Helgarpósturinn - 13.06.1985, Blaðsíða 10
BRÉF TIL RITSTJÖRNAR
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elín Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásler
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Skrípaleikur
í leigumálum
Á hverju hausti flykkjast suð-
ur til Reykjavíkur þúsundir
námsmanna, sem flestir hverjir
eigaíenginhúsaðvenda. Þetta
er einatt félítið fólk og fyrir því
liggur að reyna með öllum til-
tækum ráðum, innan klíku sem
utan, að komast með föggur
sínar í öruggt skjól fyrir vetur-
inn.
Við þetta bætast aðrar þús-
undir, sem á ári hverju vantar
ódýrt húsnæði til leigu. Yfirleitt
er það ungt fólk sem í mörgum
tilvikum er að safna sér fyrir
húsabyggingum eða húsa-
kaupum. Og það er eitt félag í
Reykjavík sem stendur þessu
fólki til boða. það getur gerst
félagar í því að greiddum sautj-
ánhundruð og fimmtíu krónum
og vonast eftir því að fá húsa-
skjól fljótlega.
Vonast, þetta er nefnilega
ekkert nema von. Tryggingin er
engin. Það kemur glögglega í
Ijós við lestur greinar HP í
dag, sem fjallar um þetta til-
tekna fyrirtæki; Húsaleigufélag
Reykjavíkur og nágrennis.
Nú kynnu einhverjir að halda
að með þessu félagi væri þetur
búið að aumum leigjendum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Fast
væri haldið utan um lagaleg
réttindi leigjenda og séð til
þess að hagur þeirra væri í öllu
tryggður á sem mestan og-
bestan hátt.
En staðreyndin er sú, að svo
er ekki. Menn skrá sig einfald-
lega í félagið upp á von og
óvon. Rætist ekkert úr ástand-
inu, verður útlögðum pening-
um aldrei skilað. Og víst er að
sá sem á minnst í fórum sínum,
á jafnframt minnsta mögu-
leika. Þarna, eins og annars
staðar, er sá í sterkastri aðstöðu
sem mestu fjárráðin hefur;
frumskógarlögmálið blívur í
orðsins fyllstu merkingu.
Forráðamenn félagsins telja
ekki einu sinni ástæðu til að
fara að lögum. I skjóli þess eiga
sér stað samningar sem eru
brot á lögum í þessu landi.
Samt sem áður hefur félaginu,
eða öllu heldur leigumiðlun á
vegum þess, verið veitt löggilt
leyfi til starfans, — í atvinnu-
skyni.
Hér er nánast skrípaleikur á
ferð, eins og umfjöllun HP í dag
sýnir og sannar. Það hlýtur að
vera lágmarkskrafa að farið sé
að lögum sem sett hafa verið til
verndar þeim sem minna mega
sín í húsnæðismálum. Þá skipt-
ir engu hvort þau lög eru góð
eða vond. Það er skoðun Helg-
arpóstsins.
Athugasemd frá
Hafskipi hf.:
„Eingöngu
birt í hefndar-
skyni4<
Á aðalfundi Hafskips hf. s.l. föstu-
dag var eftirfarandi dreift til fundar-
manna og fréttamanna. Þar sem
þessar athugasemdir eru gerðar
vegna skrifa Helgarpóstsins þykir
okkur hlýða að birta þær óstyttar:
„I Helgarpóstinum 6. júní s.l. birt-
ast skrif um Hafskip hf., þar sem
ráðist er að félaginu með óvenju
rætnum hætti. Heimildarmenn eru
tveir fyrrverandi starfsmenn félags-
ins og eru skrifin látin birtast í blað-
inu daginn fyrir aðalfund þess.
Ávallt orkar tvímælis, hvort svara
eigi skrifum af þessu tagi, en þetta
er eingöngu birt í hefndarskyni og
til að grafa undan trausti félagsins.
En þar sem Hafskip hf. er fyrir-
tæki, sem starfar í harðri samkeppni
á innlendum sem erlendum vett-
vangi og veitir hundruðum manna
atvinnu, er óhjákvæmilegt að gera
athugasemdir við rógskrifin.
