Helgarpósturinn - 13.06.1985, Qupperneq 14
0
| DV um daginn var birt grein
um ástandið í Alþýðubandalaginu.
Útgangspunktur greinarinnar eru
orðin „Alþýðubandalagið er í
kreppu". Þessi orð lét Ólafur Ragn-
ar Grímsson falla í Innlendri yfir-
sýn í HP. Raunar eru flest lykilatriði
þessarar greinar fengin úr greinum
og viðtölum, sem HP hefur birt að
undanförnu. Þó tekst höfundi snilld-
arlega að leiða hjá sér að geta heim-
ilda nema einnar, sem er grein eftir
hann sjálfan, sem birtist í DV fyrir
ári.
Við lestur greinarinnar verður
það sorglega ljóst hversu fáir og ein-
litir heimildamenn höfundar eru. Þá
vekur það athygli, að höfundur virð-
ist ekki gera sér grein fyrir mikil-
vægi þeirra Fylkingarfélaga, sem
hafa gengið til liðs við Alþýðu-
bandalagið. Þar eru á ferð harðir
trotskýistar, sem taka pólitík alvar-
legar en páfinn kaþólskuna. Þetta
fólk er mjög virkt í Alþýðubanda-
laginu og gekk í flokkinn til höfuðs
verkalýðsforystunni. Þetta fólk er í
„massívri pólitískri vinnu", veit ná-
kvæmlega hvað það er að gera og
hvað það vill. Hér skulu tilgreind
Pétur Tyrfingsson, verkamaður í
Dagsbrún með háskólapróf í félags-
fræði, Már Guðmundsson, hag-
fræðingur hjá Seðlabankanum,
Svava Guðmundsdóttir, systir Más
og kona Péturs, og Árni Sverris-
son, fyrrverandi nemandi við Há-
skóla Islands en núverandi starfs-
maður gatnagerðardeildar Reykja-
víkurborgar. Þeir sem þekkja til Al-
þýðubandalagsins telja það meiri
háttar mistök að vanmeta þetta
fólk. Svavar Gestsson formaður
hafi t.d. ekki áttað sig í tíma á áhrif-
um þessa fólks og m.a. þess vegna
sé málum komið eins og staðreyndir
segja til um...
SEiftir árslanga baráttu við
möppudýr kerfisins eygir Skálka-
skjól tvö nú sterkvínsleyfi og þar
með að komast í flokk bjórlíkhúsa
borgarinnar. Það var raunar
snemma á öld bjórmenningar í höf-
uðborginni að Félagsstofnun
stúdenta réðst í það þrekvirki að
breyta gömlum og þreyttum Stúd-
entakjallara í Skálkaskjólið með
ærnum tilkostnaði. Þá strax stóð til
að hreppa eitthvað af bjórpeningum
borgarbúa. Forsvarsmenn Félags-
stofnunar stúdenta trúðu því þá að
ekki þyrfti neitt meira en léttvíns-
leyfi, sem þeir þá höfðu, til þess að
mega seija bjórglundrið. En salan
var stöðvuð eftir fyrstu opnunar-
helgina og síðan hafa FS menn og
Ferðaskrifstofa ríkisins, sem yfirtók
þennan rekstur með matsölunni og
Hótel Garði, þjarkað í yfirvöldum
dómsmálaráðuneytis.
Loks nú í vor fæst leyfi til að selja
bjórlíki og sterkt áfengi sumarlangt
meðan hótelið starfar. Von FS
manna er svo að fá að halda þessu
leyfi áfram, hvað sem verður. í
dómsmálaráðuneytinu hafa menn
borið því við að brennivín sé nú
enginn menningarauki fyrir stúd-
enta og að Skálkaskjól sé ekki mat-
14 HELGARPÖSTURINN
sölustaður. Því hafa menn svo svar-
að með því að spyrja á móti hvort
rauðvínssull sé menningarauki og
hvort einhverju breyti að hafa bar-
inn niðri og matsölu uppi, eins og í
FS, eða að hafa barinn uppi og mat-
salinn niðri eins og til dæmis í
Hrafninum. Auk þess fáist úrval
smárétta í Skálkaskjólinu.
Reksturinn á þessum mæta stað
hefur svo gengið mest ofan og mun
Ferðaskrifstofa ríkisins ekki halda
honum áfram eftir að samningur
við FS rennur út á næsta hausti.
Nýja innréttingin er af mörgum talin
kuldaleg og stólarnir lítt þægilegir.
Þá hafi gamla nafnið laðað mun bet-
ur að sér en það nýja og er nú á döf-
inni að breyta nafninu aftur í Stúd-
entakjallarann. ..
A
^^^■Lllar likur eru á þvi að Bald-
ur Kristjánsson, blaðamaður á NT
og prestur Óháða safnaðarins í
Reykjavík, taki við brauði Onundar
Björnssonár á Höfn í Hornafirði í
eitt ár. Þar með hverfur Baldur af
NT, þar sem hann hefur skrifað fé-
lagshyggju- og samvinnupistla í gríð
og ergi undanfarna mánuði. En
Baldur ætlar ekki að láta sér nægja
prestskapinn, því hann sótti um
starf ritstjóra á vikublaðinu Eystra-
Horni, þverpólitísku og hlutlausu
fréttablaði þarna fyrir austan. Bald-
ur er eini umsækjandinn og því lík-
legt að hann fái starfið...
