid berö-
ust fyrir því að húsaleigulögum
vœri framfylgt?
„Við ættum að berjast fyrir því
að benda fólki á hvernig húsaleiga
gengur fyrir sig í raun — ekki sem
hugmyndafræði furðufugla úti í
bæ.“
— Þú vilt sem sagt gefa þetta f-
rjálst?
„Auðvitað á þetta að vera frjálst.
Það gengur ekkert kerfi upp ann-
ars. Leigulögin eru versti ógreiði
sem leigjendum hefur verið gerð-
ur.“
Sigurður segir aftur á móti:
„Þeir kalla það félagsgjald sem
þeir taka af fólki; kalla þetta félag
án þess að okkur sé kunnugt um
að um nokkra félagsstarfsemi sé
að ræða. Okkar mat er að það sé
verið að fara í kringum þessi fá-
tæklegu lög sem þó eru til um
leigjendur. Hins vegar eiga þeir að
sjá um að þessum lögum sé fram-
fyigt"
— Hvað um starfsemi félagsins,
Sumarliði? Hversu virk er hún?
„Það hefur ekki verið haldinn
nema einn aðalfundur. Síðan er
liðið eitt ár. Ég er ákveðinn í að
halda næsta aðalfund þegar ein-
hver sýnir áhuga á starfsemi fé-
lagsins og húsnæðismálum.
Nefndu mér einn mann sem hefur
áhuga. Mig vantar bara einn mann
sem sýnir áhuga á þessu."
„Eins og hver önnur
þjónusta"
— Það má spyrja; er ekki verið
að reka þetta í von um hagriað?
„Það er ekki hagnaður af þessu.
Ef einhver vill koma hingað og
taka við þessu er það guðvelkom-
ið. Þetta byrjaði sem hugsjón hjá
mér. Ég hef alltaf haft áhuga á hús-
næðismálum. En mér datt ekki í
hug að svona fáir hefðu raunveru-
lega þann áhuga, nema að þeir
séu Alþýðubandalagsmenn."
— Hvernig rökstyður þú gjaldið
sem tekið er af félagsmönnum?
„Það er félagsgjald. Það er ekki
óheimilt að hafa félagsskap, og til
þess að hægt sé að reka leigumiðl-
un verður að hafa eitthvað upp í
kostnað. Flest félög hafa eingöngu
tekjur af félagsgjöldum, það gildir
um okkur."
-— Nú takið þið bœði gjald af
leigutökum og leigusölum?
„Já, þetta eru bara félagsmenn.
Síðan er þessi þjónusta aðeins
veitt innan félagsins. Ég býst við
að sú þjónusta sem við veitum hér,
t.d. í sambandi við samninga, yrði
fólki miklu dýrari ef það þyrfti að
leita til lögfræðinga."
— En til hvers er þetta félag? Af
hverju ekki einfaldlega leigumiðl-
un?
„Ef það væri ekki félagsskapur í
kringum þetta, væri ekki hægt að
reka leigumiðlun, það hefur verið
reynt. Þá er það rekið eins og fast-
eignasala, en þetta kemur öðru
vísi út, því við veitum engum þjón-
ustu nema félagsmönnum."
— En þeir sem þurfa íbúðir
hljóta að gerast félagsmenn þar
sem þið veitið enga þjónustu ella?
„Ja, veistu það, fólk kemur ekki
hingað fyrr en það hefur legið í
auglýsingum, er búið að auglýsa
sjálft í fleiri mánuði og ekkert hef-
ur gengið. Þá kemur það hing-
að. . .“
— Þá er fólk komið í nauð, og á
ekki annarra kosta völ en að ger-
ast félagsmenn?
„Já, já. Það prófar allt mögu-
legt.“
— Eruð þið þá ekki þar með að
þvinga fólk? Eruð þið ekki að not-
fœra ykkur neyðarástand?
„Nei, nei. Það geta allir sett upp
leigumiðlun, og það hefur verið
gert. Það hafa nokkrar fasteigna-
sölur sett upp leigumiðlanir og
dæmið hefur ekki gengið upp. Það
er vegna þess að ástandið er svo
erfitt. Það er svo vont að fá íbúðir.
Hins vegar er auðvelt að fá her-
bergi. En við höfum, liggur mér
við að segja, næstum platað hús-
eigendur til að láta okkur fá hús-
næði handa leigjendum. Það er
vont að rökstyðja það við húseig-
anda að það borgi sig að leigja út
húsnæði, það er mjög erfitt.“
— Effélagsmaður fær ekki íbúð,
á hann þá von á endurgreiðslu ár-
gjalds?
„Nei, það er ekkert loforð gefið
fyrir því að viðkomandi fái íbúð.
Það er sami háttur á þessu og ef þú
settir auglýsingu í dagblað sem
bæri ekki árangur. Og hvað þá?“
— Þannig að þetta eru ekki
hagsmunasamtök leigjenda, ekki
húseigenda og ekki hugsjónastarf-
semi. Hvað stendur þá eftir? Hvað
er þetta?
„Þetta á bara að vera þjónustu-
miðstöð, eins og hver önnur þjón-
usta. Það er alla vega reynt að hafa
þetta þannig.“
— Er nokkuð búið að boða fund
hjá ykkur á nœstunni?
„Það er kannski hægt að skella
á fundi til að þú getir verið með.
Hvað sem því líður, segir samt í
samþykktum Húsaleigufélagsins:
„Félagsfundi skal halda svo oft
sem þurfa þykir, þó ekki sjaldnar
en tvisvar á ári. Aðalfund skal
halda í apríl ár hvert,.. “
Hvort sem fundur verður hald-
inn í Húsaleigufélagi Reykjavíkur
og nágrennis á næstunni, má bú-
ast við að starfsemi þess verði
rædd á fundi Leigjendasamtak-
anna á næstunni, að því er við
fregnuðum hjá fyrrverandi for-
manni þeirra, Jóni frá Pálmholti.
Og þegar HP bar málið í heild
sinni undir William Th. Möller,
varð honum að orði: „Þetta er allt
önnur lýsing á starfseminni en
kom fram í fyrra, og hafi hún
breyst frá því þá, kann það að gefa
tilefni til athugunar af hálfu lög-
reglu.“
Rafbúð Sambandsins tryggir örugga þjónustu
S ZEROWATT
ZEROWATT TILBOÐ
Þurrkari
Þvottavél
iTvort sem þú ert með erfitt heimili eða ekki,
er óþarfi að íþyngja því með erfiðum þvottum.
Zerowatt þvottavélar og þurrkarar hafa verið sann-
kölluð hjálparhella á íslenskum heimilum um
áraraðir.
Zerowatt hefúr ávallt verið í fremstu röð með
tækninýjungar og hönnun og jafnhliða lagt áherslu
á að framleiða sterkar og öruggar vélar sem þyldu
óblíða meðhöndlun. Hin örugga viðgerða- og
varahlutaþjónusta Rafbúðar Sambandsins er ávallt
trygg í bakhöndinni.
Zerowatt er örugg, framtíðarfjárfesting í tækni og
þægindum.
Við spjöllum saman um
útborgun og greiðsluskilmála
og komumst örugglega að samkomulagi.
&SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910 ~812 66
8 HELGARPÓSTURINN