1. Til marks um það, hvernig grein-
arhöfundur veður villur vegar,
má nefna, að í skrifum hans er
látið að því liggja að tap félagsins
sé í námunda við 200 milljónir
króna árið 1984. En eins og fram
kemur í ársreikningi félagsins,
nemur tapið 95 milljónum
króna.
2. í skrifum HP veltir greinarhöf-
undur skuldastöðu fyrirtækisins
fyrir sér og staðhæfir að það eigi
ekki fyrir skuldum. Skuldastaða
félagsins er ekkert launungamál
og hún kemur fram í ársreikn-
ingi þess, sem lagður er fram á
aðalfundi 7. júni. Bókfærð eigin-
fjárstaða er neikvæð um 105
milljónir króna í árslok 1984. En
í þessu sambandi ber að hafa í
huga eftirfarandi:
— Nýtt hlutafé að fjárhæð
80 milljónir króna, sem boð-
ið var út hinn 9. febrúar
s.l., er að fullu selt.
— Bókfært verð varanlegra
rekstrarfjármuna er sam-
kvæmt varfærnismati. Þann-
ig má nefna að í ársreikn-
ingi 1984 kemur fram, að
samkvæmt mati erlends
skipasölumiðlara er áætlað
markaðsverð á skipum félags-
ins 37,5 milljónum hærra en
bókfært verð þeirra.
— Rétt er að benda á, að afkoma
félagsins fyrstu mánuði ársins
1985 hefur verið jákvæð.
3. Við mat á stöðu fyrirtækisins
birtist hrapallegur misskilningur
greinarhöfundar m.a. í því, að
hann virðist telja að skipaeign
félagsins sé færð í efnahags-
reikningi þess samkvæmt mati
tiitekins erlends skipasölumiðl-
ara. Hið rétta er, að bókfært verð
varanlegra rekstrarfjármuna í
efnahagsreikningi, þar á meðal
skipa, er að sjálfsögðu miðað við
framreikning upphaflegs stofn-
verðs að frádregnum föstum ár-
legum afskriftum. Hins vegar er
í skýringum með ársreikningi
getið um áætlað markaðsverð
skipanna til frekari upplýsinga.
Það skal skýrt fram .tekið, að
matsverð það á skipum félagsins
í árslok 1984, sem vitnað er til í
lið 2 hér að framan, er ekki kom-
ið frá fyrirtækinu Ragnar Johan-
sen A/S, en greinarhöfundur
reynir að gera þá aðila tortryggi-
lega.
4. Látið er að því liggja í umrædd-
um skrifum, að lausafjárstaða
Hafskips sé mjög slæm. Þessu til
sönnunar er talað um að starfs-
menn hafi fengið innistæðulaus-
ar ávísanir í stað launa sinna um
síðustu mánaðamót.
Hið sanna er, að einn hinna 385
starfsmanna félagsins fékk slíka
ávísun vegna mistaka um síð-
ustu mánaðamót og var það
leiðrétt samstundis.
5. Greinarhöfundur fullyrðir að
skip félagsins hafi verið stöðvuð
vegna vanskilaskulda. Þetta er
rangt.
6. Fullyrt er að félagið hafi gerst
brotlegt við bandarísk tolialög
og flutt inn gáma til Bandaríkj-
anna án tilskilinna leyfa.
Þetta er rangt.
Öll tiltekin leyfi eru og hafa verið
til staðar, m.a. í gegnum um-
boðsaðila félagsins, Capes
Shipping í Norfolk.
7. Reynt er að gera félagið tor-
tryggilegt með tali um „sér-
stæða“ viðskiptahætti og er í því
sambandi fjallað um vátrygging-
ar gámavagna.
Hér er um að ræða hjólastell
undir gáma, sem dregin eru af
sérstökum dráttarvögnum. Rétt
er það, að hjólastellin eru ekki
vátryggð ein og sér.
Dráttarvagnarnir, gámarnir og
innihald þeirra eru hins vegar að
sjálfsögðu að fullu vátryggð.
8. Þá er fullyrt, að mikil óánægja
ríki á skrifstofum félagsins í New
. York og í Reykjavík.
HELGARPÚSTURINN
Lækkun í hafi
Ég ætla ekki aö hafa nein afskip-
ti af því sem gerist hjá Hafskip
en mér sýnist það sé
alveg satt hjá HR að sannara nafn væri
Kafskip
Niðri.
10 HELGARPÓSTURINN