Helgarpósturinn - 13.06.1985, Page 28
I brennivíninu gerast menn nú
harla gamlaðir, skrifstofustjórastaða
ÁTVR losnar á þessu ári og sömu-
leiðis styttist í að Jón Kjartansson
forstjóri láti af störfum. Heyrst hefur
að Höskuldur Jónsson, ráðuneyt-
isstjóri í fjármálaráðuneytinu, taki
við stöðu Jóns. Heimildarmenn HP
telja þá flugufregn raunar mjög úr
lausu lofti gripna, enda sé hér um
pólitíska stöðuveitingu að ræða og
væntanlega komi staðan í hlut ein-
hvers flokksgæðings íhaldsins.
Það mun aftur á móti vera afráðið
hver taki við skrifstofustjórastöðu
Ragnars Jónssonar (bróður Ing-
ólfs heitins á Hellu). Ragnar verður
sjötugur á árinu og þá mun nýskip-
aður fulltrúi hans, Gústav Níels-
son, taka við sætinu. Gústav var
ráðinn í ÁTVR fyrir tveimur mánuð-
um og þykir hress og líflegur starfs-
kraftur, en það spillir heldur ekki
fyrir að þessi ungi sagnfræðingur er
góðvinur Alberts og úr gamla
Gunnarsarminum í Sjálfstæðis-
flokknum. . .
| kjölfar væntanlegra manna-
skipta í toppsætinu hjá Sambandinu
má vænta ýmissa breytinga á þeim
bæ. Þannig gera menn ráð fyrir því,
að Axel Gíslason sé langlíklegast-
ur til þess að taka við af Guðjóni hjá
Icelandic Seafood í Bandaríkjunum.
Þá er búist við því að Benedikt
Sveinsson, skrifstofustjóri SÍS í
London, komi heim og fari að vinn'a
í sjávarafurðadeildinni, en Ólafur
Jónsson, staðgengill Sigurðar
Markússonar hjá sjávarafurða-
deildinni, fari í staðinn til London.
Annars munu þessar mannabreyt-
ingar að einhverju leyti fara eftir
niðurstöðu skattarannsóknastjóra
vegna skattamála einstakra toppa
hjá SÍS.. .
28 HELGARPÓSTURINN
að hefur áður sést í blaða-
slúðri hvað Jón Helgason landbún-
aðarráðherra hefur verið naumur á
allar veitingar og hvergi í sinni ráð-
herratíð veitt áfengi.
En HP hefur nú fregnað að það sé
ekki bara að Jón vilji ekki veita vín,
sem hér ræður ferðinni. Hann má
það heldur ekki. Jón er stúkumaður
og til þess að menn tolli í slíkum fé-
lagsskap verða þeir ekki einasta að
sneiða hjá Bakkusi sjálfir. Þeir mega
heldur aldrei veita áfengi, og er
mörgum stúkumönnum minnis-
stætt þegar reka átti Björn Jóns-
son ráðherra úr templarareglunni
fyrir það að hann, eða öllu heldur
Stjórnarráðið, — hafði veitt vín í ára-
mótaveislu. En Björn fékk nú að
vera, enda iðraðist karl sáran og
þótti hið versta mál. Það er alveg
víst að Jón í Seglbúðum passar sig á
því að verða ekki rekinn úr templ-
arareglunni. . .
LEXAN
POLYCARBONATE
STÓLAMOTTUR
Stærð 122 x 152,5. Verð kr. 2.500,
Stærð 122 x 183. Verð kr. 2.960.
KONBÁÐ AXELSSON
SKRIFSTOFUVÖRUR,
Ármúla 30 — 108 Reykjavik.
Símar 82420 - 39191.
Pú þarft á líftryggingu
að halda til aukins öryggis
fyrir þig og þína.
Stærð og fjárhagslegur
styrkur Sameinaða
liftryggingarfélagsins hf.
skapa þér örugga
líftryggingarvemd.
Líftrygging hjá
Sameinaða líftryggingarfélaginu hf.
tryggir öryggi þeirra
sem þér er annast um.
Sameinaða líftryggingarfélagið hf. er nýtt
líftryggingarfélag.
Sameinaða líftryggingarfélagið hf.
er í eigu tveggja af traustustu
vátryggingarfélögum landsins,
Sjóvátryggingarfélags íslands hf.
og Tryggingamiðstöðvarinnar
Sameinaða
líftryggingarfélagið hf.
er stærsta
líftryggingarfélag
landsins.
SAMEI3MAÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF
SUÐURLANDSBfWUT4 12SR£YKlAVt( PO BOXS300 SÁ891-8ZS00