Helgarpósturinn - 13.06.1985, Síða 11
ósturinn gerir úttekt á stöðu Hafsk
0 HjlFSKl
^SÖKKV
TaplS 100 mlll|6nlr — •Wkl 60
Sérfrmðlngar .cmmáloumað
N-Atlant.haf.lelSln .6 6ar8b»r
R»r Hafiklp Hfróður I ofaga átl
Haf.kip skuldar yflr 600 mlll|6r
krána erlendl.
Erfitt er að sanna eða afsanna
staðhæfingu sem þessa.
Ekki þykir það þó benda til
óánægju eða vantrúar starfs-
manna á félaginu og framtíð
þess, að fjöldi starfsmanna sýndi
hlutafjárútboði félagsins mikinn
áhuga og tók virkan þátt í því
með hlutabrefakaupum.
9. Langt er seilst í viðleitni greinar-
höfundar við að sverta félagið.
Þannig er þess getið, að tveir af
fjórtán stjórnarmönnum Haf-
skips verði ekki á landinu á aðal-
fundinum og sagt að það sé
vegná óánægju og ótta um mál-
efni félagsins.
Allir stjórnarmenn Hafskips eru
úr viðskiptalífinu og þurfa því,
eðli starfa sinna vegna, að fara á
milli landa í viðskiptaerindum.
Þá er einnig staðhæft, að tveir
stjórnarmenn hyggist ekki gefa
kost á sér til áframhaldandi
stjórnarsetu hjá Hafskip. Hið
rétta er, að aðeins einn stjórnar-
manna hyggst ekki gefa kost á
sér til endurkjörs. Tengist
ákvörðun hans um það í engu
stöðu félagsins og er óhætt að
fullyrða, að mikill einhugur ríki
meðal stjórnarmanna.
10. I lok umræddra skrifa er lagt of-
urkapp á að gera Atlantshafs-
siglingar félagsins sem allra tor-
tryggilegastar. I þessu sambandi
er rétt að rifja upp eftirfarandi
staðreyndir:
— Atlantshafssiglingar fé-
lagsins hafa nú staðið yfir í
tæpa 8 mánuði.
— Siglingar þessar hafa frá upp-
hafi skilað hagnaði.
— Umsvif félagsins í þessari
starfsemi aukast stöðugt.
— Allar áætlanir um afkomu
hafa staðist.
— Áætlanir félagsins um þessa
starfsemi til ársloka 1985
vekja bjartar vonir um áfram-
haldandi góða arðsemi.
Byggt hefur verið á varfærn-
ismati í áætlanagerðinni í öll-
um tilvikum.
— Með þessari nýjung í kaup-
skipaútgerð Islendinga er
Hafskip hf. að nýta sér
reynslu, þekkingu og við-
skiptasambönd, sem hafa
myndast í 27 ára starfi fé-
lagsins. Þar af hefur félagið
stundað siglingar til Ameríku
í 7 ár. Byggt er því á traust-
um grunni.
Félagið mun stefna ritstjóra Helgar-
póstsins, Halldóri Halldórssyni, og
.lim Smart, ljósmyndara, fyrir at-
vinnuróg og meiðyrði."
LAUSNÁ
SPILAÞRAUT
S Á-10-9-3
H 9-8-T-5
T 9-7-5
L 7-3
S G-8-6-5-4
H K-D-10
T D-2
L G-10-6
S-
H G-4
T G-10-8-6-4-3
L 9-8-7-5-2
Áhyggjur vesturs eru þær, að
suður eigi spaðann, því þá tapar
hann tveim slögum. En eigi norð-
ur allan spaðann, ætti að takast að
vinna spilið. Þess vegna er byrjað
á því að láta lítinn spaða á gosann.
Vestur þarf því tvær innkomur.
Samgangur milli Austurs og vest-
urs næst með hjartanu, því spað-
anum þarf að spila frá vestri.
S K-D-7-2
H Á-6-3-2
TÁ-K
L Á-K-D
Auglýsing
um starfslaun til listamanns
Reykjavíkurborg auglýsir eftlr umsóknum um starfslaun tll
listamanns í allt að 12 mánuði.
Þelr elnir listamenn koma til greina við úthlutun starfs-
launa, sem búsettir eru í Reykjavík, og að öðru jöfnu skulu
þeir ganga fyrir við úthlutun, sem ekki geta stundað list-
grein sína sem fullt starf. Það skilyrði er sett, að listamaður-
inn gegni ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfs-
launa.
Fjárhæð starfslauna fylglr mánaðarlaunum samkv. 4. þrepi
105. Ifl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og fjár-
málaráðherra f.h. ríklssjóðs. Starfslaun eru greidd án orlofs-
greiðslu eða annarra launatengdra greiðslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir starfi
sínu með grelnargerð til stjórnar Kjarvalsstaða, framlagn-
ingu; flutnlngl eða upplestrl á verki í frumflutningi eða
frumblrtingu, allt eftir nánara samkomulagi víð stjórn Kjar-
valsstaða hverju sinni og í tengslum vlð Listahátíð eða
Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakrí greiðslu
samkv. þessari grein, en listamaðurinn heldur höfundarrétti
sínum óskertum.
í umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því, sem um-
sækjandi hyggst vinna að og veittar aðrar nauðsynlegar
upplýslngar.
Umsóknum skal komid til listráöunautar Kjarvalsstada fyrir 15. júlí 1985.
lO.júní 1985
Stjórn Kjarvalsstada
FALCONCREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.
-það borgar sig
að taka nótu
Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn.
En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt
er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki.
Taktu nótu - það borgar sig
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Samkvæmt lögum og reglugerðum
um söluskatt og bókhald er öllum
sem selja vöru og þjónustu skylt
að gefa út reikninga vegna
viðskiptanna. Reikningar eiga að
vera tölusettir fyrirfram og
kaupandi á að fá eitt eintak. Sé
um söluskattsskylda vöru eða
þjónustu að ræða á það að koma
greinilega fram á reikningi.
HELGARPÓSTURINN 11