WKi egar Baldur verður farinn
austur losnar starf hans hjá Óháða
söfnuðinum og telja ýmsir líklegt,
að Lárus Halldórsson, prestur í
Seljahyerfinu, þar sem verið er að
byggja nýja ' kirkju, muni vilja
minnka við sig og þá henti Óháði
söfnuðurinn honum vel.. .
rekstrarfé sitt með ýmsum hætti,
gjarnan með happdrættum eða sölu
í hús og hefur oft verið með ólíkind-
um hvað þau hafa getað safnað ríf-
legum fúlgum með þessu móti.
Orator, félag lögfræðinema við Há-
skólann, þykir þó slá þeim öllum við
hvað þetta varðar. Félagið tók yfir
rekstur diskóteksins á Hótel Borg á
síðasta hausti og varð staðurinn
fljótt mjög vinsæll meðal framhalds-
skólafólks, en hafði þar áður verið
illa sóttur. Þetta kom glögglega fram
í vor þegar farið var að gera upp
reikninga vetrarins, en þá varð ljóst
að hagnaður félagsins af rekstrinum
skipti nokkrum milljónum. Orator
hefur nú tryggt sér þennan væna
kjötketil áfram með samningi við
eigendur Hótel Borgar til eins árs.
Og nú á föstudaginn opnar þessi
staður svo að nýju, eftir gagngerar
breytingar frá því sem áður var, sem
Orator greiddi ekki grænan eyri
til...
LATTU ÞAÐ EKKI HENDA ÞIG
AÐ SJÁ EKKISKÓGENN
FYRIR TRJÁM
AÐALATRIÐIÐ ER, AÐ FLUGLEIÐIR BJÓÐA SÉRSTÖK FARGJÖLD
Á VILDARKJÖRUM FYRIR FJÖLSKYLDUR, UNGA, ALDNA
OG ÖRYRKJA. PÚ SKALT KANNA VEL HVAÐ
FLUGLEIÐIR GETA BOÐIÐ ÞÉR.
Fjölskyldufargjald
Forsvarsmaður greiðir fullt fargjald. Maki og böm á
aldrinum 12-20 ára greiða 50%, en 2-11 ára börn ein-
ungis 25%. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða
innanlands, í allt að 30 daga.
| APEXg.
Veittur er 40% afsláttur af fullu fargjaldi. Börn innan
12 ára aldurs greiða helmingi minna. Bóka þarf með
7 daga fyrirvara. Gildir til alira áfangastaða Flugleiða
innanlands. Gildistími 21 dagur.
| Aldraðir
Aldraðir fá 50% afslátt af fullu fargjaldi þriðjudaga,
miðvikudaga og laugardaga. - Gildir til allra áfanga-
staða innanlands, í allt að 60 daga.
Öryrkjar
Þeir sem em 75% öryrkjar eða meira fá 25% afslátt
af fullu fargjaldi. Framvísa þarf öryrkjaskírteini. —
Gildir til allra áfangastaða innanlands alla daga vikunn-
ar, nema föstudaga og sunnudaga,
i HOPP .
Óbókaðir farþegar eiga kost á 50% fargjaldi á Ieiðinni
Reykjavík - Akureyri - Reykjavík, þegar sæti em laus.
Taka þarf afgreiðslunúmer á flugvelli klukkustund fyrir
brottför. - Gildir til Akureyrar á þriðjiidags-, fimmtu-
dags- og laugardagskvöldum. Frá Akureyri á mánu-
dags-, miðvikudags- og föstudagsmorgnum.
ÞETTA ER EKKl FRUMSKÓGUR, HELDUR YFIRLIT
UM VÍÐTÆKA PJÓNUSTU FLUGLEIÐA INNANLANDS
Unglingar
Unglingar á aldrinum 12-18 ára fá 30% afslátt af fullu
fargjaldi. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiðá
1. maí til 10. júní og 20. ágúst til 30. september.
Hríngflug
Hringflug er ætlað þeim sem kjósa frekar að fljúga
umhverfis landið en aka hringveginn. Viðkomustaðir
em Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir,
Hornafjörður, Reykjavík. Verðið er ákveðið á hverju
vori. - Gildir á tfmabilinu 1. maí til 30. september, í
30 daga lengst.
Tengifargjöld
Sérstök fargjöld em í boði fyrir farþega.á leið í eða
úr millilandaflugi. Fargjöldin em mismúnandi, eftir
eðli farseðilsins í miílilandaflugi, allt að því að vera
ókeypis. Einnig em í boði sérstök fargjöld fyrir þá sem
vilja fljúga um Reykjavík milli staða innanlands. -
Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands árið
um kring. Gildistími mismunandi eftir tegundfargjalds.
Námsménn
Námsmenn á aldrinum 12-26 ára fá 25% afslátt gegn
framvísun skólaskírteinis. Gildir á milli lögheimilis og
skólaátímabilinu 1. september til 31. maí.ogáöllum
leiðum innanlands frá 1. júní til 31. ágúst.
FLUGLEIDIR